Segir að bekkurinn yrði þunnskipaður á þingi ef þingmennirnir segðu af sér Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, segir að það yrði þunnskipað á þingi ef þingmennirnir sex sem komu saman á barnum Klaustur fyrr í mánuðinum og ræddu á niðrandi hátt um kollega sína myndu segja af sér. 29.11.2018 17:10
„Maður veit eiginlega ekki hvar mörkin liggja hérna“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir að þeir þingmenn sem heyrast tala með niðrandi hætti um kollega sína á þingi á upptökum af Klaustur Bar fyrr í mánuðinum ættu virkilega að skoða hug sinn gagnvart því að segja af sér þingmennsku. 29.11.2018 15:18
Segir einkennilegt að þingmennirnir íhugi ekki afsögn Henry Alexander Henrysson, aðjúnkt í heimspeki við Háskóla Íslands, segir að samtal þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins, sem fór fram á barnum Klaustur fyrr í mánuðinum, varpi ljósi á það að kjörnir fulltrúar virðist ekki alveg skilja hvaða skyldur fylgi því hlutverki. 29.11.2018 14:00
„Í jafnmiklu áfalli og aðrir að sjá þetta skelfilega orðbragð“ Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir að upptökur af samtölum þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins á Klaustur Bar fyrr í mánuðinum sem fjölmiðlar hafa fjallað um síðastliðinn hálfa sólarhring verði ræddar á vettvangi þingsins. 29.11.2018 11:42
Segist hafa verið að ljúga upp á Bjarna Benediktsson Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, segir að það sé ekki satt að hann hafi gert einhvern díl við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, vegna skipunar Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns flokksins, sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. 29.11.2018 09:40
Tíu mánaða gömul stúlka og móðir hennar drepnar af birni Tíu mánaða gömul stúlka, Adele Roesholt, og móðir hennar, Valérie Théoret, voru drepnar síðastliðinn mánudag af grábirni þar sem þær dvöldu í afskekktum kofa í héraðinu Yukon í norðvesturhluta Kanada. 28.11.2018 17:04
Búist við að mörgum vegum verði lokað vegna veðurs Vegagerðin býst við því að loka vegum víða um land vegna óveðursins sem er nú að skella á um allt land. 28.11.2018 14:13
Fara fram á farbann vegna ræktunar kannabisplantna Lögreglan á Suðurlandi hefur gert kröfu fyrir Héraðsdómi Suðurlands þess efnis að litháískur karlmaður á fimmtugsaldri verði úrskurðaður í farbann. 28.11.2018 12:32
Handtaka í Danmörku vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurlandi á sex kílóum af hassi Danskur karlmaður var fyrr í mánuðinum handtekinn í Danmörku og yfirheyrður af lögreglu þar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á tæplega sex kílóum af hassi. 28.11.2018 12:20
Hviður allt að 45 metrum á sekúndu víða um land í miklu hríðarveðri og stormi Appelsínugul viðvörun mun gildi á Suðausturlandi klukkan 18 í dag vegna norðaustan roks eða ofsaveðurs en gul viðvörun tekur gildi í hádeginu, líkt og raunin er nánast um allt land. 28.11.2018 11:15