Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Jón Þór Stefánsson skrifar 13. júlí 2026 13:10 Maðurinn og konan hittust í miðbænum áður en umrædd atvik áttu sér stað. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að nauðga konu. Í ákæru segir að þau hafi hafið samræði með beggja vilja, en hann svo farið að beita hana ofbeldi meðan hún reyndi að fá hann til að hætta.
Atvikin sem málið varðar áttu sér stað að nóttu til í maí 2022. Manninum, sem heitir Finnbogi Þór Gunnarsson, var gefið að sök að beita konuna ofbeldi og ólögmætri nauðung eftir að þau hafi byrjað að hafa samræði með beggja vilja, til þess að halda samræðinu áfram. Hann neitaði sök. Í ákæru segir að hann hafi tekið um háls konunnar og þrengt að meðan hún reyndi að fá hann til að hætta, meðal ananrs með því að slá í hann. Maðurinn hafi hins vegar slegið konuna ítrekað í lærið, hrækt í andlit hennar, slegið hana utan undir, rifið í hár hennar og sett getnaðarlim sinn í endaþarm hennar. Fyrir vikið hlaut konan ýmsa áverka um líkamann. Kynntust á stefnumótaforriti Finnbogi og konan kynntust á stefnumótaforriti og höfðu hist einu sinni áður fyrir umrædda nótt. Þeim bar saman um að í fyrra skiptið sem þau hittust hafi þau stundað kynlíf og bæði verið sátt við það. Að sögn Finnboga voru atvikin svipuð í bæði skiptin sem þau hittust, nema í seinna skiptið hafi hann beitt hana hálstaki en ekki í það fyrra. Hann sagði hana hafa viljað það. Umrædda maínótt hafi þau hist í miðbæ Reykjavíkur og ákveðið að fara heim til hennar að stunda kynlíf. Bæði munu hafa verið nokkuð drukkin. Þrátt fyrir það sögðust bæði hafa verið ágætu ástandi og muna vel eftir atvikum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Að sögn hennar hafi samræði þeirra verið eðlilegt til að byrja með, en skyndilega hafi hann beitt hana ofbeldi meðan hann lá ofan á henni. Það gerði hann með því að taka hana föstu kyrkingartaki sem hún taldi að hefði varað í um fjörutíu sekúndur, og varð til þess að hún átti erfitt með andardrátt, og ekki komið upp orði. Svo hafi hann beitt hinu ofbeldinu, líkt og greinir í ákæru. Framburður hennar á Neyðarmóttökunni, hjá lögreglu, og fyrir dómi mun hafa verið sambærilegur. Framburður Finnboga var einnig skýr og stöðugur frá upphafi. Þó var það mat dómsins að framburður hans ætti síður stoð í gögnum málsins en hennar, og var hennar framburður því lagður til grundvallar. Ekki samþykki fyrir ofbeldinu Í dómnum segir að Finnboga hafi átt að vera ljóst að samþykki konunnar næði „ekki til þeirrar ofbeldisfullu háttsemi sem hann beitti hana. Engin gögn benda til þess að hann hafi mátt ætla að samþykki lægi fyrir.“ Líkt og áður segir var Finnbogi dæmdur í tveggja ára fangelsi. Þá er honum gert að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur, og annan sakarkostnað upp á tæplega fjórar milljónir króna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira