Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Lægð stödd fyrir vestan okkur og úrkomusvæði frá henni fer yfir landið í dag með sunnan strekkingi. Í hugleiðingum veðurfræðings spáir mjög hvössum vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og hefur verið gefin út gul viðvörun vegna þess. Viðvörunin er í gildi frá klukkan átta til 15 í dag. Hiti verður líklega á bilinu 8 til 16 stig og verður hlýjast norðaustantil. 4.9.2024 07:23
„Ég ætla ekki að fara með þér niður í bæ ef þú ert með hníf“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir mikilvægt að skólasamfélag, heimilin og allt samfélagið komi að þjóðarátaki gegn vopnaburði og ofbeldi meðal ungmenna. Jafningjastuðningu sé einnig mikilvægur. Besta forvörnin fyrir ungmennin sé þó alltaf að ganga ekki með vopn á sér. Afleiðingarnar af því geti verið svo alvarlegar. 3.9.2024 15:01
Börnin sem borðuðu kannabis-bangsana enn á spítala Börnin sem flutt voru á slysadeild eftir að hafa borðað gúmmíbangsa með THC eða kannabis eru enn á spítala en ekki talin í lífshættu. Börnin eru yngri en tíu ára gömul. Valtýr Stefánsson Thors yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir þau vita hvernig börnin komust í bangsana. Hann á von á því að börnin verði útskrifuð fljótlega. 3.9.2024 14:34
Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. 3.9.2024 10:58
Í lífshættu sextán ára en hefur öðlast nýtt líf með þyngdarstjórnunarlyfjum Sveinn Rúnar Sveinsson er með sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm. Sextán ára gamall var hann orðinn 140 kíló og fékk að heyra að ef hann héldi áfram á sömu braut myndi hann ekki lifa fram á fullorðinsár. Stuttu seinna byrjaði hann á þyngdarstjórnunarlyfinu Saxenda. 3.9.2024 08:59
Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. 2.9.2024 10:10
Sjálfstæðismenn óánægðir með það sem flokkurinn „hefur þurft að kyngja“ Diljá Mist Einarsdóttir og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja stöðu Sjálfstæðisflokksins alvarlega og að það verði að bregðast við. Þau segja að á flokksráðsfundi hafi komið fram skýr krafa um að sjálfstæðisstefnan verði fyrirferðarmeiri. Samstarf við vinstriflokka sé fullreynt en þau gangi óbundin til kosninga. 2.9.2024 09:21
Blendnar tilfinningar fyrir langþráð ferðalag Tinna Rúnarsdóttir heldur á þriðjudag út til Srí Lanka til að hitta fjölskyldu sína þar. Tinna er ættleidd frá Srí Lanka árið 1984 en kom til landsins í upphafi árs 1985. Í vor ákvað hún að hefja leit að blóðforeldrum sínum á Srí Lanka. Stuttu eftir að hún hóf leitina komst hún að því að báðir foreldrar hennar væru látnir. Móðir hennar hafði verið myrt 2002 en faðir hennar lést stuttu eftir fæðingu hennar. 1.9.2024 10:01
Tók hvolpinn til baka vegna andlegra veikinda kaupanda Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa segir hundaræktanda hafi svipt kaupsamningi með ólögmætum hætti þegar hann fjarlægði hvolp af heimili konu sem hafði keypt af honum hvolp. Ræktandinn fjarlægði hvolpinn vegna andlegra veikinda kaupanda en endurgreiddi kaupin um leið. Kaupandinn kærði það til kærunefndarinnar og krafðist þess að ræktandinn myndi skila hvolpinum. 30.8.2024 15:56
Efna til þjóðaratkvæðis um besta nammið Krambúðin efnir til þjóðaratkvæðis um besta nammið. Leikurinn felur í sér kosningu á besta namminu í fjórum algengum aðstæðum í íslenskri nammi-menningu. Það eru sakbitna sælan, sumarbústaðurinn, stefnumótið og bragðarefurinn. 30.8.2024 13:53