Eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki líklega í sumar Prófessor í eldfjallafræði telur líklegt að eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki í sumar. Sennilegast muni gosið sem nú stendur yfir lognast út af á næstu dögum, en þó sé mögulegt að það malli áfram jafnvel í einhverjar vikur líkt og síðasta gos. 30.5.2024 12:55
Setuverkfall í utanríkisráðuneytinu Setuverkfall stendur yfir í utanríkisráðuneytinu þar sem mótmælendur hafa komið sér fyrir í anddyri ráðuneytisins. Yfirskrift mótmælanna er aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda hvað varðar þjóðarmorð á Gaza. Mótmælandi segir stefnuna að trufla störf yfirvalda þar til þau bregðist við. 30.5.2024 11:00
Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Einn maður til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Öðrum einstaklingi hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en hefur áfram stöðu sakbornings í málinu. 27.5.2024 14:52
Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september í september, fer fram 26. til 28. júní. Dagbjört neitar sök í málinu en á meðal rannsóknargagna eru tveggja tíma mynd- og hljóðupptökur sem lögregla segir sýna hana pynta þann látna. 27.5.2024 12:42
„Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Prófessor í jarðeðlisfræði segir aukinn þrýsting í borholum HS veitna á Svartsengi í morgun bera þess merki um að jarðskorpan sé mjög nálægt því að bresta. Hann segir þá sem dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn á fimmtán mínútum. Grindavík sé ekki staður fyrir partýstand né börn. 21.5.2024 15:30
Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, og kærastinn hennar Jakob Fannar Hansen hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt í Kópavogi á sölu. Húsið var einnig á sölu fyrir tveimur árum en á þeim tíma hefur fasteignaverð þess hækkað um tæpar sjötíu milljónir. 21.5.2024 13:18
Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Ráðgjafi í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir mestu áskorunina í baráttunni vera þá að fá Baldur til að tala um sjálfan sig. Ráðgjafi Höllu Hrundar segir mögulega eitthvað til í því að það sé kalt á toppnum, en þau láti ekki neikvæða umræðu á sig fá heldur haldi sínu striki. 21.5.2024 11:39
Þolinmæði saminganefnda á þrotum Félagsmenn VM og Rafiðnaðarsambands Íslands hafa nú verið samningslausir í fjóra mánuði og segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, að þolinmæðin sé á þrotum. Komi til aðgerða af þeirra hálfu gæti það haft rafmagnsskort í för með sér. 20.5.2024 20:39
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar. 20.5.2024 18:09
Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Mikill viðbúnaður var við Vesturlandsveg skammt frá Kjalarnesi fyrir stundu. Veginum var lokað í báðar áttir og langar bílaraðir mynduðust. Sjúkrabílar og lögreglulið voru á staðnum auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til. 20.5.2024 12:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent