Íþróttafréttamaður

Runólfur Trausti Þórhallsson

Runólfur er íþróttafréttamaður á Vísi og Stöð 2 Sport.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þakkaði sjálf­boða­liðum og minnti á mikil­vægi í­þrótta

Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands og varaþingmaður Samfylkingarinnar og hélt sína fyrstu ræðu á Alþingi fyrir helgi. Hann nýtti tækifærið og þakkaði öllum þeim sem hafa starfað sem sjálfboðaliðar í kringum íþróttir og minnti þá landann á gríðarlegt mikilvægi íþrótta í samfélaginu.

Frá­bær byrjun dugði ekki til og Gunn­laugur Árni úr leik

Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur í GKG, tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi í dag. Gunnlaugur Árni fór frábærlega af stað og sat um tíma í 2. sæti. Sú spilamennska entist þó ekki út daginn og hann er úr leik.

Ómar Ingi hélt upp á fram­lengingu á samningi með stór­leik

Ómari Ingi Magnússon hefur framlengt samning sinn við þýska stórliðið Magdeburg til ársins 2028. Hann hélt upp á því með stórleik og ákvað Gísli Þorgeir Kristjánsson að gera slíkt hið sama. Þeir voru langt í frá einu Íslendingarnir sem létu að sér kveða í kvöld.

Hin­selwood hetja Brig­hton gegn meisturunum

Brighton & Hove Albion kom í tvígang til baka gegn nýkrýndum Englandsmeisturum Liverpool og vann á endanum 3-2 sigur þökk sé sigurmarki hins tvítuga Jack Hinselwood þegar fimm mínútur lifðu leiks.

Kristian Nökkvi fær nýjan þjálfara hjá Ajax

Eftir hörmulegan endi á nýafstöðnu tímabili hefur Francesco Farioli ákveðið að segja starfi sínu lausu sem þjálfari hollenska knattspyrnuliðsins Ajax. Kristian Nökkvi Hlynsson mun því þurfa að sanna sig fyrir nýjum þjálfara þegar hann mætir til æfinga að sumarfríi loknu.

Cunha að ganga í raðir Man United

Það virðist næsta öruggt að brasilíski framherjinn Matheus Cunha muni ganga í raðir Manchester United þegar tímabilinu lýkur. Talið er að alls hafi fimm lið verið með hann á óskalista sínum en Cunha er harður á því að spila fyrir Man United.

Sjá meira