Rafbílaeigendur með sínar leiðir til að svindla Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir að rafmagnsbílaeigendur eigi það til að vera nokkuð lævísir við að leggja í hleðslustæði án þess að greiða bílastæðagjald og án þess að greiða fyrir hleðslu. Framkvæmdastjóri Ísorku segir fyrirtækið verða af tekjum vegna þessa. 17.8.2024 20:31
Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Íslenskir útgefendur og höfundar virðast ekki vilja selja bækur sínar til Rafbókasafnsins sem leigir út rafbækur og hljóðbækur. Verkefnisstýra safnsins furðar sig á því. Biðlisti á safninu getur verið allt að ár. 12.8.2024 07:01
Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Það er ekki boðlegt að börn séu í leikskóla í „gettó-umhverfi“ að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Verkefnisstjóri segir aftur á móti að gengið hafi vonum framar að umbreyta skrifstofuhúsnæði í leikskóla áður en skólastarf hefst í næstu viku. 8.8.2024 19:10
„Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu „Skaðaminnkandi nálgun er það sem að mun umvefja alla stefnumótun. Við erum með í ráðuneytinu núna landsliðið, má segja, í þessari hugmyndafræði og á þessum vettvangi. Það eru mjög margir sem koma að þessu verkefni með okkur í ráðuneytinu að formgera skaðaminnkunarstefnu sem mun fara inn í stærri vímuefnastefnu sem er í endurskoðun.“ 8.8.2024 12:11
Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Rauði kross Íslands opnaði í dag nýtt neyslurými í Borgartúni undir nafninu Ylja. Notendur vímuefna geta leitað þangað og sprautað sig eða reykt vímuefni undir eftirliti og aðstoð heilbrigðisstarfsfólks. 7.8.2024 15:06
Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Leitarsvæðið við Kerlingarfjöll er mjög torsótt og erfitt yfirferðar fyrir göngufólk, hjól og jeppa, en björgunarsveitir hafa sett mikinn kraft í leit með drónum. Landslagið er síbreytilegt vegna snjóa, rigningar og drullu. Leit hefur staðið yfir að ferðamönnum sem taldir eru fastir í helli við Kerlingarfjöll síðan í gærkvöldi. 6.8.2024 14:52
Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Húkkaraballið fór fram í gærkvöldi í Vestmannaeyjum og gekk kvöldið prýðilega vel fyrir utan minniháttar slagsmál og óspektir að sögn Stefáns Jónssonar, yfirlögregluþjóns í Vestmannaeyjum. 2.8.2024 16:43
Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Framkvæmdastjóri Herjólfs segir mikinn vind og töluverða ölduhæð á morgun ekki hafa áhrif á ferðir Herjólfs fyrir Þjóðhátíð. Gripið hefur verið til sérstakra ráðstafanna á hátíðinni til að bregðast við veðurspánni en formaður Þjóðhátíðarnefndar segir Íslendinga sem betur fer vera öllu vanir. 2.8.2024 12:03
Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Bændasamtökin furða sig á því að stóru kjötafurðarstöðvarnar noti ekki nýja upprunarvottun sem var gerð til að tryggja hag neytenda. Formaður samtakanna kallar eftir því að lög um upprunamerkingar verði hert 1.8.2024 19:39
Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Ríkislögreglustjóri segir hótunum í garð opinberra starfsmanna ekki hafa fjölgað svo um muni en tekur þó fram að árásir gegn þeim hafi aukist. Þessari þróun sé tekin alvarlega og unnið sé að því að tryggja öryggi lögreglumanna og annarra starfsmanna. 1.8.2024 12:18