Efast um að málinu verði áfrýjað Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar, segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um sýkna Albert af ákæru um nauðgun vera lögfræðilega rétta niðurstöðu. 10.10.2024 14:15
Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga „Þessi niðurstaða auðvitað lítur að sakamáli og hvort ströng skilyrði séu uppfyllt til þess að dæma mann til fangelsisrefsingar, og breytir í rauninni engu um upplifun brotaþola af þessu kvöldi eða af samskiptum við ákærða,“ segir Eva B. Helgadóttir, réttargæslumaður konunnar sem kærði Albert Guðmundsson. 10.10.2024 13:54
Albert sýknaður Albert Guðmundsson knattspyrnumaður var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun. Hann var ákærður fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis. Dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir klukkan eitt í dag. 10.10.2024 12:02
Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands. 10.10.2024 11:33
Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Fellibylurinn Milton gekk á land í Flórída í nótt og hefur valdið miklum skaða. Fjölmiðlar vestanhafs keppast við að fjalla um storminn sem geysar. Nokkrir fréttamenn sem eru á vettvangi hafa lent í bölvuðum vandræðum í óveðrinu. 10.10.2024 10:55
Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, einnig þekktur sem Prettyboitjokko, er í Flórída þar sem fellibylurinn Milton hefur gengið yfir. Þar er hann í glæsihýsi ásamt stórfjölskyldunni, þar á meðal er afi hans Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við Góu. 10.10.2024 08:08
Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Tveir táningspiltar voru á rúntinum skammt frá Hvaleyrarvatni í febrúarmánuði árið 2020. Ökumaðurinn var búinn að drekka nokkra bjóra og klessti bílinn. Það var skítakuldi úti og piltarnir fóru inn um glugga á sumarbústað skammt frá. Þar fóru þeir að brjóta og bramla. Annar þeirra, sá sem hafði ekið bílnum, kveikti í pappír, setti inn í skáp og lokaði. Síðan gengu þeir á brott, en á meðan brann bústaðurinn til kaldra kola. 10.10.2024 08:01
Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Einstaklingur sem var stunginn í Grafarvogi í nótt hlaut lífshættulega áverka. Hann var fluttur á á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem gert var að sárum hans. 9.10.2024 15:13
Árekstur á Eyrarbakkavegi Tveggja bíla árekstur varð á Eyrarbakkavegi í Árnessýslu um hálfþrjúleytið í dag. Svo virðist sem engin alvarleg slys hafi orðið á fólki. 9.10.2024 15:10
Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Fimm þúsund manns skráðir í fæðingarorlof voru ranglega taldir sem ríkisstarfsmenn í opinberum gögnum Hagstofunnar. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir villur sem þessar í opinberum gögnum vera hið versta mál og vill bæta hagskýrslugerð. 9.10.2024 13:37