Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Freyja Þórisdóttir skrifar 20. september 2026 18:42 Samkvæmt núverandi áformum verða þrír hólmar um fjörutíu metra frá suðvesturhorni Tjarnarinnar. Einn þeirra verður byggður ofan á núverandi hólma. Skjáskot/Tölvumynd Landsmótunar Stefnt er að því að útbúa nýja hólma í suðvesturhluta Reykjavíkurtjarnar. Markmið verkefnisins er að stuðla að bættu lífríki Tjarnarinnar, skapa betri skilyrði fyrir fuglalíf og stuðla að auknum vatnsgæðum. Þá er einnig vonast til þess að nýi hólminn muni bæta ásýnd svæðisins.
Var verkefnið kynnt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á dögunum en meðal þess sem fram kemur í fundargerðinni um málið er að verkefnið sé unnið af teiknistofunni Landmótun. Það sé hluti af hinu svokallaða Icewater-verkefni og hafi þegar hlotið styrk. Hönnun hólmanna snýst að mestu leyti um að bæta aðstæður fyrir fuglana sem aðhafast á Tjörninni.Skjáskot/Tölvumynd Landsmótunar Í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar segir að „til framtíðar væri spennandi að ráðast í fleiri sambærileg verkefni sem bæði gætu styrkt umhverfi Tjarnarinnar og aukið líffræðilegan fjölbreytileika enn frekar.“ Það væri sérstaklega hægt að horfa til austurkants Tjarnarinnar við Fríkirkjuveg þar sem tækifæri séu til að skapa meira rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Við forhönnun var lögð áhersla á að nýju hólmarnir yrðu að virka náttúrlegir, er fram kemur í kynningu um verkefnið. Þar er einnig snert á því hvernig ferlið við að endurnýja stóra hólmann, í norðurhluta Tjarnarinnar, gekk en það stóð yfir þarsíðasta vetur. Þá var meðal annars lagt grjót í fláa á einni hlið í von um að auðvelda uppgöngu fugla inn á hólmann. Litli hólminn, sem er í suðurhluta tjarnarinnar, var upphaflega gerður árið 1949 til þess að glæða fuglalíf á Tjörninni en hann er í dag mjög illa farinn og lítið nema grjóthrúga og hvönn eftir. Markmið næsta hluta verkefnisins er samkvæmt kynningunni að bæta vatnsgæði í Tjörninni sem og aðstæður fyrir endur í og við hólma. Til að vinna að því verður hólminn sem er þar núna stækkaður og fleiri hólmum bætt við. Hugmyndin virðist af teikningum vera að útbúa þrjá hólma sem liggja samsíða í sunnanverðri Tjörninni.
Reykjavík Fuglar Umhverfismál Dýr Vatn Borgarstjórn Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira