Kauphöllin
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 78 ›
Vægi skráðra hlutabréfa VÍS helmingast á tveimur árum VÍS skilaði hagnaði upp á rúmlega 840 milljónir á öðrum fjórðungi sem má rekja til þess að virði eignarhlutar tryggingafélagsins í Kerecis var fært upp um liðlega 100 prósent vegna sölunnar til Coloplast. Félagið fjárfesti í ótryggðum skuldabréfum á Arion banka í erlendri mynt á fjórðungnum þar sem það taldi álagið á bréfin vera orðið „óhóflega hátt.“ Innherji 11.8.2023 12:06
Vantrú fjárfesta á fyrirætlunum stjórnenda Kviku er mikil, segir forstjóri Stoða Einn stærsti hluthafi Kviku banka segir það hafa verið „vonbrigði“ að fallið var frá viðræðum um samruna við Íslandsbanka enda sé mikilvægt að ná fram meiri hagræðingu í rekstri íslenskra fjármálafyrirtækja, einkum þeirra smærri. Að mati Stoða er samanlagt virði einstaka eininga Kviku nú „mun hærra“ en markaðsvirði samstæðunnar og brýnir forstjóri fjárfestingafélagsins stjórnendur bankans til að „skoða allar leiðir“ hvernig megi vinna úr þeim verðmætum. Innherji 10.8.2023 16:54
Verðmæti Blikastaðalandsins „ótrúlega hátt hlutfall“ af markaðsvirði Arion Forstjóri Stoða furðar sig á því hversu lítinn gaum fjárfestar virðast gefa fyrir þau „gríðarlegu verðmæti“ sem felast í Blikastaðalandinu fyrir Arion en fjárfestingafélagið er langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans. Hann segir verðlækkanir og óróa á innlendum mörkuðum á árinu „nær eingöngu“ skýrast af neikvæðum fréttum af Marel og Alvotech, tveimur verðmætustu félögunum í Kauphöllinni. Innherji 10.8.2023 12:56
Öll velkomin! Fyrir tæplega tuttugu árum síðan réði þáverandi samstarfskona mín sumarstarfsmann sem var með lokk í tungunni. Hún hafði ekki tekið eftir honum í atvinnuviðtalinu og brá því í brún daginn eftir þegar hún varð þess áskynja. Skoðun 9.8.2023 11:00
Hringdu bjöllunni á Skólavörðustíg Kauphallarbjöllunni var hringt á regnboganum á Skólavörðustíg klukkan hálf tíu í morgun í tilefni þess að Hinsegin dagar hefjast í dag. Sjálf setningin er í hádeginu en Nasdaq tók forskot á sæluna og hringdi bjöllunni í nafni fjölbreytileikans. Viðskipti innlent 8.8.2023 12:25
Spáir yfir 15 prósenta arðsemi hjá Arion og hækkar verðmat á bankann Útlit er fyrir að Arion banki muni skila vel yfir 15 prósent arðsemi á eigið fé á árinu 2023 á grunni væntinga um hærri vaxtamun og meiri vaxtatekna en áður var spáð, að mati hlutabréfagreinenda, sem varar samt við því að virðisrýrnun útlána eigi eftir að aukast talsvert á næstunni. Verðmat bankans hefur verið hækkað nokkuð en uppgjör Arion á öðrum ársfjórðungi, sem var lítillega yfir spám greinenda, er sagt hafa verið „drullufínt.“ Innherji 4.8.2023 12:08
Hlutabréfasjóðir halda stöðu sinni þrátt fyrir verðfall Alvotech Þrátt fyrir talsverða lækkun á gengi bréfa Alvotech frá því um miðjan aprílmánuð er stór hluti umsvifamestu hlutabréfasjóða landsins enn með íslenska líftæknilyfjafyrirtækið sem sína stærstu eign. Hlutabréfasjóðurinn Akta Stokkur, sem hefur minnkað nokkuð að stærð samhliða verðlækkunum á mörkuðum og innlausnum frá sjóðsfélögum, hefur veðjað hlutfallslega mest á Alvotech og er með nálægt 30 prósentum af eignum sjóðsins bundið í bréfum félagsins. Innherji 3.8.2023 12:18
Skila betri arðsemi en íslensku bankarnir vegna stóraukinna vaxtatekna Helstu bankarnir á hinum Norðurlöndunum skiluðu í flestum tilfellum umtalsvert betri arðsemi en íslensku viðskiptabankarnir á fyrri árshelmingi sem má einkum rekja til þess að hreinar vaxtatekjur þeirra jukust mun meira og vaxtamunur fór hækkandi. Bankastjóri Arion hefur sagt að vegna meðal annars strangari eiginfjárkrafna þurfi íslensku bankarnir að viðhalda hærri vaxtamun en aðrir norrænir bankar til að ná viðunandi arðsemi á eigið fé. Innherji 2.8.2023 16:16
