
Samfélagsmiðlar

„Öllum er fkn drull, haltu kjafti“
Þrátt fyrir marga augljósa kosti internetsins þá fylgja því því miður margar hættur. Með komu samfélagsmiðla hafa samskipti barna og ungmenna versnað og undanfarin ár hefur umræða á milli þeirra orðið fremur andstyggileg og neteinelti aukist.

Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar
Mennta og barnamálaráðuneytið kynnir niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar klukkan 14 til 16:30 í dag Hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands. Hægt verður að horfa í streymi hér að neðan.

Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma
Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða nú fram til Alþingis gera sér fyllilega grein fyrir þeim áhrifum sem samfélagsmiðillinn TikTok getur haft, sérstaklega á unga kjósendur. Flokkarnir eru flestallir komnir á fullt á miðlinum og segja má að hliðstæð kosningabarátta sé hafin í formi TikTok-myndbanda.

Sendiherrann vinsæli á útleið
Ryotaro Suzuki, sendiherra Japans á Íslandi, hefur verið skipaður sendiherra Japans á Samóa og mun því yfirgefa landið á næstunni.

Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla
Stjórnvöld í Ástralíu ætla að kynna lagasetningu sem miðar að því að banna börnum undir 16 ára aldri að nota samfélagsmiðla. Á vef BBC segir að lagasetningin eigi að vera leiðandi fyrir allan heiminn. Haft er eftir forsætisráðherra Ástralíu, Anthony Albanese, að leggja eigi frumvarpið fram á þinginu í næstu viku.

Linkedin sektað um tugi milljarða
Írska persónuverndarstofnunin hefur sektað samskiptamiðilinn Linkedin um 310 milljónir evra, sem eru um 46 milljarðar króna, fyrir brot á persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins, GDPR.

Næringarráðleggingar: fræðsla eða hroki?
Undanfarið hefur verið vinsælt að halda því fram á samfélagsmiðlum að næringarráðleggingar beri ábyrgð á öllum mögulegum heilsufarsvandamálum fólks í vestrænum löndum. En bíddu nú við, stenst það?

Mennirnir sem allir eru að tala um: Hverjir eru Costco-gæjarnir og Rizzlerinn?
Samfélagsmiðlar þróast ógnarhratt í okkar stafræna heimi. Stöðugt verða til nýjar „stjörnur“ á sama tíma og þær gömlu falla í gleymskunnar dá. Þessa dagana eru fáir jafnvinsælir á TikTok og Rizzlerinn litli og Costco-feðgarnir. En hvaða menn eru þetta eiginlega?

Eyddi Youtube síðu sonarins
Bandaríska athafnakonan Kim Kardashian eyddi Youtube síðu elsta sonar síns hins átta ára gamla Saint West eftir að hann birti tvennar færslur um Kamölu Harris þar sem vísað var til hennar með niðrandi hætti.

Skoðaði hvað fólk gerði á Facebook án samþykkis
Samfylkingin skar sig úr í frumkvæðisathugun Persónuverndar á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2021, með víðtækri notkun persónusniða á grundvelli skráningar Facebook á áhugamálum notenda. Viðreisn nýtti sér upplýsingar um þá sem líkað höfðu við flokkinn á Facebook og Instagram og heimsótt vefsíðu hans. Þó var ekki talið tilefni til að beita valdheimildum Persónuverndar.

Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu
Sunneva Einarsdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, var viðstödd fæðingu sonar vinkonu sinnar, Jóhönnu Helgu Jensdóttur áhrifavalds, sem kom í heiminn í lok september. Sunneva birti myndskeið af fæðingardeildinni á Instagram.

Tilkynnir Wolt sendil til lögreglu fyrir áreitni
Lilju Huld Steinþórsdóttur var algjörlega ofboðið á sunnudag þegar dóttur hennar bárust skilaboð frá Wolt sendli eftir að þeim barst matarsending um að hún væri falleg. Hún ætlar að tilkynna manninn til bæði lögreglu og Persónuverndar. Maðurinn hefur verið áminntur af Wolt.

Hlær að töfralausnum í dreifingu við of háu kortisóli
Undanfarna mánuði hafa heilsufarsgúrúar á samfélagsmiðlum kennt of miklu kortisóli um hina ýmsu kvilla, allt frá síþreytu yfir í bólgur í andliti. Lausnina segja þeir í neyslu ýmissa náttúrulyfja. Innkirtlalæknir segir þetta rugl.

Ragnar Þór býr sig undir harða baráttu
„Lygari, óheiðarlegur, skrifar falsfréttir, hræsnari, popúlisti, lýðskrumari, dóni, stundar hatursorðræðu og kvenfyrirlitningu, brennuvargur og ofbeldismaður.“

Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, skrifar nú á bloggsíðu sína sem aldrei fyrr og er afdráttarlaus í skoðunum. Björn rekur elstu bloggsíðu landsins. bjorn.is og virðist í ham.

Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram
Á Instagram verða nektarmyndir nú sjálfkrafa gerðar óskýrar í einkaskilaboðum. Unglingar undir 18 ára aldri munu ekki geta breytt stillingu á reikningu úr einkaham [e. private) nema með samþykki forráðamanna. Þetta eru meðal nýrra aðgerða sem Meta, eigandi Instagram, hefur tilkynnt um sem eiga að vernda ungmenna gegn kynlífskúgun (e. sextortion) og hótunum um dreifingu kynferðislegra mynda.

Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann
Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið.

Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn
Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri kveðst í hlaðvarpsviðtali dauðvorkenna Einari Þorsteinssyni sitjandi borgarstjóra. Einar tók við keflinu af Degi B. Eggertssyni fyrrverandi borgarstjóra á miðju kjörtímabili en Dagur hefur verið orðaður við framboð í landsmálunum og þá fyrir Samfylkinguna.

Viðbrögð landsmanna: „Er hægt að kaupa flugelda?“
Ýmis konar viðbrögð berast frá landsmönnum vegna stórtíðinda dagsins um að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri sprungin. Vísir tók saman það helsta af samfélagsmiðlum.

Laufey á lista yfir áhrifamestu áhrifavaldana
Tónlistarkonan Laufey, sem farið hefur sigurför um heiminn undanfarna mánuði, er ein áhrifamesti áhrifavaldur heims, ef marka má lista Hollywood reporter. Meðfram tónlistinni er Laufey dugleg að framleiða efni fyrir aðdáendur sína á samfélagsmiðlum á borð við TikTok og Instagram, en brot af því má sjá neðst í fréttinni.

X snýr aftur í Brasilíu
Hæstiréttur Brasilíu hefur tilkynnt að núgildandi banni gegn X verði aflétt eftir að fyrirtækið samþykkti að greiða fimm milljónir dala í sekt og loka á ákveðna aðganga.

Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet?
Ný mállýska hefur náð fótfestu meðal ungs fólks á Íslandi. Stofnanir og fyrirtæki keppast við að gera grín að orðunum, við misgóðar undirtektir.

Þykist vera norskur Ólympíufari á stefnumótaöppum: „Þetta er ógeðslegt“
Óprúttinn aðili hefur þóst vera norski sundkappinn Nicholas Lia á stefnumótaöppum og samfélagsmiðlum undanfarin ár. „Þetta er ógeðslegt. Ég veit að ég á ekki tvífara,“ segir Lia.

Lætur nettröllin ekki hafa áhrif á sjálfsmyndina
„Það tekur auðvitað á að lesa andstyggilegar athugasemdir um líkamann minn,“ segir breska stórstjarnan og leikkonan Florence Pugh. Pugh leggur mikið upp úr sjálfsöryggi og jákvæðri líkamsímynd en segir að það geti verið erfiðara þegar fólk leyfir sér að hrauna yfir hana á Internetinu.

Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum
Á tímum samfélagsmiðla hafa samskipti barna og ungmenna orðið bæði flóknari og viðkvæmari en nokkru sinni áður. Samfélagsmiðlar bjóða upp á ómetanleg tækifæri til að tengjast, deila reynslu og brúa fjarlægðir en leiða líka til nýrra áskorana.

„Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður fékk dónaskapinn sem hann auglýsti eftir og gott betur.

Það sem við vökvum, það vex: Taktu stjórn á algóritma samfélagsmiðla og huga þínum
Samfélagsmiðlar eru óneitanlega stór hluti af daglegu lífi okkar í dag. Þeir hafa áhrif á hvernig við sjáum heiminn, hvernig við hugsum um okkur sjálf og hvað við trúum að sé „veruleikinn“. En það er ekki alltaf ljóst að við höfum raunveruleg áhrif á það sem við sjáum á samfélagsmiðlum.

Gætum við verið betri hvert við annað?
Fyrir 30 árum, 1994, kom fyrsti snjallsíminn á markað. Áratugi síðar, 2004 hóf svo Facebook innreið sína og 2007 fengum við í hendur það fjölnota tæki sem snjallsíminn iPhone er. Allt eru þetta stórkostlegar uppfinningar – rétt eins og gufuvélin, skriðdrekinn og atómsprengjan. Ekki ber okkur að amast við nýsköpun og tækniframförum, en í þeim efnum veldur sannarlega hver á heldur. Gervigreinda snjallmennið hefur haslað sér völl til frambúðar.

Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum
Rússneskir ríkisfjölmiðlar eru ekki lengur velkomnir á samfélagsmiðlum Meta vegna óheiðarlegra vinnubragða þeirra við að breiða út áróður fyrir stjórnvöld í Kreml. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu um refsiaðgerðir gegn einum fjölmiðlinum í síðustu viku.

Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hefur verið gestur í hlaðvörpum undanfarna daga og fer mikinn. Enda virðist vindur í segl hans nú. Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar í málefnum Yazans litla verða ekki til að draga úr því.