Kærði gæsluvarðhaldsúrskurð vegna manndráps til Landsréttar Maður sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar kærði áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð til Landsréttar á mánudag. Landsréttur hefur ekki enn tekið málið fyrir. 6.6.2024 10:31
Hafnarfjarðarbær semur við HS orku um rannsóknar- og nýtingarrétt í Krýsuvík Hafnarfjarðarbær og HS Orka hafa undirritað samkomulag um rannsóknir og nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík til vinnslu á heitu vatni, ferskvatni og til raforkuframleiðslu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi á heitu vatni í Hafnarfirði og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að mæta vaxandi raforkuþörf í landinu. Áætlað er að nýtt jarðvarmaver í Krýsuvík gæti hitað upp allt að 50.000 manna byggð. 6.6.2024 08:47
Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Vilhjálmur Hilmarsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Visku – stéttarfélags. Um er að ræða nýtt stöðugildi en verkefni Vilhjálms verða meðal annars að sinna greiningum á sviði efnahags- og vinnumarkaðsmála, skrifa umsagnir um lagafrumvörp og leiða kjaraviðræður ásamt lögmanni og formanni Visku. 6.6.2024 08:07
Notkun á TikTok og Snapchat dregst saman hjá níu til tólf ára börnum Hlutfall barna á aldrinum 9 til 12 ára sem nota samfélagsmiðlana TikTok og Snapchat lækkar töluvert frá árinu 2021. Youtube er algengasti samfélagsmiðillinn sem nemendur í 4. til 7. bekk nota en Google og Roblox koma þar á eftir. 99 prósent framhaldsskólanema eiga sinn eigin farsíma. 6.6.2024 08:01
Appelsínugular og gular viðvaranir enn í gildi Veðrið sem gengið hefur yfir landið er enn að setja strik í reikninginn hjá mörgum en gular viðvaranir eru í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra, á Norðurlandi eystra, Austfjörðum, Suðausturlandi og á miðhálendinu. Enn á síðan að bæta í vindinn og síðdegis verða komnar appelsínugular viðvaranir á Vestfjörðum um tíma og á Norðurlandi vestra þar sem spáin gerir ráð fyrir hvassviðri með rigningu, slyddu eða snjókomu. Á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Breiðafirði taka gular viðvaranir gildi síðdegis til klukkan þrjú í nótt. 6.6.2024 07:28
Búinn að vera með suð í eyranu í rúm þrjátíu ár Maður sem hefur glímt við þrálátt hátíðnihljóð í áratugi hefur leitað lausna við vandamálinu um allan heim. Hann segir það hafa mikil áhrif á lífsgæði og þegar hljóðið sé sem verst verði hann líkamlega veikur. 3.6.2024 17:02
Vegum lokað vegna veðurs Hringveginum um Öxnadalsheiði auk Mývatns- og Möðrudalsöræfa verður lokað í kvöld vegna veðurs. Eins er líklegt að gripið verði til lokana á Suðausturlandi. Gular og appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi um um allt land. 3.6.2024 13:31
Von á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku Lögreglan á Vestfjörðum segist enn engu nær varðandi dánarorsök sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi á Bolungarvík í síðustu viku. Von er á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku. 3.6.2024 11:27
Blákaldur veruleiki blasir við Helgu Þórisdóttur Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar snýr aftur til vinnu á morgun eftir leyfi vegna forsetaframboðs. Hún segir framboðið hafa verið mikið og lærdómsríkt ævintýri, en á sama tíma sé ljóst að erindi hennar hafi ekki náð í gegn. 3.6.2024 10:37
„Allt of snemmt að afskrifa Grindavík“ Formaður bæjarráðs í Grindavík segir stöðuna vegna eldgossins sem hófst í gær mun betri en í fyrstu leit út fyrir. Ljóst sé að varnargarðar hafi bjargað byggðinni oftar en einu sinni. 30.5.2024 17:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent