KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 18:34 Árásin átti sér stað fyrir utan íþróttamiðstöðina í Laugardal en þangað fjölmenntu fulltrúar sunddeilda. KR býður meðal annars upp á sundkennslu í Laugardalslaug. Vísir/Vilhelm Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru. Er þetta meðal þess sem fram kemur í tölvupóstinum sem Garðar Páll Gíslason, formaður sunddeildar, sendir. Þar segir að allir í stjórn félagsins séu harmi slegnir vegna atviksins sem skeði skömmu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær, fimmtudaginn 17. september. Lögreglan brugðist skjótt við Þar lágu leiðir sundþjálfara hjá KR og Gróttu saman en síðarnefnda félagið blés í lúðra fyrr á árinu og stofnaði sína eigin sunddeild. Samkvæmt heimildum Vísis réðst sundþjálfari KR á kollega sinn hjá Gróttu með höggum. Tilefnið liggur ekki fyrir en með stofnun sunddeildar Gróttu flutti nokkur fjöldi iðkenda sig frá KR og yfir í Gróttu. Þjálfari Gróttu var áður vinsæll þjálfari hjá KR. Eftir höggin mun sundþjálfari KR hafa gripið til hnífs og ógnað þjálfara Gróttu. Í tölvupóstinum sem var stílaður á iðkendur, þjálfara og starfsfólk í KR segir meðal annars að „af tillitsemi við alla sem málinu og félögunum tengjast fjöllum við ekki ítarlegar um það hér, að öðru leyti en því að lögregla brást skjótt við og hefur málinu verið vísað í réttan farveg“. Foreldrum boðið á fund Þá sé talið mikilvægt að koma nokkrum atriðum á framfæri við forráðafólk og iðkendur KR, svo sem að málið sé í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu og að sérhver einstaklingur sem telji sig þurfa aðstoð vegna málsins geti haft samband við ráðgjafana. Málið sé á afar viðkvæmu stigi og því mikilvægt að þau hlúi hvert að öðru. Á mánudag sé foreldrum barna sem æfa með KR boðið á fund þar sem farið verði yfir málið og þá sérstaklega „hvernig við leysum þjálfaramálin“. Tölvupósturinn er í fullri lengd hér að neðan. Kæru iðkendur, þjálfarar og starfsfólk í KR.Alvarlegt atvik kom upp tengdum þjálfurum Gróttu og KR á fundi Sundsambands Íslands í gær. Við erum öll harmi slegin vegna þessa. Fjölmiðlar hafa fjallað um málið í dag. Af tillitsemi við alla sem málinu og félögunum tengjast fjöllum við ekki ítarlegar um það hér, að öðru leyti en því að lögregla brást skjótt við og hefur málinu verið vísað í réttan farveg.Við hörmum málið og teljum mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri við forráðafólk og iðkendurKR: Málið er í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Sérhvereinstaklingur sem telur sig þurfa á aðstoð að halda vegna afleiðinga þess getur haft samband við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs (http://samskiptaradgjafi.is / sími: 581-1009/839-9100/783-9100).Málið er á afar viðkvæmu stigi og mikilvægt að við hlúum hvert að öðru.Á mánudaginn langar okkur svo til að biðja ykkur foreldrana um að koma á fund út í KR kl. 17, þar sem við getum aðeins farið yfir málið og eins farið yfir hvernig við leysum þjálfaramálin.Með þökkum fyrir hjartahlýju og samhug. Sund Lögreglumál KR Grótta Reykjavík Seltjarnarnes Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tölvupóstinum sem Garðar Páll Gíslason, formaður sunddeildar, sendir. Þar segir að allir í stjórn félagsins séu harmi slegnir vegna atviksins sem skeði skömmu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær, fimmtudaginn 17. september. Lögreglan brugðist skjótt við Þar lágu leiðir sundþjálfara hjá KR og Gróttu saman en síðarnefnda félagið blés í lúðra fyrr á árinu og stofnaði