„Stóra spurningin“ er hvað Icelandair ætlar að gera með sterka sjóðstöðu Útlit er fyrir að Icelandair muni fara langt með að skila nærri hundrað milljóna Bandaríkjadala rekstrarhagnaði á árinu 2023, um fimmfalt meira en í fyrra, að sögn hlutabréfagreinenda sem verðmetur félagið um 50 prósentum yfir núverandi markaðsgengi. Sjóðstaða Icelandair, sem nemur um 75 prósentum af markaðsvirði flugfélagsins, hefur aldrei verið sterkari en stjórnendur segja að ekki standi til að nýta þá fjármuni til að greiða hraðar niður skuldir. Innherji 2.8.2023 11:01
JP Morgan lækkar verðmat sitt á Marel vegna útlits fyrir lakari afkomu Eftir að stjórnendur Marels þurftu að falla frá yfirlýstu markmiði sínu um að ná 14 til 16 prósenta framlegðarhlutfalli í lok þessa árs hafa greinendur bandaríska stórbankans JP Morgan lækkað nokkuð verðmat sitt á íslenska félaginu enda þótt þeir telji það engu að síður verulega undirverðlagt á markaði. Bankinn spáir því að framlegðarhlutfallið á árinu 2023 verði undir tíu prósentum. Innherji 1.8.2023 16:33
Lífeyrissjóðir keyptu breytanleg bréf á Alvotech fyrir um þrjá milljarða Rúmlega fjörutíu fjárfestar, meðal annars að stórum hluta íslenskir lífeyrissjóðir, komu að kaupum á breytanlegum skuldabréfum útgefnum af Alvotech upp á samtals meira en níu milljarða króna í lokuðu útboði sem kláraðist um liðna helgi. Með þeirri fjármögnun, ásamt einnig fjárfestingu lyfjarisans Teva fyrir jafnvirði um fimm milljarða í skuldabréfum með breytirétti í hlutafé Alvotech, hefur íslenska líftæknilyfjafélagið tryggt rekstur og áframhaldandi fjárfestingar í þróun hliðstæðulyfja vel inn á næsta ár. Innherji 1.8.2023 11:51
Útflæði úr sjóðum tæplega tvöfaldast á milli ára Samfellt hreint útflæði var úr helstu verðbréfasjóðum á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst það talsvert á milli ára samtímis erfiðu árferði á fjármálamörkuðum sem einkenndist af þrálátri verðbólgu og hækkandi vaxtastigi. Innlausnir fjárfesta í hlutabréfa- og blönduðum sjóðum var samanlagt um 13 milljarðar og næstum tvöfaldaðist á fyrri árshelmingi þessa árs. Innherji 31.7.2023 10:54
Virðisbreyting hífði upp afkomu Íslandsbanka en tekjur undir væntingum Umtalsverð jákvæð virðisbreyting á lánasafni Íslandsbanka – sem hlutabréfagreinendur sáu ekki fyrir – gerði það að verkum að hagnaður bankans fyrir skatta á öðrum ársfjórðungi var níu prósentum hærri en meðalspá fimm greinenda. Virðisbreytingin gerði það að verkum að arðsemi eiginfjár var í takt við meðaltalsspá greiningardeilda eða 11,5 prósent. Hlutabréf Íslandsbanka hafa lækkað um 1,2 prósent það sem af er degi. Innherji 28.7.2023 13:15
Haukur Örn hlaut flest atkvæði og Helga Hlín komst að Helga Hlín Hákonardóttir hlaut brautargengi í stjórn Íslandsbanka þrátt fyrir að hafa ekki hlotið tilnefningu til stjórnarsetu. Haukur Örn Birgisson hlaut flest atkvæði í stjórnarkjörinu. Linda Jónsdóttir var ein í framboði til formanns stjórnar og fékk brautargengi í stjórnina. Hún var því sjálfkjörinn stjórnarformaður. Viðskipti innlent 28.7.2023 12:40
Íslandsbanki hagnaðist um 12,4 milljarða Íslandsbanki hagnaðist um 12,4 milljarða króna á fyrri helmingi ársins og þar af um 6,1 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður eykst milli ára en hann nam 11,1 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2022. Bankastjóri segir rekstur bankans hafa gengið vel á ársfjórðungnum sem hafi einnig einkennst af stórum áskorunum í tengslum við sölu á hlutum ríkisins í bankanum. Viðskipti innlent 27.7.2023 16:22
