Frakkland

Frakkland

Höfuðborg: París. Mannfjöldi: 65,6 milljónir (2025). Flatarmál: 551.695 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bretar og Frakkar ætla að leiða að­gerðir við Hor­mússund

Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu.

Erlent
Fréttamynd

Sendir líka fall­hlífar­her­menn til Mið-Austurlanda

Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir undirbúa það að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda. Hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Einnig er verið að senda landgönguliða á svæðið.

Erlent
Fréttamynd

Lionel Jospin er látinn

Lionel Jospin, fyrrverandi formaður Sósíalistaflokks Frakka, er látinn 88 ára að aldri. Hann var forsætisráðherra Frakka í fimm ár en sagði skilið við stjórnmálin eftir að hafa tapað í forsetakosningunum árið 2002.

Erlent
Fréttamynd

Sósíal­istinn Grégoire nýr borgar­stjóri Parísar

Sósíalistinn Emmanuel Grégoire er nýr borgarstjóri Parísar. Gengið var til sveitastjórnarkosninga í Frakklandi í gær, þar sem Þjóðfylkingin tók nokkrar borgir og bæi en hafði ekki erindi sem erfiði í Marseille, Toulon eða Nimes.

Erlent
Fréttamynd

Komst á­fram fyrst ís­lenskra kvenna á vængjum fjall­konunnar

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn.

Lífið
Fréttamynd

Snæ­dís stigin á svið í Bocuse d´Or

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, stígur á svið klukkan tíu að íslenskum tíma og keppir í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan. 

Matur
Fréttamynd

„Þetta hefur alltaf verið draumurinn“

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, keppir á mánudag í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan. Með henni fylgir teymi og tonn af tækjum og tólum.

Matur
Fréttamynd

Líbanon viður­kenni Ísrael sem ríki

Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla.

Erlent
Fréttamynd

Franskur her­maður féll í drónaárás í Írak

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi í nótt drónaárás í norðurhluta Íraks. Nokkrir franskir hermenn særðust og einn yfirmaður lét lífið í árásinni. Hermennirnir hafa verið að þjálfa írakska Kúrda í að berjast gegn vígahópum á svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Frakkar fjölga kjarna­vopnum

„Næstu 50 ár verða tímabil kjarnorkuvopna,“ sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu í gær en greint hefur verið frá því að stjórnvöld í Frakklandi hyggist fjölga kjarnavopnum sínum og koma átta ríkjum undir „kjarnorkuregnhlíf“ sína.

Erlent
Fréttamynd

Sverja af sér sam­særis­kenningar um klónaðan Carrey

Skipuleggjendur César-kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin er ár hvert í París, hafa slegið á sögusagnir um að Jim Carrey, stórleikari og heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar, hafi ekki verið viðstaddur hana. Samsæriskenningar um að leikarinn hafi fengið eftirhermu til að mæta í hans stað á hátíðina hafa dreifst um netheima síðustu daga.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hóta að grípa til hernaðar­að­gerða gegn Íran

Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna.

Erlent
Fréttamynd

Andrew á Louvre

Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi.

Menning
Fréttamynd

Leita fórnar­lamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim

Franska lögreglan hefur sent frá sér alþjóðlega beiðni til mögulegra fórnarlamba og vitna að gefa sig fram vegna rannsóknar þeirra á máli 79 ára gamals fyrrverandi kennara sem er sakaður um að hafa nauðgað og beitt 89 börn kynferðisofbeldi í fimm heimsálfum. Brot mannsins eru sögð hafa átt sér stað allt frá sjöunda áratugnum til ársins 2022. Fjallað er um málið á vef Guardian.

Erlent