sína eigin sunddeild. Samkvæmt heimildum Vísis réðst sundþjálfari KR á kollega sinn hjá Gróttu með höggum. Tilefnið liggur ekki fyrir en með stofnun sunddeildar Gróttu flutti nokkur fjöldi iðkenda sig frá KR og yfir í Gróttu. Þjálfari Gróttu var áður vinsæll þjálfari hjá KR. Eftir höggin mun sundþjálfari KR hafa gripið til hnífs og ógnað þjálfara Gróttu. Í tölvupóstinum sem var stílaður á iðkendur, þjálfara og starfsfólk í KR segir meðal annars að „af tillitsemi við alla sem málinu og félögunum tengjast fjöllum við ekki ítarlegar um það hér, að öðru leyti en því að lögregla brást skjótt við og hefur málinu verið vísað í réttan farveg“. Foreldrum boðið á fund Þá sé talið mikilvægt að koma nokkrum atriðum á framfæri við forráðafólk og iðkendur KR, svo sem að málið sé í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu og að sérhver einstaklingur sem telji sig þurfa aðstoð vegna málsins geti haft samband við ráðgjafana. Málið sé á afar viðkvæmu stigi og því mikilvægt að þau hlúi hvert að öðru. Á mánudag sé foreldrum barna sem æfa með KR boðið á fund þar sem farið verði yfir málið og þá sérstaklega „hvernig við leysum þjálfaramálin“. Tölvupósturinn er í fullri lengd hér að neðan. Kæru iðkendur, þjálfarar og starfsfólk í KR.Alvarlegt atvik kom upp tengdum þjálfurum Gróttu og KR á fundi Sundsambands Íslands í gær. Við erum öll harmi slegin vegna þessa. Fjölmiðlar hafa fjallað um málið í dag. Af tillitsemi við alla sem málinu og félögunum tengjast fjöllum við ekki ítarlegar um það hér, að öðru leyti en því að lögregla brást skjótt við og hefur málinu verið vísað í réttan farveg.Við hörmum málið og teljum mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri við forráðafólk og iðkendurKR: Málið er í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Sérhvereinstaklingur sem telur sig þurfa á aðstoð að halda vegna afleiðinga þess getur haft samband við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs (http://samskiptaradgjafi.is / sími: 581-1009/839-9100/783-9100).Málið er á afar viðkvæmu stigi og mikilvægt að við hlúum hvert að öðru.Á mánudaginn langar okkur svo til að biðja ykkur foreldrana um að koma á fund út í KR kl. 17, þar sem við getum aðeins farið yfir málið og eins farið yfir hvernig við leysum þjálfaramálin.Með þökkum fyrir hjartahlýju og samhug.
Kæru iðkendur, þjálfarar og starfsfólk í KR.Alvarlegt atvik kom upp tengdum þjálfurum Gróttu og KR á fundi Sundsambands Íslands í gær. Við erum öll harmi slegin vegna þessa. Fjölmiðlar hafa fjallað um málið í dag. Af tillitsemi við alla sem málinu og félögunum tengjast fjöllum við ekki ítarlegar um það hér, að öðru leyti en því að lögregla brást skjótt við og hefur málinu verið vísað í réttan farveg.Við hörmum málið og teljum mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri við forráðafólk og iðkendurKR: Málið er í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Sérhvereinstaklingur sem telur sig þurfa á aðstoð að halda vegna afleiðinga þess getur haft samband við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs (http://samskiptaradgjafi.is / sími: 581-1009/839-9100/783-9100).Málið er á afar viðkvæmu stigi og mikilvægt að við hlúum hvert að öðru.Á mánudaginn langar okkur svo til að biðja ykkur foreldrana um að koma á fund út í KR kl. 17, þar sem við getum aðeins farið yfir málið og eins farið yfir hvernig við leysum þjálfaramálin.Með þökkum fyrir hjartahlýju og samhug.
Sund Lögreglumál KR Grótta Reykjavík Seltjarnarnes Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira