Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Árni Sæberg skrifar 16. september 2026 15:00 Kastriot Pepaj í dómsal. Vísir Kastriot Pepaj, sem ákærður er í Dettifossmálinu svokallaða, segist enga aðkomu hafa átt að innflutningi fíkniefna. Þá hafi lögregla sjálf komið fíkniefnum fyrir heima hjá honum, en um sex grömm af marijúana fundust heima hjá honum.
Kastriot mætti síðastur fjögurra sakborninga fyrir dóm og gaf skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins í dag. Honum er gefið að sök að hafa skipulagt innflutning um 14 lítra af amfetamínbasa í félagi við Sævar Hilmarsson. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir fyrir innflutninginn. Á undan Kastriot kom Sævar fyrir dóminn og las upp yfirlýsingu í stað þess að svara spurningum ákæruvaldsins. Skipverjarnir tveir báru báðir um að hafa aldrei átt í samskiptum við Kastriot fyrr en þeir kynntust í fangelsi vegna málsins. Tengist málinu ekki neitt Beðinn um að lýsa aðkomu sinni að innflutningnum sagði Kastriot að hann tengdist málinu ekki neitt og vissi ekki neitt um málið. „Ég veit bara að lögregla kom og handtók mig þennan dag og ég vissi ekkert hvað var að gerast,“ sagði hann, með aðstoð túlks en hann talar albönsku. Þá var annar ákæruliður borinn undir hann, sem varðar vörslu 5,5 gramma af kannabisefnum og lítilræðis af sterum. Hann hafði þegar játað að hafa átt sterana en sagði að hann hefði aldrei verið með fíkniefni á heimili sínu. Lögreglan hefði sjálf komið með fíkniefnin inn á heimili hans. Sævar sé besti vinur hans Spurður um tengsl við skipverjana tvo sagðist Kastriot aldrei hafa hitt þá áður en þeir kynntust í fangelsi eftir handtöku í tengslum við málið. Hann sagðist hins vegar þekkja Sævar vel. „Sævar er mér allt, bróðir, besti vinur, fjölskylda.“ Þeir hefðu kynnst fyrir mörgum árum eftir að eiginkona hans hóf að þrífa heimili Sævars og barnsmóður hans. Fjölskyldurnar tvær hefðu í kjölfarið orðið mjög nánar og samgangur væri milli heimilanna á svo gott sem hverjum degi. Milan og Cloud, Kastriot og Sævar? Þegar sækjandi fékk tækifæri til að bera gögn málsins undir Kastriot var farið yfir nokkuð magn myndefnis og samskiptagagna. Myndefnið sýndi Kastriot í ræktinni og í Minigarðinum, þar sem svo virtist sem hann væri að nota síma sinn á sama tíma og samskipti fóru fram á milli notandans Milan og notandans Cloud á samskiptaforritinu Signal. Skipverjarnir tveir áttu í samskiptum við notandann Cloud varðandi innflutninginn. Hann sagðist hvorki þekkja neinn Milan né Cloud og sagði sækjanda fabúlera um það sem hann var að gera í símanum þegar myndirnar voru teknar af honum. „Það sem fer fram á milli Cloud og Milan varðar mig ekki neitt, ég kannast ekki við þetta. Þú getur spurt einhvern annan út í þetta.“ Þá voru borin undir hann skilaboð þar sem Milan spyr Cloud hvort hann ætli að koma daginn eftir með börnin og konu sem heitir það sama og barnsmóðir Sævars. „Það er ekki ég. Þú getur spurt Milan hver það er,“ sagði Kastriot. Í skýrslutöku yfir öðrum skipverjanum kom fram að hann teldi Sævar vera notandann Cloud, en hann gæti ekki fullyrt það.
Dómsmál Fíkniefnasmygl með Dettifossi Smygl Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira