Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk Dómsmálaráðuneytið segir umboðsmann barna komast að „ótækri“ niðurstöðu í umsögnum sínum um útlendingafrumvarpið svokallaða. Hagsmunir barna séu ekki „tromp spil“ í útlendingamálum. 3.6.2024 11:31
Vilja samstarf við Norðurlöndin vegna fólks sem vill ekki fara Fjórir þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli dómsmálaráðherra að leita samstarfs við kollega sína á Norðurlöndum um móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafa fengið umsókn sinni synjað. 3.6.2024 10:18
Efndi til þrælauppboðs í kennslustund Skólayfirvöld í Massachusetts í Bandaríkjunum hafa sent grunnskólakennara í tímabundið launað leyfi eftir að hann efndi til „þrælauppboðs“ í kennslustund. 3.6.2024 09:04
Netanyahu fastur milli steins og sleggju Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, er nú sagður standa frammi fyrir því að þurfa mögulega að velja á milli þess að ganga að vopnahléstillögum sem nú liggja fyrir og þess að halda lífi í ríkisstjórn sinni. 3.6.2024 07:18
Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó Claudia Sheinbaum varð í gær fyrsta konan og fyrsti gyðingurinn til að vera kjörinn forseti Mexíkó. Tvær konur voru í framboði en Sheinbaum hlaut um 58 prósent atkvæða, nærri 30 prósentum meira en Xóchitl Gálvez. 3.6.2024 06:43
Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Suðurkóreskur auðjöfur hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði 137 milljarða króna, í kjölfar skilnaðar þeirra. 31.5.2024 11:52
Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu „Þetta er sett fram á mjög sérstakan hátt sko, sem vinsamleg ábending til mín. Og ég hef fengið þetta á Messenger, fengið það aðeins í Instagram-skilaboðum, ég hef fengið nokkur e-mail og símtöl.“ 31.5.2024 10:15
Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur gefið Úkraínumönnum grænt ljós á notkun vopna frá Bandaríkjunum í árásum á Rússland. Heimildin er þó takmörkunum háð og nær aðeins til tilvika þar sem um sjálfsvörn er að ræða. 31.5.2024 07:45
Engar breytingar í nótt Engar verulegar breytingar urðu á eldgosinu á Reykjanesi í nótt. Skjálftavirkni á svæðinu er takmörkuð og gosórói hefur haldist nokkuð stöðugur. 31.5.2024 06:49
Síðustu kannanir gefa fyrirheit um æsispennandi kosningar Þrjár fylgiskannanir voru birtar í gær. Sú fyrsta var könnun Maskínu fyrir fréttastofuna og greint var frá í hádeginu. Þar hefur Halla Tómasdóttir, sem verið hefur á mikilli siglingu, skotist upp að Katrínu Jakobsdóttur og mælast þær báðar með 24,1 prósent. 31.5.2024 06:32
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur