Vanguard keypti fyrir tvo milljarða í Arion banka Bandaríska sjóðastýringarfélagið Vanguard fer með tæplega 0,8 prósenta eignarhlut í Arion eftir að hafa fjárfest í bankanum samhliða því að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja í byrjun síðastu viku. 29.9.2022 18:31
Lífeyrissjóðir með helmingi minni hlut í Mílu en þeim stóð til boða að kaupa Takmörkuð aðkoma sumra af stærstu lífeyrissjóðum landsins við kaup á hlutum í Mílu í samfloti með franska sjóðastýringarfélaginu Ardian þýðir að samanlagður eignarhlutur sjóðanna í fjarskiptafyrirtækinu verður talsvert minni en áður var áætlað. Íslensku lífeyrissjóðirnir munu tilnefna fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Símanum sem fulltrúa sinn í stjórn Mílu eftir að viðskiptin klárast. 29.9.2022 07:01
Rannsakar hlutabréfaviðskipti dagana fyrir útboð Íslandsbanka Rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka fyrr á árinu beinist meðal annars að mögulega óeðlilegum viðskiptum á hlutabréfamarkaði yfir tveggja daga tímabil áður en útboðið kláraðist. Eftirlitið hefur kallað eftir ítarlegum gögnum frá söluráðgjöfunum um samskipti þeirra við viðskiptavini sína dagana 21. og 22. mars síðastliðinn. 28.9.2022 07:00
Hægir á innlausnum fjárfesta úr innlendum hlutabréfasjóðum Fjórða mánuðinn í röð dró lítillega úr innlausnum fjárfesta úr íslenskum hlutabréfasjóðum en stöðugt útflæði hefur verið úr slíkum sjóðum, rétt eins og í öðrum verðbréfasjóðum, samtímis miklum óróa og verðlækkunum á mörkuðum á síðustu mánuðum. Frá því í lok febrúar, þegar innrás Rússa hófst í Úkraínu, nemur nettó útflæði úr verðbréfasjóðum samanlagt um 23 milljörðum. 27.9.2022 14:59
Innlán fyrirtækja bólgnað út um nærri 50 prósent á rúmlega einu ári Ekkert lát er á miklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja en frá því um vorið 2021 hafa þau aukist að umfangi í bankakerfinu um nærri fimmtíu prósent. Á sama tíma hefur verið afar lítil aukning í innlánum heimilanna sem hafa skroppið saman að raunvirði á síðustu mánuðum og misserum. 26.9.2022 17:49
Selt í Marel fyrir á annan tug milljarða á örfáum mánuðum Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem var um skeið stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marels, hefur á nokkrum mánuðum selt liðlega þriðjung allra bréfa sinna í íslenska félaginu. Stórfelld sala sjóða í stýringu Capital hefur átt sinn þátt í því að drífa áfram miklar lækkanir á hlutabréfaverði Marels. 26.9.2022 07:00
Seldi gjaldeyri til að mæta útflæði við útgöngu erlendra vogunarsjóða Seðlabanki Íslands greip inn á gjaldeyrismarkaði í upphafi vikunnar með einni umsvifamestu sölu sinni á gjaldeyri á þessu ári. Þetta var í annað sinn í þessum mánuði sem bankinn stóð að gjaldeyrissölu á markaði en áður hafði bankinn ekki beitt gjaldeyrisinngripum í meira en þrjá mánuði. 25.9.2022 14:00
Sjóðir Vanguard keyptu í Kviku fyrir nærri milljarð króna Bandaríski sjóðastýringarrisinn Vanguard ræður yfir nálægt eins prósenta hlut í Kviku eftir að hafa keypt nánast öll þau bréf sem voru seld í bankanum í lokunaruppboði í Kauphöllinni á föstudaginn fyrir rúmlega viku í aðdraganda þess að Ísland færðist upp í flokk nýmarkaðsríkja. 24.9.2022 14:01
Sjóvá stækkaði stöðu sína í Marel fyrir um 800 milljónir á skömmum tíma Sjóvá margfaldaði hlutabréfastöðu sína í Marel yfir nokkurra vikna tímabil í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu í byrjun vikunnar. 23.9.2022 17:32
Sjóðastýringarrisinn Vanguard kominn í hóp stærri eigenda Íslandsbanka Bandaríska eignarstýringarfélagið Vanguard er orðið á meðal stærri hluthafa Íslandsbanka eftir að nokkrir sjóðir í stýringu þess keyptu í bankanum fyrir samanlagt um 1.300 milljónir króna í sérstöku uppboði sem fór fram eftir lokun markaða fyrir helgi. 23.9.2022 07:00