Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. 18.8.2026 21:03
Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar. 18.8.2026 20:14
Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsanna B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna. 18.8.2026 19:40
Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt refsiaðgerðir gegn forseta og yfirlögfræðingi Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC). Dómstóllinn í Haag var stofnaður árið 2002 til að sækja til saka stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. Meðal þess sem felst í refsiaðgerðunum er að allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum verði frystar. 18.8.2026 18:28
Ráðuneytið birtir útreikningana Stjórnarráð Íslands hefur gefið út mat á kostnaði við aðild að Evrópusambandinu en þar kemur fram að hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins orðið um átta til þrettán milljarðar. Áður hefur verið greint frá því að Áfram Ísland standi við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Forsætisráðherra hefur fullyrt að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“ 18.8.2026 17:38
Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu. 17.8.2026 21:23
Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi. 17.8.2026 20:55
Nicole er fyrir norðan Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar. 17.8.2026 19:05
Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu. 17.8.2026 17:59
Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út. 17.8.2026 17:27
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent