Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. september 2026 08:54 Karl G. Kristinnsson, prófessor emeritus við sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. vísir/einar Prófessor emeritus við sýkla- og veirufræðideild Landspítalans segir það geta verið lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur með réttum hætti við matseld. Mikilvægt sé að elda rækjurnar nægilega og nálgast eigi verkefnið líkt og þegar um kjúkling er að ræða. „
Þetta er veruleg áhætta fyrir Ísland sem er með mjög lítið af sýklalyfjaónæmi í umhverfinu eða í mönnum, það er að segja af þessum mjög sýklalyfjaónæmu bakteríum. Þá er þetta virkilega leið sem getur skemmt fyrir okkur ef fólk er að smitast. Það náttúrulega veit ekkert af því ef það smitast af mjög alvarlegum bakteríum því að þær gefa engin einkenni nema þær valdi einhvern tímann sýkingu síðar.“ Þetta segir Karl G. Kristinsson, prófessor emeritus við sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, í samtali við Bítið í morgun. „Þá ætti þetta að vera nokkuð öruggt“ Karl segist hafa staldrað við þegar hann tók eftir því að innflutningur á risarækju frá Suðaustur-Asíu hafi aukist til muna undanfarin ár. Hann segir að bakteríur sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum hafi fundist í stórum skömmtum í risarækjum frá Suðaustur-Asíu. „Ég hafði alltaf áhyggjur af þessu. Upp á síðkastið hef ég orðið miklu meira var við risarækjur á matseðli veitingahúsa, í uppskriftum á netinu og fólk er miklu meira að kaupa þetta í búð og annað slíkt. Mér brá við að sjá hvað innflutningur hefur aukist mikið.“ Spurður hvernig fólk smitast af umræddum bakteríum segir Karl: „Ef þú passar þig að elda risarækjurnar nógu vel og kemur í veg fyrir krossmengun í eldhúsinu. Þá meina ég að það þarf að passa að menga ekki áhald og bretti og annað sem kemst síðan í snertingu við önnur matvæli að þá ætti þetta að vera nokkuð öruggt.“ Ertu að segja að við eigum bara að meðhöndla risarækjur eins og kjúkling? „Já, ég er eiginlega að segja það. Ég held að það séu mjög mikilvæg og ný skilaboð, því að fólk hefur yfirleitt ekkert verið að hugsa um sjávarafurðir sem mögulega uppsprettu bakteríusýkinga eða sýklalyfjaónæmis.“ Risarækjurnar verulega misjafnar Hann tekur fram að mikilvægt sé að þíða rækjurnar með réttum hætti, ekki megi þíða þær við stofuhita. Það getur fjölgað bakteríum. „Við þíðum þetta í ísskáp, helst yfir nótt. Ef það liggur eitthvað á þá er mælt með því að setja þetta bara í plastpoka og í vatn.“ Þegar rækjurnar eru eldaðar sé mikilvægt að sjóða, steikja eða grilla þær þar til þær verða hvítar eða bleikar. Alls ekki eigi að leggja sér til munns rækjur sem eru gráar eða linar. „Eldunin er fyrst og fremst það eina sem maður getur treyst á.“ Hann segir að í raun sé betra að kaupa risarækjur sem eru þegar fulleldaðar og hafa verið frystar. „Hún tekur ekki þessa áhættu nema eitthvað fari úrskeiðis í framleiðslunni. Það er kannski öðruvísi að elda hana.“ Það skipti máli hvaðan rækjurnar koma. „Þessar risarækjur eru framleiddar við mjög misjafnar aðstæður. Þær koma frá misjöfnum löndum og landsvæðum og framleiðsluhættirnir eru mjög misjafnir. Á sumum stöðum er lítið hugsað um umhverfið og lítið hugsað um hreinlæti. Þá eru sýkingar miklu algengari. Það ganga smit eða sýkingafaraldrar sko í þessum risarækjum sem eru mjög viðkvæmar og þá er mikið notað einmitt af sýklalyfjum sem kallar á þetta vandamál.“
Bítið Landspítalinn Matur Veitingastaðir Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira