Hákon Arnar og félagar slógu lærisveina Mourinho úr Meistaradeild Evrópu Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille þegar liðið sótti José Mourinho og lærisveina hans í Fenerbahçe út í forkeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu. Þá var Elías Rafn Ólafsson í marki Midtjylland þegar liðið sló Ferencvárosi frá Ungverjalandi úr leik. 13.8.2024 20:12
De Ligt og Mazraoui endanlega staðfestir sem leikmenn Man Utd Matthijs de Ligt er formlega genginn í raðir Manchester United. Félagaskiptin hafa legið lengi í loftinu en enska knattspyrnufélagið staðfesti þau loks nú rétt í þessu. Sömu sögu er að segja af bakverðinum Noussair Mazraoui. Báðir koma þeir frá Bayern München. 13.8.2024 19:22
Palmer nú samningsbundinn Chelsea næstu níu árin Cole Palmer var ein af stjörnum ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð þegar hann var ljósið í myrkrinu hjá Chelsea. Lundúnafélagið hefur nú verðlaunað Palmer með því að framlengja samning hans til tveggja ára ásamt því að gefa honum veglega launahækkun. 13.8.2024 18:31
Kaupir hlut í PSG eftir sigur Bandaríkjanna í París Nýkrýndur Ólympíumeistari í körfubolta, Kevin Durant, virðist hafa líkað veran í París svo vel að hann hefur ákveðið að kaupa minnihluta í knattspyrnuliðinu París Saint-Germain. 13.8.2024 07:01
Dagskráin í dag: Hollywood-liðið frá Wales í Stálborginni og hafnabolti Það eru tvær beinar útsendingar á dagskrá rása Stöðvar 2 Sport í dag. 13.8.2024 06:00
Telur Guardiola og Ancelotti bestu þjálfara Evrópu um þessar mundir Á íþróttavefnum ESPN má finna áhugaverðan lista um þessar mundir. Þar er farið yfir 50 bestu karlkyns knattspyrnuþjálfara Evrópu. Listinn er heldur áhugaverður en fjöldi manna sem ekki eru í starfi um þessar mundir á honum þó svo að efstu sætin séu eftir bókinni. 12.8.2024 23:31
Brentford fær Carvalho frá Liverpool: „Bætir þessu extra við leikmannahópinn“ Fabio Carvalho hefur verið tilkynntur sem nýr leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Brentford. Þessi 21 árs gamli sóknarþenkjandi miðjumaður kemur frá Liverpool og kostar Brentford 27,5 milljónir sterlingspunda eða nærri fimm milljarða íslenskra króna. 12.8.2024 23:00
Gætu sprungið út: Framherjinn sem skipti Arsenal út fyrir Man Utd og nokkrir til viðbótar Á vef breska ríkisútvarpsins má finna lista yfir leikmenn sem gætu sprungið út í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð. Færa má rök fyrir því að einn þeirra sé það nú þegar enda var hann í landsliðshópi Englands á EM sem fram fór fyrr í sumar. 12.8.2024 22:31
Daley hættur að dýfa sér í sundlaugar Eftir sína fimmtu Ólympíuleika, þar sem hann nældi sér í silfur, hefur Tom Daley ákveðið að hætta að stinga sér til sunds. Frá þessu er greint á vef Sky Sports. 12.8.2024 21:30
Helgi Fróði á leið til Hollands Helgi Fróði Ingason, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu, er á leið til Hollands og mun því ekki klára tímabilið með Stjörnunni. 12.8.2024 20:30