Hyggjast bólusetja alla óbólusetta við komuna til Gana Stjórnvöld í Gana hyggjast bólusetja alla borgara og íbúa landsins við komuna á flugvöllum frá og með mánudegi, ef þeir hafa ekki þegar þegið bóluefni. Þá verður þeim sem yfirgefa landið gert að framvísa sönnun um bólusetningu. 10.12.2021 12:11
Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld. 10.12.2021 07:55
Costco ber að greiða ferðir starfsmanna utan áætlunartíma strætó Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Costco sé skylt að greiða starfsmönnum fyrir ferðir til og frá vinnu í verslunina við Kauptún í Garðabæ á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki, óháð því hvernig starfsmenn haga ferðum til og frá vinnu á öðrum tíma. 10.12.2021 07:06
Lögregla kölluð til vegna þriggja líkamsárása í gærkvöldi og nótt Lögregla sinnti þremur tilkynningum vegna líkamsárása í gærkvöldi og nótt. Ein átti sér stað á hóteli í miðborg Reykjavíkur fyrir miðnætti en árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti á staðinn. 10.12.2021 06:31
Vongóð um samtal við stjórnvöld um eingreiðslu í desember „Það skiptir gríðarlega miklu fyrir fólk að fá þessa eingreiðslu sem hefur komið frá ríkinu undanfarin tvö jól. Þörfin hefur ekki minnkað,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. 9.12.2021 12:29
Kínverjar segja ríki munu gjalda fyrir að sniðganga Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína segja að Ástralir, Bretar og Bandaríkjamenn muni gjalda fyrir þau mistök sín að senda ekki opinberar sendinefndir á Ólympíuleikana í Pekíng í febrúar. 9.12.2021 11:53
Vilja láta rannsaka möguleg tengsl krabbameina og mengunar á Suðurnesjum Sjö þingmenn Suðurkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela heilbrigðisráðherra að gera saming við Krabbameinsfélag Íslands um rannsókn á nýgengi krabbameina á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta. 9.12.2021 10:08
Bilun í aflvél í Búrfelli 1 eykur áhættu í rekstri raforkukerfisins Síðastliðinn laugardag varð bilun í sátri rafala aflvélar 2 í Búrfelli 1. Ekki er búið að staðfesta hversu umfangsmikil bilunin er en í ljósi reynslunnar er lágmarksviðgerðartími í kringum sex vikur. 9.12.2021 08:39
Bólusett í Laugardalshöll fram að áramótum Bólusett verður í Laugardalshöll fram að áramótum, alla virka daga nema 17. desember, á Þorláksmessu, aðfangadag og gamlársdag. Um er að ræða breytingu á fyrirhuguðu fyrirkomulagi en til stóð að flytja bólusetningarnar að Suðurlandsbraut um miðjan mánuð. 9.12.2021 07:33
Einkenni smitaðra í Evrópu væg enn sem komið er Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar hefur nú greinst í 57 ríkjum heims og heldur áfram að dreifast hratt í Suður-Afríku. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir þó of snemmt að spá um áhrif afbrigðisins í heiminum, þar sem delta sé víðast hvar enn ráðandi. 9.12.2021 06:59