Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. 19.8.2026 14:41
Kanye treður upp í Rússlandi Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram. 19.8.2026 13:40
Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Fyrir tæpum þrjátíu árum tók Grensáskirkja nýtt orgel í notkun og hefur gamla orgelið síðan þá nýst í kennslu. Söfnuður kirkjunnar ákvað svo í vetur að færa Hallgrímskirkju í Saurbæ gamla orgelið. Um páskana var orgelið tekið í notkun í Saurbæ og síðasta sunnudag var haldin sameiginleg mess safnaðanna þar sem gjöfinni var formlega fylgt úr hlaði. 19.8.2026 12:01
„Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Auður Helgadóttir Möller greindist með ristilkrabbamein í fyrra, aðeins 47 ára gömul. Hún taldi sig lausa við meinið eftir aðgerð en þá kom annað æxli í ljós. Til að losna við það þurfti að taka stóran part af ristlinum og allan endaþarminn og er Auður því með varanlegt stóma. Hún lætur þó ekki deigan síga, talar opinskátt um ferilið og Stómu litlu, eins og hún kallar stómað sitt. 19.8.2026 10:31
Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Jóhann Kristófer Stefánsson, tónlistarmaður og leikskáld, og Nadía Áróra Jonkers, fyrirsæta og starfsmaður Spútnik, eru sjóðheitt nýtt par. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur parið verið að slá sér upp síðustu mánuði. 19.8.2026 09:26
Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Atli Geir Grétarsson leikmyndahönnuður er langefstur á lista yfir tekjuhæstu listamenn landsins. Næst á eftir honum koma söngkonan Sigga Beinteinsdóttir og leikarinn Örn Árnason. Ofarlega á blaði eru einnig leikarinn Ólafur Darri, leikstjórinn Baltasar Kormákur, Jökull í Kaleo og skemmtikrafturinn Steindi jr. 18.8.2026 15:59
Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir er áfram tekjuhæst íslenskra áhrifavalda. Á eftir henni koma Snorri Rafnsson, betur þekktur sem Vargurinn; Birgitta Líf Björnsdóttir og Ólafur Jóhann Steinsson, TikTok-stjarna og útvarpsmaður. 18.8.2026 13:57
Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Snorri Birgir Snorrason matreiðslumeistari og Petra Dís Magnúsdóttir, stofnandi vefhönnunarfyrirtækisins Split Web Design, hafa sett 215 fermetra raðhús sitt að Kjalarlandi 33 í Fossvoginum á sölu. Ýmissa grasa kennir í húsinu og er ásett verð þess 192,5 milljónir. 18.8.2026 10:59
Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Leikarinn Johnny Depp er í viðræðum við Disney um að snúa aftur sem sjóræninginn Jack Sparrow í kvikmyndaseríuna Sjóræningjar Karabíska hafsins. Depp lék karakterinn síðast í fimmtu mynd seríunnar árið 2017. Disney skar svo á tengsl við leikarann í kjölfar þess að leikkonan Amber Heard sakaði hann um heimilisofbeldi. 18.8.2026 10:01
Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Egill Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóri og athafnakonan Kittý Johansen hafa sett einbýlishús sitt að Melhæð 5 í Garðabæ á sölu. Eignin er 321 fermetri að stærð og ásett verð hennar 249,5 milljónir króna. 17.8.2026 15:46
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent