

Heimir Már Pétursson
Nýjustu greinar eftir höfund

Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu
Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum.

Ekki samstaða innan ASÍ um áherslur í komandi kjaraviðræðum
Ekki tókst að ná samstöðu um að landsambönd og félög innan Alþýðusambandsins fari sameiginlega fram í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum. Forseti ASÍ segir samningaviðræður geta orðið flóknari fyrir vikið en vonar engu að síður að nýir samningar náist áður en núgildandi samningar renna út í lok janúar.

Þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi
Katrín Jakobsdóttir foræstisráðherra segir ríkisstjórnina að sjálfsögðu hafa rætt eldgosið á Reykjanesskaga á reglubundnum fundi sínum í ráðherrabústaðnum í morgun. Hún sé þess þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð í hávegum og enginn hafi verið í Grindavík þegar eldgos hófst.

Frost í viðræðum flugumferðarstjóra og SA
Ekki hefur verið fundað formlega í deilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í dag. Innviðaráðherra segir deiluaðila verða að sýn ábyrgð og leysa deiluna við samningaborðið en útilokar ekki stjórnvöld grípi inn í með lagasetningu. Sáttasemjari segir að litið sé til þess að gera skammtímasamning.

Þolimæði stjórnvalda að þrotum komin
Þolinmæði stjórnvalda gagnvart verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er við það að bresta. Innviðaráðherra ætlast til að deiluaðilar setjist að samningaborðinu og leysi deiluna. Aðgerðir flugumferðarstjóra hafa nú þegar haft bein áhrif á ferðatilhögun hátt í þrjátíu þúsund farþega íslensku flugfélaganna.

Útlendingastofnun setur fjölskyldusameiningar Palestínumanna í forgang
Utanríkisráðherra segir að Ísland og Norðurlöndin muni styðja tillögu Egyptlands og Máritáníu um tafarlaust vopnahlé á Gaza og jafnvel vera meðflutningsmenn á tillögunni. Stjórnvöld hafi aukið framlög til neyðaraðstoðar við Palestínu og Útlendingastofnun sett sameiningu fjölskyldna fólks frá Palestínu í sérstakan forgang.

Heilu fjölskyldurnar þurrkaðar út í árásum Ísraelshers
Heilu fjölskyldurnar voru þurrkaðar út í árásum Ísraelshers á bæi á Gazaströndinni síðast liðna nótt. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að tekist hafi að hafa hendur í hári nokkurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í árásum og mannránum í Ísrael í byrjun október.

Einhliða viðskiptaþvinganir gegn Ísrael þjóni engum tilgangi
Utanríkisráðherra telur ekki ráðlegt að Ísland ráðist ein þjóða í þvingunaraðgerðir gegn Ísrael til að knýja á um vopnahlé á Gaza. Almennt fari Ísland ekki þá leið að slíta stjórnmálasambandi við aðrar þjóðir, ekki einu sinni Rússa.

Verkfallsaðgerðir raski plönum mörg þúsund farþega
Flugumferðarstjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á tveimur dögum í næstu viku til viðbótar við aðgerðir á morgun og næsta fimmtudag. Enn er fundað í Karphúsinu og bendir því allt til að það verði af fyrirhugaðri vinnustöðvun í nótt sem mun hafa áhrif á mörg þúsund farþega.

Stefnir í mikla röskun á millilanda- og innanlandsflugi á morgun
Komur og brottfarir rúmlega fjörutíu flugvéla raskast á Keflavíkurflugvelli og allt innanlandsflug liggur niðri frá klukkan fjögur í fyrrramálið til klukkan tíu, náist ekki samningar í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Ísavia í dag. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir frekari aðgerðir í undirbúningi.