Hólmar á Hlíðarenda Valsmenn hafa fengið mikinn liðsstyrk í miðverðinum sterka Hólmari Erni Eyjólfssyni sem skrifað hefur undir samning til þriggja ára við félagið. 11.2.2022 16:52
Orri mætir Blikum pabba síns í beinni Tveir Íslendingar eru í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem mætir Breiðabliki í Atlantic Cup í Portúgal í dag. 11.2.2022 15:01
Sturla laus úr einangrun en enn í kapphlaupi við tímann Skíðakappinn Sturla Snær Snorrason losnaði í dag úr einangrun á Vetrarólympíuleikunum í Peking, eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit síðastliðinn laugardag. 11.2.2022 13:46
KRR viðurkennir mistök og biður Þróttara afsökunar Forráðamenn Knattspyrnuráðs Reykjavíkur, KRR, hafa sent frá sér yfirlýsingu og viðurkennt að mistök voru gerð þegar Þrótturum voru ekki afhent verðlaun í gærkvöld eftir að hafa orðið Reykjavíkurmeistarar kvenna í fótbolta. 11.2.2022 13:13
„Dregur úr sigrinum okkar og er pínu óvirðing“ „Ég hefði alltaf haldið að við myndum fá bikarinn afhentan eftir leikinn því ég held að það sé nú þannig í langflestum öðrum keppnum,“ segir Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði nýrra Reykjavíkurmeistara Þróttar í fótbolta. 11.2.2022 10:33
Fengu innblástur frá Cool Runnings og eru mættir á Vetrarólympíuleika Margir muna eftir ævintýri Jamaíkumannanna sem tóku þátt í fjögurra manna bobsleðakeppninni á Vetrarólympíuleikunum í Calgary árið 1988, sem kvikmyndin Cool Runnings fjallar um. Jamaíka á aftur lið í keppninni í ár. 10.2.2022 16:32
Eyjamenn og Framarar fengu margra milljóna reikning í bakið Eyjamenn og Framarar voru krafðir um vel á annan tug milljóna króna eftir að hafa fengið leikmenn án þess að greiða uppeldisbætur til uppeldisfélaga þeirra. Kostnaður ÍBV nam 17 milljónum króna auk lögfræðikostnaðar. 10.2.2022 15:01
Hætti við pílu og tölvuleik með vinunum sem trúðu ekki ástæðunni Þráinn Orri Jónsson og Magnús Óli Magnússon lýstu því með bráðskemmtilegum hætti í Seinni bylgjunni í gærkvöld hvernig það var að vera allt í einu kallaðir út á sjálft Evrópumótið í handbolta í síðasta mánuði. 10.2.2022 13:01
Meirihluti stjórnar KSÍ vill sitja áfram en Borghildur ein eftir úr þeirri sem féll Sex af þeim átta sem setið hafa í bráðabirgðastjórn Knattspyrnusambands Íslands síðan í október sækjast eftir endurkjöri á ársþingi sambandsins eftir hálfan mánuð. 10.2.2022 12:01
Chelsea án óbólusettra leikmanna í Meistaradeildinni Þeir leikmenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea sem ekki hafa verið bólusettir gegn Covid-19 mega að óbreyttu ekki ferðast með liðinu til að spila við Lille í Frakklandi í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í næsta mánuði. 9.2.2022 17:01