

Ísrael hefur verið sakað um loftárásir nærri Damascus í gær, sem munu hafa beinst gegn vopnasendingum Íran til Hezbollah hryðjuverkasamtakanna.
Skotmarkið er sagt hafa verið vopnabúr annað hvort íranskra hersveita eða Hezbollah-samtakanna líbönsku.
Rússar hófu í gær loftárásir á Idlib-hérað sem er síðasta vígi uppreisnarmanna.
Sýrlenski herinn undirbýr árásir á "greni hryðjuverkamanna“.
Uppreisnar- og vígamenn í idlib-héraði í Sýrlandi hafa sprengt upp brýr sem tengja yfirráðasvæði þeirra við yfirráðasvæði stjórnarhers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands.
Staffan de Mistura, erindreki Sameinuðu þjóðanna í málefnum Sýrlands, hefur varað við því að slæmt ástand gæti skapast geri stjórnarher Sýrlands og bandamenn þeirra árás á Idlib, síðasta vígi uppreisnarmanna í Sýrlandi.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði frá því í gær að alls hafi 63.000 rússneskir hermenn öðlast reynslu af átökum í Sýrlandi frá því í september 2015.
Íslamska ríkið birti í vikunni upptöku sem á að vera af Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti hvetur Evrópuþjóðir til að taka höndum saman um að reisa sýrlenskt samfélag úr rústum.
Talskona Utanríkisráðuneytisins, Heather Nauert, sagði AP að þessi ákvörðun hefði verið tekin í ljósi þess að aðrar þjóðir sem eru í bandalagi Bandaríkjanna gegn Íslamska ríkinu hefðu veitt töluverðum fjármunum til uppbyggingarinnar í Sýrlandi.
Að minnsta kosti 39 fórust, þar af tólf börn, í sprengingu í bænum Sarmada í norðvesturhluta Sýrlands í gær.
Asma al-Assad greindist með illkynja æxli á frumstigi.
Þrátt fyrir stirð samskipti undanfarin ár reyna Rússar að fá Bandaríkjamenn til að vinna með sér að endurreisn Sýrlands eftir áralangt stríð sem enn er ekki lokið.
Yfirvöld vestrænna ríkja vinna hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að vígamenn laumi sér aftur heim og þá er heldur ekki vilji til að sækja þá vígamenn sem hafa verið handteknir.
Yfirvöld Ísrael og Jórdaníu segja að vígamenn Íslamska ríkisins sem flúið hafi sókn stjórnarhers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í átt að landamærum ríkjanna hafi verið felldir.
Þeir hafa krafist þess að skipta á föngum við ríkisstjórnina og að Assad-liðar hætti sókn sinni gegn ISIS í suðurhluta Sýrlands.
Minnst 180 eru látnir eftir fjölda árása vígamanna Íslamska ríkisins í suðurhluta Sýrlands í dag.
Hið minnsta 38 féllu í suðurhluta Sýrlands í dag í því sem virðist hafa verið röð sjálfsmorðssprengjuárása.
Um var að ræða meðlimi Hvítu hjálmanna og fjölskyldur þeirra.
Ibraheem Musaibli, sem er 28 ára gamall, er einn af nokkrum tugum Bandaríkjamanna sem taldir eru hafa ferðast til Sýrlands og gengið til liðs við Íslamska ríkið.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segist ætla ræða mál Hauks Hilmarssonar við tyrkneskan ráðherra á morgun.
Flutningur rússneskra hermanna nærri landamærum Sýrlands og Líbanon hefur varpað ljósi á mögulega spennu milli bandamanna Bashar al-Assad, forseta Sýrlands.
Mennirnir munu hafa verið hernaðarráðgjafar og studdu þeir aðgerðir stjórnarhers Sýrlands í Deir ez-Zor í austurhluta Sýrlands.
Alþjóðaefnavopnastofnunin (OPCW) greindi í morgun frá niðurstöðum rannsókna á hylkjum sem fundust eftir árás 4.febrúar síðastliðinn.
Ísraelar svöruðu misheppnaðri árás Írana með sinni mestu árás í Sýrlandi frá upphafi stríðsins þar í landi. Hvorug þjóðin virðist hafa áhuga á meiri átökum en þær búa sig þó undir hvaða atburðarás sem kann að verða.
Að minnsta kosti níu eru fallnir eftir að Ísraelsher gerði í kvöld flugskeytaárás rétt utan við höfuðborgina Damascus.
Sýrlenskir Kúrdar hafa byggt upp eigið dómskerfi á yfirráðasvæði þeirra í austurhluta Sýrlands til að rétta yfir ISIS-liðum.
„Haldi Assad áfram að leyfa Írönum að athafna sig í Sýrlandi, ætti hann að vita að hann er að skrifa undir eigin dauðadóm.“
Eldflaugum skotið á bækistöðvar íranskra hermanna í norðurhluta Sýrlands. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Íranar telja Ísraela hins vegar líklegasta. Írönsk yfirvöld hafna því að íranskir hermenn hafi fallið í árásunum.
Fjöldi hermanna er sagður hafa fallið í loftárásum á hernaðarsvæði í norðurhluta Sýrlands í nótt.