Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“

Bindi Irwin opnaði sig nú á dögunum um erfiða baráttu sem hún hefur háð síðustu þrjú ár síðan hún greindist með endómetríósu. Margir þekkja eflaust ættarnafn hennar en Steve Irwin, faðir Bindi, var ástralskur náttúruverndarsinni og dýragarðsvörður.

Stöðvuðu ferða­menn sem reyndust ekkert grun­sam­legir

Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis.

Ó­sætti vegna dymbil­viku­lokana í leik­skólum Garða­bæjar

Foreldrar leikskólabarna í Garðabæ setja út á lokanir í dymbilvikunni. Útfærsla Reykjavíkurborgar sé hentugri en þar geti foreldrar valið hvort þeir nýti leikskólapláss eða ekki. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir breytingarnar hafa verið til þess að minnka álag á leikskólastarfsmenn.

Státum af klárasta barþjóni Evrópu

Á dögunum stóð yfir Evrópumótið í kokteilagerð sem fram fór í Protaras á Kýpur. Róbert Aron Proppé, Íslandsmeistari í kokteilagerð, tryggði Íslandi sæti á verðlaunapalli en hann fékk einnig sérverðlaun fyrir besta árangur í skriflegu prófi.

Love, Hannah og Pia í lagi en Cur­ver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni

Úrskurðarnefnd mannanafnanefndar samþykkti í vetur fjölda beiðna vegna nýrra nafna en hafnaði einnig beiðnum á borð við þá sem tónlistar- og myndlistamaðurinn Curver Thoroddsen sendi henni. Nefndin birti úrskurð í mars þar sem fram kom að eiginnafninu Curver yrði ekki bætt við mannanafnaskrá sökum þess að stafurinn „C“ finnist hvergi í íslenska stafrófinu.

Ragnar brosir allan hringinn eftir sím­tal frá Góu og Omnom

Ragnar Freyr Ingvarsson, jafnan þekktur sem læknirinn í eldhúsinu, segist brosa allan hringinn í kjölfar símtals þar sem hann ræddi við „ljúfa fólkið í Góu og Omnom“ um að þau væru tilbúin að leysa stóra Páskaeggjamálið sem fréttir hafa borist af síðastliðna daga.

Tóna­bíó opnar á ný

Á morgun opnar hið sögufræga Tónabíó dyr sínar á ný. Í húsnæðinu, Skipholti 33, mátti finna bingóhöllina Vinabæ frá árunum 1990 og þangað til það skipti svo um eigendur árið 2022.

Ógnaði hópi ung­menna með egg­vopni

Maður í annarlegu ástandi veittist að hópi ungmenna í Hlíðahverfinu á ellefta tímanum síðasta mánudag, 16. mars. Enginn er sagður alvarlega slasaður en brotaþolar hringdu í lögregluna sem kom fljótt á vettvang og handtók manninn.

Sjá meira