Guðbjörg Jóna síðust í riðlinum og úr leik Sindri Sverrisson skrifar 3. mars 2023 09:31 Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir keppti í fyrsta sinn á EM innanhúss, í Istanbúl í dag. FRÍ Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hljóp á 7,56 sekúndum í 60 metra hlaupi á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti innanhúss, í Istanbúl í morgun.
Sá tími dugði henni ekki til að komast áfram í undanúrslitin en Guðbjörg hefði þurft að hlaupa á Íslandsmeti sínu, sem hún setti í janúar, til að ná 4. sæti í riðlinum og fá öruggt sæti í undanúrslitum. Hún varð hins vegar í sjöunda og síðasta sæti í sínum riðli. Mujinga Kambundji frá Sviss, sem á besta tíma ársins í Evrópu eða 7,03 sekúndur, kom fyrst í mark í riðli Guðbjargar á 7,18 sekúndum. Hlaupið er í fimm riðlum og komast fjórar fremstu í hverjum riðli áfram auk fjögurra með besta tíma þar á eftir, eða samtals 24 keppendur. Ljóst er að tími Guðbjargar dugar ekki til að komast í þann hóp. Guðbjörg Jóna sló Íslandsmetið sitt í Danmörku í janúar þegar hún hljóp á 7,35 sekúndum, eftir að hafa nokkrum dögum áður jafnað metið sitt með því að hlaupa á 7,43 sekúndum á Stórmóti ÍR. Hún hefur nú lokið keppni á EM en Kolbeinn Höður Gunnarsson keppir snemma í fyrramálið, einnig í 60 metra hlaupi.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Fótbolti Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Formúla 1 Fleiri fréttir Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Dagskráin í dag: Upphitun fyrir enska boltann Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Sjá meira