Geta séð fossinn Dynjanda í fyrsta sinn í klakaböndum Ísfirðingar og aðrir íbúar á norðanverðum Vestfjörðum, sem óku um Dýrafjarðargöng í gær, uppgötvuðu margir óvænt nýjan möguleika sem jarðgöngin skapa. Í fyrsta sinn verður mögulegt að aka um þjóðvegakerfið að fossinum Dynjanda um hávetur auk þess sem leiðin hefur styst verulega. 26.10.2020 11:21
Nýta hátækni úr Svartsengi í norskri metanólverksmiðju Norðmenn hyggjast nýta sér hátækni Carbon Recycling í Svartsengi til að reisa 28 milljarða króna verksmiðju í Norður-Noregi sem fangar útblástur frá kísilmálmvinnslu og breytir honum í umhverfisvænt eldsneyti. 25.10.2020 23:06
Flautuðu af gleði þegar þeir prófuðu göngin í fyrsta sinn Vestfirðingar flautuðu úr bílum sínum af gleði þegar Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra gaf fyrirmæli um að lyfta skyldi slánni við gangamunna Dýrafjarðarganga. Þegar þeir svo óku í gegn flautuðu þeir ennþá meira. 25.10.2020 21:22
„Krakkar! Þið megið fara af stað,“ sagði ráðherra og slánni var lyft „Krakkar! Þið megið fara af stað," sagði samgönguráðherra eftir að hafa gefið fyrirmæli um að Dýrafjarðargöng skyldu opnuð umferð. Löng bílalest beið beggja vegna og áætluðu Vegagerðarmenn á vettvangi að milli 250 og 260 bílar hefðu ekið í gegn á eftir rútunni. 25.10.2020 17:24
Landsstjórn Færeyja kynnir björgunarpakka fyrir flugið Jørgen Niclasen, fjármálaráðherra Færeyja, hefur kynnt sértækar aðgerðir landsstjórnarinnar til að bjarga flugstarfsemi eyjanna. Frumvarp um málið verður lagt fyrir Lögþingið á næstu dögum en ráðherrann segist hafa stuðning úr öllum flokkum við björgunarpakkann. 25.10.2020 08:08
Síðasti snjómokarinn og börn á Þingeyri opna Dýrafjarðargöng Grunnskólabörn á Þingeyri og Gunnar Gísli Sigurðsson, sem mokaði Hrafnseyrarheiði í síðasta sinn síðastliðið vor, verða þau fyrstu sem aka í gegnum Dýrafjarðargöng þegar þau verða opnuð á sunnudag. Athöfninni verður útvarpað og streymt á netinu. 23.10.2020 22:23
Brún Krýsuvíkurbjargs sprungin og varasöm eftir jarðskjálftana Stórar bergfyllur hrundu úr Krýsuvíkurbjargi og nýjar sprungur opnuðust á bjargbrúninni í stóra jarðskjálftanum í fyrradag. Þá hefur virkni aukist í Engjahver við Krýsuvík og sterka brennisteinslykt leggur frá Grænavatni. 22.10.2020 21:31
Fylgjast með hvort kvika sé á flæði undir Krýsuvík Reykjanesskaginn heldur áfram að nötra og hafa sjö skjálftar í dag mælst milli þrjú og fjögur stig. Jarðvísindamenn sjá þó skýr merki þess að dregið hafi úr hrinunni eftir stóra skjálftann í gær. 21.10.2020 21:31
Krýsuvík næst upptökum og þar fór fólkið hlaupandi út Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins laust fyrir klukkan tvö í dag mældist 5,6 stig og var með upptök skammt vestur af Krýsuvík. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast en í Krýsuvík hljóp fólk út og þar hrundi úr fjöllum. 20.10.2020 21:52
Mega nota afturbrennara á orustuþotum í flugtaki Landhelgisgæslan hefur mælst til þess við bandarísku flugsveitina, sem stödd er hér á landi, að afturbrennarar á herþotum séu eingöngu notaðir í undantekningartilvikum þegar þær eru í loftinu. Herflugmönnunum er þó heimilt að nota afturbrennara í flugtaki. 19.10.2020 22:30
Fullkomnunarárátta: Óánægð með okkur eða aðra, klárum ekki, sköpum togstreitu og fleira Áskorun