Rekja gróðureldana á Tenerife til vísvitandi íkveikju Lögreglan á Tenerife telur að vísvitandi íkveikja hafi komið stjórnlausum gróðureldum sem geisa enn á eyjunni af stað. Þúsundir manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín og dvalarstaði vegna eldanna. 22.8.2023 08:43
Fleiri hundraða enn saknað eftir gróðureldana á Maui Sveitarstjóri á Maui á Havaíeyjum segir að 850 manns sé enn saknað eftir gróðureldana sem ollu hörmungum á eyjunni í síðustu viku. Joe Biden Bandaríkjaforseti og eingkona hans ætla að kynna sér hamfarasvæðið í dag. 21.8.2023 15:32
Húsleit gerð hjá stuðningsfólki Rússa vegna stríðsvopna Þýskir saksóknarar greindu frá því að þeir hefðu gert húsleit hjá pari sem hefur staðið fyrir mótmælum gegn stuðningi þýskra stjórnvalda við Úkraínu í dag. Rannsóknin á parinu er sögð snúast um brot á lögum um framleiðslu og flutnings á stríðsvopnum. 21.8.2023 14:55
Bananaerfingi og bandamaður spillts forseta í aðra umferð Allt stefnir í að kosið verði á milli vinstrisinna og erfingja bananaveldis í annarri umferð forsetakosninga í Ekvador eftir að engum frambjóðanda tókst að tryggja sér hreinan meirihluta í kosningunum þar í gær. 21.8.2023 14:05
Herinn sendur til Bresku Kólumbíu vegna gróðurelda Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sagðist ætla að senda herinn til þess að aðstoða við baráttuna gegn miklum gróðureldum sem geisa í Bresku Kólumbíu. Neyðarástandi var lýst yfir í fylkinu og fleiri en 35.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. 21.8.2023 11:44
Hilary dynur á Kaliforníu með metúrkomu Meira en ársúrkoma er þegar fallin á sumum stöðum þar sem hitabeltislægðin Hilary fer yfir í sunnanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum. Neyðarástandi var lýst yfir á svæðinu en mikil hætta er talin á lífshættilegum skyndiflóðum og aurskriðum. 21.8.2023 10:32
Saka Sáda um að skjóta hundruð manna á landamærunum Mannréttindasamtök halda því fram að landamæraverðir í Sádi-Arabíu hafi drepið hundruð óvopnaðra eþíópískra farandverkamanna með vélbyssum og sprengjuvörpum á landamærunum að Jemen undanfarin ár. Sameinuðu þjóðirnar hafa gengið á Sáda vegna frétta af slíkum árásum. 21.8.2023 09:24
Reyna að leggja stein í götu nýkjörins forseta Gvatemala Bernardo Arévalo, frjálslyndur utangarðsmaður í stjórnmálum, fór með afgerandi sigur af hólmi i forsetakosningum í Gvatemala í gær. Óljóst er þó hvort að Arévalo fái að taka við embættinu þar sem ríkissaksóknari landsins reynir nú að lýsa stjórnmálaflokk hans ólöglegan. 21.8.2023 08:50
Telja vatnið á Akranesi öruggt þrátt fyrir óbragð Engar skaðlegar örverur fundust í sýnum sem voru tekin úr drykkjarvatni á Akranesi í gær eftir að íbúar kvörtuðu undan óbragði af því. Forstöðumaður hjá Veitum segir leit standa yfir að orsökum óbragðsins í lóni í nágrenni bæjarins. 18.8.2023 15:07
Fyrrverandi kanslari ákærður fyrir meinsæri Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, var ákærður fyrir að ljúga að þingnefnd sem rannsakaði hneykslismál sem felldi fyrstu ríkisstjórn hans. Fyrrverandi skrifstofustjóri Kurz er einnig ákærður í málinu. 18.8.2023 11:48