Geimfari fangaði það þegar eining geimstöðvarinnar brann upp í gufuhvolfinu Geimfarinn Thomas Pesquet birti í vikunni myndband sem hann tók af því þegar gömul eining Alþjóðlegu geimstöðvarinnar var látin brenna upp í gufuhvolfi jarðarinnar. Pesquet lýsti því sem flugeldasýningu. 5.8.2021 09:44
Klassíkin: Grand Theft Auto - Vice City Elstu menn muna þá daga á árum áður, þegar heimurinn og við sjálf vorum saklausari en í dag, þegar Grand Theft Auto leikir komu út með minna en tuttugu ára bili. 5.8.2021 08:46
Mexíkóar ætla að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum Ríkisstjórn Mexíkó ætlar að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum vegna þess hve mörg skotvopn berast ólöglega frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Lögsóknin beinist ekki gegn yfirvöldum Bandaríkjanna. 4.8.2021 16:51
SpaceX skýtur þeim á braut um jörðu og Netflix fangar ævintýrið á filmu SpaceX ætlar að skjóta hópi almennra borgara á braut um jörðu í næsta mánuði og verður geimskotinu og aðdraganda þess gerð skil í heimildaþáttum Netflix. Forsvarsmenn streymisveitunnar segja þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið sýni heimildaþætti „nærri því í rauntíma“. 4.8.2021 15:30
Einni og hálfri milljón manna skipað að halda sig heima vegna nítján smitaðra Íbúum borgarinnar Zhangjiajie í Kína hefur verið meinað að yfirgefa heimili sín vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Um 1,5 milljón manna búa í borginni sem er einni vinsæll ferðamannastaður. 4.8.2021 14:45
Methagnaður hjá Sony Sony hagnaðist um 2,57 milljarða dala á síðasta ársfjórðungi sem er aukning um 26 prósent milli ára og hæsti hagnaður fyrirtækisins á þessum ársfjórðungi. Velgengni fyrirtækisins er að miklu leyti rakin til faralds nýju kórónuveirunnar og útgáfu PlayStation 5 leikjatölvanna. 4.8.2021 13:29
Reyndu að myrða varnarmálaráðherrann og heita fleiri árásum á leiðtoga Talibanar gerðu í gær bíræfna tilraun til að ráða varnarmálaráðherra Afganistans af dögum og heita frekari árásum á leiðtoga ríkisstjórnar landsins. Bismillah Khan Mohammadi, ráðherrann, var ekki heima og verðir fluttu fjölskyldu hans á brott. 4.8.2021 11:01
Ræningjarnir yfirgáfu skipið Vopnaðir menn sem fóru um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Óman í gær, yfirgáfu skipið Sjóher Bretlands tilkynnti þetta í morgun og var skipinu siglt í átt að Óman skömmu seinna. 4.8.2021 10:10
Geimskoti Starliner frestað þrisvar sinnum á einni viku Geimskoti geimfars Boeing, Starliner, hefur verið frestað enn eina ferðina og það þrisvar sinnum á einni viku. Geimskotinu var frestað í gær þegar ákveðinn galli kom upp og stóð til að gera aðra tilraun í dag. Í nótt var einnig hætt við hana og Starliner fjarlægt af skotpalli. 4.8.2021 09:28
Vopnaðir menn fóru um borð í olíuflutningaskip á Persaflóa Sjóher Bretlands tilkynnti í dag að olíuflutningaskipi hafi líklegast verið rænt undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna í dag. Hópur vopnaðra manna eru sagðir hafa farið um borð í skipið Asphalt Princess. 3.8.2021 16:50
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent