Stór hópur í lausu lofti eftir nýja skilgreiningu á kulnun Sálfræðingar hafa áhyggjur af því að ný og þrengri skilgreining Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar WHO á kulnun – um að hún geti eingöngu verið vinnutengd – verði til þess að fólk sem búið er að keyra streitukerfið sitt í þrot fái ekki viðurkenningu á vanda sínum og að það geti átt á hættu að fá ranga greiningu. Sálfræðingarnir benda á að það geti verið skaðlegt fyrir fólk í kulnun að fá meðferð við þunglyndi. Vont ástand geti orðið verra. 5.4.2023 16:28
Fjármálaáætlun dapurleg lesning frá sjónarhóli íslenskrar tungu Prófessor emeritus í íslenskri málfræði segir að fjármálaáætlun sé dapurleg lesning frá sjónarhóli íslenskunnar. Hún veki litlar vonir um að íslenskan komist út úr þeirri varnarstöðu sem hún sé nú í. Hann segir raunverulega hættu á því að hér á landi verði til samfélög fólks sem ekki tali íslensku. Það sé alvarlegt fyrir lýðræðið ef stórir hópar fólks geti ekki tekið þátt í samfélagslegri umræðu. 4.4.2023 13:22
Sýkingar aukist til muna í fjarveru neyslurýmis: „Þetta er grafalvarlegt mál“ Sýkingum hefur fjölgað mikið hjá notendum neyslurýmisins Ylju síðan úrræðinu var lokað fyrir tæpum mánuði. Hópur þeirra ekki skilað sér í lifrarbólgumeðferðir. Ein þeirra sem sótti oft þjónustu Ylju segir málið grafalvarlegt. Hún hafi miklar áhyggjur af vinum sínum og sérstaklega þeim sem karlkyns eru. 3.4.2023 20:00
Vilja að Ísland fari að fordæmi Bandaríkjamanna og heimili Naloxone í lausasölu Matvæla-og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur heimilað nefúðann Narcan nalaxone í lausasölu til að mæta þeirri alvarlegu ógn sem ópíóðafaraldurinn er. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum bindur vonir við að Ísland feti sömu slóð. Rauði krossinn dreifði á síðasta ári hátt í sex hundruð stykkjum af nefúðanum hér á landi. 3.4.2023 12:03
Dæmi um að foreldrar borgi hátt í milljón fyrir fermingarveislur Fermingarveislur í dag eru orðnar allt of umfangsmiklar og þær kosta of mikið. Þetta segir einstæð móðir sem nú stendur í fermingarundirbúningi. Dæmi séu um að foreldrar hafi borgað hátt í eina milljón króna fyrir fermingarveislu barna sinna. 30.3.2023 20:59
Finnst réttast að dómsmálaráðherra stígi til hliðar Stjórnarandstaðan íhugar nú hvaða skref verða stigin til að draga dómsmálaráðherra til ábyrgðar eftir að skrifstofa þingsins fjallaði um í minnisblaði að honum væri skylt að afhenda þinginu upplýsingar innan tiltekins frests í máli sem tengist veitingu ríkisborgararéttar. Þingflokksformaður Pírata finnst réttast að ráðherrann stígi til hliðar. 29.3.2023 12:10
Háskólarnir megi aldrei verða útungunarstöð fyrir atvinnulífið Hugvísindafólk er uggandi yfir áherslubreytingu háskólaráðherra sem vill að háskólarnir svari betur kalli atvinnulífsins. Forseti Mála- og menningardeildar Háskóla Íslands segir stefnuna vera í anda nýfrjálshyggju. Háskólarnir megi aldrei verða útungunarstöð fyrir atvinnulífið. 28.3.2023 19:30
Mánaðarleg greiðslubyrði gæti brátt hækkað um 30 þúsund krónur Mánaðargreiðslubyrði á 40 milljóna króna óverðtryggðu láni gæti hækkað um 30 þúsund krónur á einu bretti ef bankarnir hækka vexti í takt við 100 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Lánamarkaðurinn hefur tekið hröðum breytingum samhliða tólf stýrivaxtahækkunum í röð. 27.3.2023 22:01
Leikskólabörn rappa um Kjarval Krakkar á leikskólanum Kvistaborg fóru í hljóðver í dag til að taka upp frumsamið rapplag sem fjallar um listmálarann Jóhannes Kjarval. Krakkarnir sömdu textann sjálfir og máluðu málverk úti í náttúrunni að hætti myndlistarmannsins. 27.3.2023 20:00
Kemur til greina að lengja enn frekar fæðingarorlof Barnamálaráðherra boðar endurskoðun leikskólalaga og til greina komi að lengja fæðingarorlof. Foreldrar og börn mættu enn á ný í Ráðhús Reykjavíkur í dag til að pressa á borgarstjórn að leysa úr leikskólavandanum. 21.3.2023 19:01