

Sænski fatarisinn H&M hefur ákveðið að taka allan varning merktan kanadísku stjórstjörnunni Justin Bieber úr sölu. Í gær sagði söngvarinn að varningurinn væri drasl og hvatti fólk til þess að kaupa hann ekki.
Justin Bieber er ekki sáttur með sænska fatarisann H&M eftir að sá síðarnefndi gaf út fatalínu merkta kappanum. „H&M varningurinn sem þeir bjuggu til af mér er drasl og ég samþykkti hann ekki,“ segir poppstjarnan.
Nýjar peysur í versluninni H&M vöktu athygli á dögunum. Peysurnar minna óneitanlega á hinar klassísku íslensku lopapeysur. Stjórnarformaður Handprjónasambandsins segir þetta miður, en munstrið sé þó ekki upprunavottað.
Þrjú flutningaskip með korn innanborðs lögðu úr höfn í Úkraínu í dag. Oleksandr Kubrakov, innviðaráðherra landsins, segir Úkraínumenn treysta því að öryggistryggingar frá Sameinuðu þjóðunum og Tyrklandi um örugga för skipanna frá Úkraínu haldi og að útflutningur kornvöru komist í stöðugan og fyrirsjáanlegan farveg.
Tískugyðjan og hönnuðurinn Iris Apfel er nýjasti samstarfsfélagi H&M og verður línan litrík og skrautleg eins og hún sjálf. Á síðasta ári fagnaði hún 100 ára afmælinu sínu og hélt veislu með tískurisanum.
Forsvarsmenn IKEA hafa ákveðið að stöðva rekstur fyrirtækisins í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi tímabundið vegna innrásarinnar í Úkraínu. Verslunum verður lokað og um leið gert hlé á hráefnakaupum í ríkjunum.
Kórónuveirusmit hefur greinst í starfsmannahópi H&M verslunar í Kringlunni. Allir starfsmenn verslunarinnar hafa verið sendir í sjö daga sóttkví og verður verslunin lokuð í dag.
Allir fjórir sem greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær tengjast tveimur smitum sem komu upp meðal starfsmanna H&M á Hafnartorgi í fyrradag. Þrír af þessum fjórum voru þegar komnir í sóttkví þegar þeir greindust.
Persónuverndarstofnunin í Hamborg í Þýskalandi hefur sektað verslunarrisann H&M í Nürnberg fyrir ólögmæta vinnslu persónuupplýsinga um starfsmenn félagsins.
Sænski fatarisinn H&M hyggst þrátt fyrir margmilljarða hagnað loka 250 verslunum á næsta ári.
Mestur er samdrátturinn á tímabilinu sem um ræðir, 1. mars til 6. maí, á mörkuðum á Ítalíu og Spáni.
H&M hefur hannað merch línu fyrir tónlistarstjörnuna Billie Eilish.
H&M hefur farið fram á við leigusala erlendis að sett verði ákvæði í leigusamninga um að vöruskil til verslana lækki veltutengdar leigugreiðslur. Verslanakeðjan hefur ekki krafist þess af íslensku fasteignafélögunum.
Á fyrsta heila rekstrarári H&M á Íslandi skilaði fatarisinn 105 milljón króna hagnaði.
Um er að ræða fjórðu verslun sænsku keðjunnar sem opnar hér á landi.
Sjálfbærni og siðferði eru á meðal þess sem mun hafa áhrif á það hvernig tískuiðnaðurinn þróast á næstu árum, segir Daniel Herrman hjá Weekday.
COS, eins konar systurverslun H&M, mun opna verslun í Reykjavík síðar á þessu ári. COS er í eigu H&M fataverslunarkeðjunnar.
Skandinavíska fataverslunarkeðjan Monki mun opna 450 fermetra verslun í Smáralind næsta vor.
H&M Group hefur ákveðið að láta vörumerkið Cheap Monday líða undir lok.
Tuttugu prósenta afsláttur af öllum vörum gildir aðeins ef keyptar eru þrjár vörur eða fleiri, eins og segir í smáa letrinu.
Lítill munur er á vöruverði H&M hér og í nágrannalöndum. Ísland ekki einu sinni dýrast samkvæmt athugun Fréttablaðsins. Verð virðast samkeppnishæf.
Sænski fataverslunarisinn H&M segist leggja mikið upp úr því að vera samkeppnishæfur á öllum mörkuðum, þar með talið á Íslandi.
Segir H&M mun dýrara á Íslandi en í Noregi.
Framkvæmdastjóri H&M segir íslenska markaðinn nógu stóran fyrir þrjár verslanir og Íslendingar hafi sýnt það í verki.
Þriðja verslun H&M verður opnuð á Hafnartorgi klukkan tólf á hádegi.
Sænska fataverslunarkeðjan H&M opnar sína þriðju verslun á Íslandi á Hafnartorgi þann 12. október næstkomandi.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, spyr sig hvers vegna afnám tolla og vörugjalda á fatnað hafi ekki skilað sér betur til neytenda.
Sænska verslanakeðjan H&M seldi fatnað fyrir ríflega 2,5 milljarða króna hér á landi frá því að keðjan opnaði fyrstu verslun sína á landinu í lok ágúst í fyrra til loka maímánaðar.
Lögregla í Suður-Afríku skaut gúmmíkúlum til þess að dreifa hópum mótmælenda sem mótmæltu fyrir utan búðir sænska verslunarrisans H&M í Jóhannesarborg.
Forsvarsmenn H&M hafa í kjölfar harðra viðbragða beðist afsökunar og tekið peysuna og auglýsinguna úr umferð. Anna Margrét Gunnarsdóttir, markaðstengill H&M staðfesti það í samtali við RÚV og segir fyrirtækið harma auglýsinguna.