Kvöldfréttir Sýnar í beinni Forstjóri Icelandair segir það góðar fréttir að tímabundin sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Evrópusambandsins hafi verið framlengd. Varanleg lausn þurfi þó að koma til. Við hittum Boga Nils Bogason í kvöldfréttum. 17.7.2026 18:38
Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Rúmlega fimmtíu heimili og íbúðir eru brunnin til grunna í bænum Drammen, sem staðsettur er tæplega 50 kílómetra suðvestur af Ósló. Samkvæmt yfirlýsingu slökkviliðs hefur enn ekki verið náð stjórn á brunanum. 17.7.2026 18:29
Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Loftmengun í grennd við skemmtiferðaskip í höfn getur mælst 35 til 40 föld miðað við heilsuverndarmörk. Þörf er á uppsetningu innviða svo skipin geti tengst rafmagni þegar þau liggja við höfn og reglusetningu um notkun hreinni eldsneytisgjafa, samkvæmt sérfræðingi. 16.7.2026 17:03
Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt. 15.7.2026 16:13
Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi FS, Félagsstofnun stúdenta, hefur sent skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar erindi um uppbyggingu 144 stúdentaíbúða á Kársnesi. Um er að ræða einstaklingsíbúðir sem að meðaltali verða tuttugu og níu fermetrar að stærð. Í samtali við Heiði Önnu Helgadóttur framkvæmdastjóra FS kemur fram að stöðug vöntun sé á stúdentaíbúðum. 15.7.2026 15:53
Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Kjell Magne Bondevik, fyrrum forsætisráðherra Noregs, hefur snúist hugur varðandi mögulega ESB-aðild Noregs og vill nú þjóðaratkvæði um hvort fara skuli í aðildarviðræður strax á næsta ári. Bondevik var forsætisráðherra frá 1997 til 2000 og síðan aftur frá 2001 til 2005. 15.7.2026 12:43
Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Andrea Skúladóttir setti nýverið fimm Íslandsmet í fríköfun í kvennaflokki. Dýpst kafaði Andrea niður á fimmtíu og tveggja metra dýpi. Andrea hefur búið víðs vegar um heiminn þar sem aðstæður til fríköfunar eru bestar en er þó þessa stundina stödd hér á landi til að njóta íslenska sumarsins. 12.7.2026 08:02
Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu. 11.7.2026 17:00
„Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Ísland í sterkri stöðu komi til samningaviðræðna við ESB. Hún segist sannfærð um að undanþágur fáist í bæði sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. 10.7.2026 09:50
Vegagerðin varar við vindi Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar hvössum og byljóttum vindi frá því seint í kvöld og fram á miðjan dag á morgun á landinu norðvestanverðu. 10.7.2026 09:29