Nú hægt að sækja um vegabréf á netinu Forsjáraðilar þurfa ekki lengur að mæta báðir til sýslumanns til að sækja um vegabréf fyrir börn sín. Vegabréfsumsóknir og greiðsla fyrir þau eru nú á netinu. Eftir að umsókn er lokið er svo hægt að bóka tíma í myndatöku, eða mæta. 18.10.2023 10:10
Hvetur forseta til að kalla saman þing sem fyrst Donald Tusk hvetur forseta Póllands til að kalla saman þing sem fyrst svo hægt sé að greiða atkvæði þar um nýjan forsætisráðherra. Stjórnarviðræður þurfa að fara fram í kjölfar kosninga um helgina þar sem núverandi ríkisstjórnarmeirihluti var felldur. 18.10.2023 09:04
„Ég er pabbinn sem var óléttur“ Gabríel Brim er trans maður sem eignaðist barn. Hann segir það hafa komið skemmtilega á óvart hversu vel fæðingin og meðgangan hafi gengið, og hversu vel tekið var á móti honum í heilbrigðiskerfinu. Hann segir foreldrahlutverkið hafa breytt honum og hann vilji ekkert frekar en að vera dóttur sinni góð fyrirmynd. 17.10.2023 08:01
Ríkisstjórnin verði líka að fordæma það sem gerist á Gasa Mikill fjöldi safnaðist saman á Austurvelli í dag á samstöðufundi með Palestínu. Yfirskrift viðburðarins á Facebook var „Stöðvið fjöldamorð Ísraelshers“. 15.10.2023 16:56
Níunda gagnaver atNorth rís í Danmörku Nýtt gagnaver atNorth rís í Danmörku. Varmi frá gagnaverinu verður nýttur til að hita fjölda heimila á Kaupmannahafnarsvæðinu. Gagnaverið verður níunda gagnaver atNorth, en með þessari viðbót verður fyrirtækið með starfsemi í fjórum af Norðurlöndunum fimm. 15.10.2023 15:31
Elísa og Elís eiga von á sínu fyrsta barni Elísa og Elís eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári. Parið hefur verið trúlofað frá því um jólin 2021. 15.10.2023 14:51
Frekari sala í Íslandsbanka geti ekki farið fram með Sjálfstæðisflokk í forystu Formenn Viðreisnar og Framsóknarflokks tókust á um efnahagsmálin og stöðu ríkisstjórnarinnar í Sprengisandi í morgun. Þorgerður Katrín vill að Vinstri græn eða Framsókn sjái um áframhaldandi sölu hlut ríkisins í Íslandsbanka. 15.10.2023 12:25
Tillögu um að tryggja rétt frumbyggja í stjórnarskrá hafnað í Ástralíu Tillögu um nýja þingnefnd sem átti að ráðleggja þingi um málefni frumbyggja var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í Ástralíu í gær. Leiðtogar frumbyggja kalla eftir vikulangri þögn og íhugun. Frumbyggjar hafa búið í Ástralíu í 60 þúsund ár. 15.10.2023 10:36
Sex til níutíu ára tefla í Rimaskóla í dag Íslandsmót skákfélaga fer fram um helgina. 300 manns tefla í Rimaskóla. Allt frá sex ára upp í 90 ára. Mótinu lýkur í dag. 15.10.2023 09:53
Samfylkingin ætli ekki „að sóa tíma í einhvern pólitískan æsing“ Formaður Samfylkingarinnar segir flokkinn tilbúinn í verkefni vetursins. Kjarapakki þeirra sé skýr. Mikilvægt sé að horfa á aðalatriðin og hlusta á fólkið í landinu. Á sama tíma eigi Samfylkingin ekki að gleyma sér í góðum niðurstöðum skoðanakannanna. 14.10.2023 16:44