Eftir tímabil hægagangs hjá Marel hefur komið kröftugur vöxtur Fjóra ársfjórðunga í röð hafa pantanir verið með minna móti (e. soft) hjá Marel. Það gerðist síðast árið 2009 að pantanir voru ekki ýkja miklar fjóra fjórðunga í röð. Í kjölfarið jukust pantanir um 21 prósent á tólf mánuðum. Pantanir voru dræmar þrjá fjórðunga í röð á árunum 2013-2014. Að þeim tíma liðnum jukust pantanir líka mikið á næstu tólf mánuðum, upplýsti forstjóri Marels á afkomufundi með fjárfestum. Innherji 27.7.2023 15:07
Uppgjör Marels var undir væntingum greinenda Afkoma Marels var undir væntingum greinenda á flesta mælikvarða. Mótteknar pantanir voru þó tæplega tveimur prósentum yfir meðaltalsspá. Engu að síður hafa stjórnendur Marels lækkað afkomuspá sína fyrir fjórða ársfjórðung en það var líka gert á sama tíma fyrir ári. Gengi Marels hefur lækkað um þrjú prósent það sem af er degi í Kauphöll. Innherji 27.7.2023 10:45
Arion banki hagnaðist um 13,4 milljarða króna Arion banki hagnaðist um 13,4 milljarða króna á fyrri helmingi þessa árs. Þar af nam hagnaður 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 10,1 milljarða á sama tímabili í fyrra. Bankastjóri segir uppgjörið vera í takt við væntingar. Viðskipti innlent 26.7.2023 17:00
Gildi bað Helgu Hlín um að bjóða sig fram í stjórn Íslandsbanka Helga Hlín Hákonardóttir, ráðgjafi hjá Strategíu, segir að lífeyrissjóðurinn Gildi sem sé næststærsti hluthafi Íslandsbanka hafi óskað eftir því að hún myndi bjóða sig fram í stjórn bankans. Helga Hlín er ekki á lista sem tilnefningarnefnd mælir með að taki í sæti í stjórn Íslandsbanka. „Það er um að gera að rödd næststærsta hluthafans fái að heyrast,“ segir hún um framboð sitt og nefnir að ábendingar um nafn hennar hafi borist til tilnefningarnefndar frá fleirum en Gildi. Innherji 26.7.2023 14:47
Verðmetur Ölgerðina töluvert yfir markaðsvirði og uppgjör yfir væntingum Nýtt verðmat á Ölgerðinni er 29 prósentum hærra en markaðsvirði félagsins. Engu að síður er verðkennitala miðað við verðmatið „umtalsvert“ lægri en gengur og gerist erlendis. Uppgjör fyrsta ársfjórðungs var lítillega yfir væntingum hlutabréfagreinanda. Innherji 26.7.2023 08:00
Frosti Sigurjónsson býður sig fram í stjórn Íslandsbanka Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi alþingismaður, býður sig fram til setu í stjórn Íslandsbanka. Hann er ekki á lista yfir þá sem tilnefningarnefnd mælir með að sitji í stjórn bankans. Frosti segir að þegar honum bárust þau tíðindi hafi hann upplýst nefndina að hann vilji engu að síður vera í framboði enda séu það hluthafar sem velji stjórn en tilnefningarnefnd komi með tillögur. Hann hefur vakið athygli stjórnenda lífeyrissjóða á framboði sínu. „Lokaákvörðun er hjá hluthöfum.“ Innherji 25.7.2023 13:39
Fjarskiptafélögin „hressilega ofseld“ upp á síðkastið Fjarskiptafélögin Síminn og Sýn hafa ekki notið sanngirni á hlutabréfamarkaði að mati Jakobsson Capital en greiningarfyrirtækið telur að lækkanir á verði bréfanna hafi verið umfram tilefni. Þetta kemur fram í nýbirtu hlutabréfayfirliti fyrir júlí. Innherji 24.7.2023 12:19
Teva eykur samstarf sitt við Alvotech og kaupir víkjandi bréf fyrir fimm milljarða Alþjóðlegi lyfjarisinn Teva, sem er með samkomulag um sölu og markaðssetningu í Bandaríkjunum á stærsta lyfi Alvotech, hefur ákveðið að auka enn frekar samstarf sitt við íslenska félagið vegna fleiri líftæknilyfjahliðstæðna og eins að fjárfesta í víkjandi skuldabréfabréfum með breytirétti í hlutabréf fyrir jafnvirði meira en fimm milljarða. Alvotech hyggst sækja sér til viðbótar hundrað milljónir dala með útgáfu breytanlegra skuldabréfa en fjárfestingafélag Róberts Wessman hefur skuldbundið sig til að kaupa öll þau bréf sem ekki seljast í útboðinu. Innherji 24.7.2023 09:13
