

Ólafur Björn Sverrisson
Nýjustu greinar eftir höfund

Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hefur varað við enn verra veðri á morgun, heldur en gert var ráð fyrir í spá dagsins. Á norðanverðum Vestfjörðum má búast við ofsaveðri eða fárviðri og hviðum um og yfir 50 m/s.

Ríkissjórn Scholz er sprungin
Ríkissjórn Olaf Scholz Þýskalandskanslara er sprungin eftir að einn þriggja stjórnarflokkanna ákvað að segja skilið við ríkisstjórnina. Það gerðist í kjölfar þess að Scholz ákvað að reka fjármálaráðherrann Christian Lindner, leiðtoga Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem átti aðild að stjórninni.

Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti
Kamala Harris játaði ósigur í forsetakosningum Bandaríkjunum og þakkaði stuðningsfólki sínu í ávarpi í kvöld. Hún hringdi í Donald Trump næsta Bandaríkjaforseta og tjáði honum að hún muni sjá til þess að valdaskiptin verði friðsamleg.

Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa
Ríkisstjórn Olaf Scholz kanslara Þýskalands stendur mjög tæpt eftir að Scholz rak fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar í kvöld. Hann hefur tilkynnt að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu á fari fram á þingi í janúar.

Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp
Kamala Harris forsetaframbjóðandi demókrata, sem laut í lægra haldi gegn Donald Trump frambjóðanda repúblikana, er búin að ræða við þann síðarnefnda og játa ósigur. Hún sleppti því að ávarpa stuðningsmenn sína í nótt en hyggst gera það síðar í kvöld.

Andlát af völdum fíkniefna og lyfja aldrei verið fleiri
Árið 2023 voru lyfjatengd andlát alls 56 hér á landi og hafa aldrei verið fleiri, að því er fram kemur í tölum frá Landlæknisembættinu.

Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu
Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka mál níu mótmælenda á hendur ríkisins fyrir þann 8. nóvember næstkomandi. Mótmælendur hafa farið fram á skaðabætur vegna framgöngu lögreglu á mótmælum við Skuggasund þann 31. maí síðastliðinn. Nefnd um eftirlit með lögreglu taldi engar vísbendingar um ámælisverða háttsemi lögreglumanna.

Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir
Formaður Læknafélags Íslands segir að það virði sem læknar skili út í samfélagið, skili sér ekki til baka í launaumslaginu. Launin geti verið há, en þá liggi mjög mikið vinnuálag að baki.

Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín
Landsréttur féllst í dag á að Steinþór Einarsson, sem héraðsdómur hafði dæmt í átta ára fangelsi fyrir manndráp, hefði verið heimilt að beita neyðarvörn þegar hann afstýrði stórhættulegri áras af hálfu hins látna. Þótt árás Steinþórs hafi verið „augsýnilega hættulegri“ var talið að Steinþór hafi verið „svo skelfdur eða forviða“ að neyðarvörnin var talin heimil.

Máttu ekki selja eldaðan mat
Veitingastað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu í vikunni þegar í ljós kom að eigendur staðarins höfðu ekki tilskilin leyfi til þess að selja eldaðan mat.