Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ Rafn Ágúst Ragnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 1. júní 2026 19:50 Snorri Másson er þingmaður og varaformaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm Snorri Másson þingmaður sem blístrað var á og hrópað á meðan hann stóð í ræðustól Alþingis segist skilja að fólk hafi mikla sannfæringu fyrir sínum málstað en að jaðarskoðanir á hlutverki stjórnvalda í landamæraeftirliti vegi þyngra en hagsmunagæsla barna í augum þess hóps sem hefur lagst hvað harðast gegn frumvarpinu.
Hlé var gert á þingfundi í dag eftir að mótmælendur létu í sér heyra á þingpöllum í umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð. Eftir að þeim var vísað af þingpöllum héldu þeir áfram að mótmæla fyrir utan alþingishúsið. Önnur umræða hófst í dag eftir umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd. Fjöldi mannréttindasamtaka hefur mótmælt því að vista eigi börn í brottfararstöðinni og lagði meirihluti nefndarinnar til ýmsar breytingar þar sem skerpt er á réttindum barna, meðal annars að fjölskyldur eigi að vista í aðskildu húsnæði og að óheimilt verði að vista börn í öryggisklefum. Samtökin No Borders stóðu fyrir uppátækinu og segja í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum að með því vildu með tefja umræðuna og vekja athygli á frumvarpinu. Beiti fyrir sér hagsmunum barna Snorri Másson þingmaður Miðflokksins og varaformaður sagði þingheim hafa haldið ró sinni en mörgum brá bersýnilega í brún þegar hávært flaut barst um þingsalinn. „Eftir á að hyggja er þetta ekkert sérlega merkilegt atvik,“ segir hann. „Óskandi væri auðvitað að geta haft þingpallana opna í tiltölulega góðri vissu um að þangað komi fólk til að fylgjast með en ekki til að trufla störfin,“ segir Snorri. Sjálfur segist hann hafa skilning á því að brenna fyrir málefnunum en að persónulega drægi hann þarna línu. Hann segist þó ekki telja að hagsmunir barna vegi þyngst meðal meðlima þessa hóps. „Í flóknu og stóru máli sem þessu eru margir aðgerðarsinnar sem beita fyrir sér hagsmunum barna og öðru eins í svona umræðu, þegar kjarnaskoðunin sem þessi hópur stendur fyrir er miklu frekar sú skoðun að íslensk stjórnvöld eigi ekki að eiga síðasta orðið um það hver dvelur í þessu landi. Og það er skoðun sem ég held að sé mikil jaðarskoðun. Þótt þessi hópur hafi mörg tæki til að vekja á sér athygli og sé ágætlega laginn í því er þetta jaðarskoðun þannig að við megum ekki gera meira úr því er tilefni er til,“ segir hann. Hagsmunir tryggðir eins og orðið getur Stjórnvöld visti ekki börn í slíku „bagalegu óyndisúrræði“ af léttúð. Þetta er neyðarúrræði á síðasta stigi málsins. Auðvitað geta menn bent á það og rætt en ég held að hópar eins og þessi svonefndu frjálsu félagasamtök, sem hafa gert alltof mikið úr þessum þætti, haldi áfram, þrátt fyrir töluverða vinnu inni í allsherjarnefnd til að koma til móts við þessi sjónarmið og tryggja að þessi umgjörð sé sem mannúðlegust, segir mér að það sé kannski frekar þessi málstaður opinna landamæra sem menn eru að tala fyrir frekar en hagsmuni barna sem eru að mínu mati, eins og orðið getur í svona bagalegu óyndisúrræði, ágætlega tryggðir,“ segir Snorri.
Miðflokkurinn Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira