Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Jón Þór Stefánsson skrifar 13. júlí 2026 16:39 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á dögunum karlmann í skilorðsbundið fangelsi fyrir heimilisofbeldi, sem hann framdi á heimili sínu og þáverandi sambýliskonu sinnar í ágústmánuði 2022.
Honum var gefið að sök að ógna á alvarlegan og endurtekinn hátt lífi, heilsu og velferð konunnar með því að kýla hana ítrekað í augað, taka hana kverkataki þannig að hún átti erfitt með andardrátt, og setja olnboga sinn í hægri síðu hennar og brjóstkassa. Einnig segir í ákæru að hann hafi sparkað í síðu og hönd hennar, og veitt endurtekinn hnefahögg í hand- og fótleggi hennar. Fyrir vikið hlaut konan ýmsa áverka. Óttaðist að hann tæki hana af lífi Maðurinn neitaði sök. Hann vildi ekki gefa skýrslu fyrir dómi og lét sér nægja að hafa rætt við lögreglu. Samkvæmt framburði hans var hann að reyna að yfirgefa heimilið þegar konan hafi setið yfir honum og haldið niðri. Því hafi hann tekið utan um hana, en neitaði að um hálstak hafi verið að ræða. Hún hafi ekki viljað að hann færi. Hann sagði að ástandið hafi verið líkt og honum væri haldið eins og gísl. Konan hafi tekið veski hans og reynt að þvinga hann til að vera áfram. Fyrir dómi sagði konan að þau tvö hefðu átt í sambandi í tvö ár, en hann hafi fljótlega á þeim tíma byrjað að beita hana grófu andlegu ofbeldi, og síðan líkamlegu ofbeldi. Þá hafi hann ítrekað talað um að taka hana af lífi og hún óttast það. Sagði æfingar valda áverkum Á meðal þess sem maðurinn sagði var að áverkar konunnar hafi meðal annars komið til vegna ótilgreindra æfinga, líklega í íþrótt eða álíka. Hún hins vegar útskýrði að þegar árásin átti sér stað hafi hún ekki ástundað umræddar æfingar í níu mánuði. Dómurinn mat framburð hennar sem trúverðugan og lagði hann til grundvallar. Þá mat dómurinn það sem tortryggilegt að maðurinn hafi ekki viljað útskýra sína hlið málsins fyrir dómi. Að auki þótti framburður hans í andstöðu við gögn málsins. „Þykir ekki varhugavert að álykta að frásögn ákærða hjá lögreglu teljist í heild sinni ótrúverðug,“ segir í dómnum. Líkt og áður segir hlaut maðurinn skilorðsbundinn dóm, nánar tiltekið fimm mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára. Þá er honum gert að greiða konunni 800 þúsund krónur, og þarf jafnframt að greiða þrjár milljónir í sakarkostnað.
Dómsmál Heimilisofbeldi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira