Fordæmalaust mál kalli á fordæmalausar aðgerðir dómstóla Lögmaður Hussein Hussein, fatlaðs manns sem vísað var úr landi á fimmtudaginn, segir mál hans svo fordæmalaust að það kalli á fordæmalausar aðgerðir af hálfu dómstóla. Dómari mun ákveða á fimmtudag hvort Hussein komi aftur til landsins til þess að gefa skýrslu fyrir dómi. 8.11.2022 18:41
Þetta hækkar hjá Reykjavíkurborg um áramótin Verð á sorphirðu, skólamáltíðum og árskorti í sund hjá Reykjavíkurborg mun hækka um áramótin. Borgarfulltrúi minnihlutans hefði viljað frysta gjaldskrárhækkanir sem snúa að frístundastarfi í ljósi verðbólgu. 3.11.2022 21:30
„Við lýsum auðvitað yfir miklum áhyggjum“ Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lýsir yfir miklum áhyggjum af rekstri borgarinnar. Starfsmönnum hafi fjölgað mjög í miðlægri stjórnsýslu á meðan leikskólastarfsmönnum fækki. Skuldasöfnunin sé gríðarleg og fyrirhugaðar aðhaldsaðgerðir dugi ekki til. 1.11.2022 21:48
Boðar aðgerðir í netöryggismálum Ísland stendur sig mun verr en hin Norðurlöndin þegar kemur að netöryggi sem gerir þjóðina að skotmarki erlendra netárásahópa. Nýsköpunarráðherra segir okkur skorta sérhæfðan mannauð í málaflokknum og boðar aðgerðir. 1.11.2022 20:01
Einar mestu hagræðingaraðgerðir frá hruni Reykjavíkurborg mun ráðast í einar mestu hagræðingaraðgerðir frá hruni til að mæta hallarekstri. Formaður borgarráðs segir að tryggja þurfi sjálfbæran rekstur og skapa svigrúm til fjárfestinga án endalausrar lántöku. 1.11.2022 19:22
Segir millitekjufólk í vandræðum Formaður Starfsgreinasambandsins segir kröfugerð Eflingar raunhæfa og vel unna. Nauðsynlegt væri að ná fram krónutöluhækkun enda hafi framfærslukostnaður launafólks hækkað svo gríðarlega að nú væri millitekjufólk að berjast í bökkum. 1.11.2022 13:16
„Ekkert annað en eðlilegt og réttlátt“ Efling krefst 167 þúsund króna krónutöluhækkunar allra launa á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í kröfugerð sem félagið hefur afhent Samtökum atvinnulífsins. Þá krefst félagið þrjátíu daga orlofs fyrir alla félagsmenn auk þess sem ræða þurfi af fullri alvöru um styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum. Formaður Eflingar telur kröfur þess sanngjarnar og raunsæjar. 31.10.2022 21:16
Tæplega tvö hundruð látist af völdum Covid-19 hér á landi það sem af er ári Hundrað og áttatíu hafa látist af völdum Covid-19 hér á landi það sem af er ári og hafa dauðsföll af völdum sjúkdómsins aldrei verið fleiri. Sóttvarnalæknir segir að sjúkdómurinn valdi mun meiri usla en aðrir smitsjúkdóma á borð við inflúensu. 31.10.2022 19:44
Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja. 31.10.2022 13:00
Settu upp Blátt lón og bræddu hraun í Lundúnum Stærsti kynningarviðburður seinni ára á Íslandi sem áfangastað fer nú fram í Lundúnum. Öllu hefur verið tjaldað til fyrir viðburðinn, til að mynda hefur manngerðu Bláu lóni verið komið fyrir. 27.10.2022 23:51