Lífeyrissjóðir sækjast eftir að stækka við hlut sinn eftir útboð Hampiðjunnar Ríflega einum mánuði eftir að hlutafjárútboði Hampiðjunnar lauk hefur mikill meirihluti íslenskra lífeyrissjóða, einkum Festa og LSR, haldið áfram að stækka við eignarhlut sinn í félaginu. Kaup lífeyrissjóðanna hafa meðal annars átt sinn þátt í að drífa áfram mikla hækkun á gengi bréfa Hampiðjunnar á eftirmarkaði að undanförnu en hlutabréfaverð félagsins er upp um nærri 23 prósent frá því gengi sem almennum fjárfestum bauðst að kaupa í útboðinu. Innherji 23.7.2023 12:22
Stækkað stöðu sína í Íslandsbanka um nærri milljarð eftir sátt bankans við FME Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) hefur verið umsvifamestur meðal stærri hluthafa Íslandsbanka að auka við hlutabréfastöðu sína dagana eftir að bankinn tilkynnti í lok júní um sátt við fjármálaeftirlitið, sem fól í sér hæstu sektargreiðslu fjármálafyrirtækis í Íslandssögunni, vegna brota á lögum og innri reglum við sölu á hlutum í sjálfum sér í fyrra. Lífeyrissjóðurinn stækkaði eignarhlut sinn samhliða því að hlutabréfaverð Íslandsbanka fór lækkandi. Innherji 20.7.2023 11:47
Marel klárar samning um stórt nautakjötsverkefni í Mexíkó Fyrr í þessum mánuði gekk Marel frá samningi við mexíkóska fyrirtækið Loneg um stórt verkefni (greenfield) við uppbyggingu á kjötvinnslu þar í landi. Hlutabréfaverð Marels, sem hefur verið undir þrýstingi til lækkunar síðustu vikur, hefur rokið upp um liðlega tíu prósent á síðustu tveimur viðskiptadögum. Innherji 20.7.2023 08:24
Stærsti fjárfestirinn bætir við sig í Sýn fyrir nærri hundrað milljónir Fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar, stærsti fjárfestirinn í hluthafahópi Sýnar, hefur bætt við sig hlutum í félaginu í fyrirtækinu fyrir nálægt hundrað milljónir króna að markaðsvirði. Tveir hópar einkafjárfesta, sem fara með meirihluta í stjórn fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins, eiga núna orðið samanlagt rétt rúmlega 30 prósenta hlut í Sýn. Innherji 19.7.2023 09:06
Formaður og varaformaður hætta í stjórn Íslandsbanka Finnur Árnason, Guðrún Þorgeirsdóttir og Ari Daníelsson gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Íslandsbanka. Finnur er núverandi stjórnarformaður bankans og Guðrún varaformaður. Tilnefningarnefnd bankans leggur til að Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel, verði kjörin nýr formaður stjórnar. Viðskipti innlent 18.7.2023 14:41
Hagnaður Arion banka ætti að tvöfaldast á grunni sterkra vaxtatekna Væntingar eru um að afkoma stóru viðskiptabankanna í Kauphöllinni verði umfram arðsemismarkmið þeirra á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum hafi enn neikvæð áhrif á fjármunartekjurnar. Þar munar mestu um kröftugan vöxt í vaxtatekjum, stærsti tekjupóstur Arion banka og Íslandsbanka, en útlit er fyrir að hagnaður Arion af reglulegri starfsemi muni meira en tvöfaldast frá fyrra ári, samkvæmt spám hlutabréfagreinenda. Innherji 13.7.2023 13:19
Fjárfesting í erlendum verðbréfum bætir ávöxtun en vægi þeirra hefur verið of lítið Erlend verðbréf, sem skráð eru í kauphöll, bæta sögulegt hlutfall ávöxtunar og áhættu fyrir íslenska fjárfesta, eins og til dæmis lífeyrissjóði. Vægi erlendra eigna í innlendum eignasöfnum hefur verið of lítið, segir í nýrri rannsókn. Innherji 11.7.2023 14:27