Stjórnarmaður Hauka í bann vegna fölsunar Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur dæmt Haukum 3-0 tap gegn ÍH í Lengjubikar karla í fótbolta eftir að í ljós kom að Haukar tefldu fram ólöglegum leikmanni undir nafni leikmanns sem var í einangrun vegna kórónuveirusmits. 29.3.2022 12:30
Fram fær fljótan Dana í fremstu víglínu Framarar hafa fengið sprettharðan, danskan framherja fyrir komandi átök í Bestu deildinni í fótbolta þar sem Fram kemur inn sem nýliði eftir að hafa síðast leikið í efstu deild árið 2014. 29.3.2022 12:10
Andi með tvö í frábærum sigri en Rúmenar fóru áfram Ísland vann 3-0 sigur gegn Rúmeníu í Króatíu í dag í síðasta leik sínum í undankeppni EM U19-landsliða karla í fótbolta. Sigurinn dugði þó ekki til að komast áfram á lokamótið. 29.3.2022 12:07
Seinni bylgjan: Ásbjörn í miklu basli eftir kinnhestinn „Þetta var ljótt djók. Þetta er bara leiðinlegt fyrir hann,“ sagði Róbert Gunnarsson um FH-inginn Ásbjörn Friðriksson í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir gríninnslag tengt markametsfíaskóinu í síðustu viku. 29.3.2022 10:01
Dómararnir gætu æft með stjörnum ensku úrvalsdeildarinnar Hugmynd Ralfs Rangnick, knattspyrnustjóra Manchester United, um að dómarar í ensku úrvalsdeildinni stundi sínar æfingar hjá félögunum í deildinni, gæti orðið að veruleika frá og með næstu leiktíð. 29.3.2022 09:00
Nei eða já: Breytingum á klukkunni ákaft fagnað Það var nóg að tala um varðandi NBA-deildina í körfubolta í nýjasta þætti Lögmála leiksins í gærkvöld. Minnkandi tímamismunur á milli Íslands og Bandaríkjanna og meint virðingarleysi gagnvart Phoenix Suns var meðal annars til umræðu. 29.3.2022 08:31
Ronaldo vill að allt verði brjálað í kvöld Cristiano Ronaldo verður orðinn 41 árs þegar HM 2026 í fótbolta fer fram. Það hefur eflaust sitt að segja um það að hann telji leik Portúgals og Norður-Makedóníu í kvöld vera „upp á líf og dauða“. 29.3.2022 08:02
Siakam sendi þunnskipað lið Boston niður um þrjú sæti Pascal Siakam skoraði 40 stig þegar Toronto Raptors unnu mikilvægan sigur og sendu Boston Celtics niður úr efsta sæti austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í gær. Leikurinn var annar tveggja leikja sem fóru í framlengingu. 29.3.2022 07:30
Danir drottna yfir handboltaheiminum Danir eiga besta handboltafólkið og þjálfarana samkvæmt kjöri alþjóða handknattleikssambandsins vegna ársins 2021. 28.3.2022 17:00
Fyrsti leikur Íslands á EM einn sá fyrsti sem seldist upp á Þegar er orðið uppselt á fyrsta leik Íslands á Evrópumóti kvenna í fótbolta í sumar, þegar liðið mætir Belgíu í Manchester 10. júlí. 28.3.2022 15:31