
Enginn greindist með veiruna innanlands sjötta daginn í röð
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, sjötta daginn í röð.
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, sjötta daginn í röð.
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af karlmanni þar sem hann var staddur fyrir utan búð í Njarðvík vegna gruns um brot á sóttvarnarlögum.
Árni Snævarr, blaðamaður, Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, og Sif Sigmarsdóttir, rithöfundur og pistlahöfundur, segja Árbæjarsafn tímaskekkju nú þegar þétting byggðar sé „alfa og ómega“ í bæjarpólitíkinni í Reykjavík.
Í dag er útlit fyrir sunnan fimm til tíu metra á sekúndu með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig.
Lögregluyfirvöld á Kanaríeyjum hafa ákært fjóra menn fyrir kynferðisbrot gegn 36 ára gamalli íslenskri konu. Eru mennirnir grunaðir um að hafa nauðgað konunni en þeir sitja allir í gæsluvarðhaldi og eiga ekki möguleika á að losna úr fangelsi gegn tryggingu.
Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga er nú aftur að mestu bundin við Fagradalsfjall eftir að hún færði sig meira í átt til Grindavíkur og Bláa lónsins í gærkvöldi.
Snarpur skjálfti varð rétt í þessu sem fannst vel á suðvesturhorninu. Skjálftinn var 4,5 að stærð samkvæmt töflu á vef Veðurstofu Íslands og mældist klukkan 08:54.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest.
Enn er mikil skjáftavirkni á Reykjanesskaganum en ekki er þó byrjað að gjósa. Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis.
Bandaríska tónlistarkonan Dolly Parton var í gær bólusett gegn Covid-19 með bóluefni lyfjafyrirtækisins Moderna.