Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull Brynhildur Pálsdóttir hönnuður segir tímabært að gert sé meira úr íslensku ullinni. Ullin sé gull Íslendinga. Það eigi að varðveita þennan menningararf betur. Hana dreymir um að á Íslandi verði opnað rannsóknarsetur tileinkað íslensku ullinni og textílframleiðslu. 6.4.2025 10:31
Veiðigjöld, tollahækkanir og skipulagður ritstuldur í Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. 6.4.2025 09:42
Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Þúsundir mótmælenda sem eru óánægðir með það hvernig Trump stýrir Bandaríkjunum söfnuðust saman á um 1.200 skipulögðum mótmælum í 50 ríkjum Bandaríkjanna í gær. Auk þess voru skipulögð mótmæli í bæði Kanada og Mexíkó og í London, París og Berlín í Evrópu. 6.4.2025 08:40
Dælubílarnir kallaðir út en húsráðandi náði að slökkva eldinn Mikið álag var síðasta sólarhringinn á sjúkrabílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Í tilkynningu frá þeim á Facebook kemur fram að næturvaktin hafi farið í 53 sjúkraflutninga og dagvaktin í 34. „Þetta er svolítið sérstakt,“ segir í tilkynningunni á Facebook. 6.4.2025 07:52
Söfnuðu 140 milljónum fyrir Kvennaathvarfið Alls söfnuðust tæplega 140 milljónir fyrir Kvennaathvarfið í söfnunarþættinum Á allra vörum sem var sýndur á RÚV í gær. Markmið átaksins var að styðja við uppbyggingu nýs Kvennaathvarfs en Kvennaathvarfið er nú með í byggingu nýtt húsnæði. 6.4.2025 07:39
Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Í dag má búast við sunnan og suðaustan fimm til 13 metrum á sekúndu. Léttskýjað verður á Norðaustur- og Austurlandi, en súld eða dálítil rigning öðru hverju sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu fjögur til 14 stig, en að 18 stigum á morgun, hlýjast verður fyrir norðan. 6.4.2025 07:30
Beitti barefli í líkamsárás Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í Breiðholti og Kópavogi í nótt. Einn var handtekinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í nótt kölluð út á forgangi vegna líkamsárásar þar sem beitt var barefli. Ekki er tilgreind staðsetning í dagbók lögreglunnar en Stöð 3 svaraði útkallinu en þau sjá um Breiðholt og Kópavog. 6.4.2025 07:22
Vill að flugumferð verði beint frá loftrými kirkjunnar á meðan þau flytja Bach Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju í Vesturbæ Reykjavíkur, hefur óskað þess við Samgöngustofu og Isavia að flugvélum og þyrlum verði beint frá loftrými kirkjunnar síðdegis á morgun á meðan haldnir verða tónleikar í kirkjunni. Skúli segir þurfa að fara fram samtal í samfélaginu um flugumferð og hljóðmengun hennar vegna. 5.4.2025 14:33
Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju Mykhailo Viktorovych Polyakov, bandarískur ferðamaður, var í vikunni handtekinn fyrir að fara upp á strönd eyjunnar North Sentinel í Indlandshafi. Það gerði hann til að hitta Sentinelese-ættbálkinn sem hefur búið þar um þúsundir ára án samskipta við annað fólk. Talið er að ættbálkurinn telji um 150 manns. 5.4.2025 13:19
Óttast að efnið sé þegar komið í dreifingu á Íslandi Svala Jóhannesdóttir, formaður Matthildarsamtakanna, samtaka um skaðaminnkun, hefur miklar áhyggjur af því að tollurinn hafi lagt hald á töflur sem innihalda nitazene. Hún óttast að efnið gæti þegar verið komið í dreifingu eða að það styttist í það. Nitazene er sterkur ólöglegur ópíóíði sem getur verið margfalt sterkara en aðrir ópíóíðar. 5.4.2025 11:30