Fjármálafyrirtæki
1 2 3 4 5 6 … 71 ›
Hlutafé Fossa aukið um 300 milljónir til að styðja við vöxt á efnahag bankans Á meðan afkoman hjá Skaga var dræm af fjármálastarfsemi og fjárfestingum, meðal annars talsvert rekstrartap hjá Fossum, þá náði að vega á móti að áfram var góður gangur í tryggingarekstrinum á öðrum fjórðungi. Í lok síðasta mánaðar stóð móðurfélagið að baki hlutafjáraukningu í Fossum upp á þrjú hundruð milljónir sem á að styðja við aukna lánastarfsemi fjárfestingabankans. Innherji 16.7.2026 13:06
Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sparisjóðurinn Indó hefur nú bætt langtímalánum við vöruframboð sitt en hingað til hefur aðeins verið boðið upp á yfirdráttarlán. Framkvæmdastjóri Indó segir að langtímamarkmiðið sé að bjóða upp á húsnæðislán og gera fólki þannig kleift að kveðja stóru bankana og stunda öll sín bankaviðskipti við Indó. Viðskipti innlent 16.7.2026 11:38
Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Mikill meirihluti Íslendinga hefur orðið fyrir svikatilraun á neti eða í síma á síðustu árum. Mun færri hafa tapað fjármunum í hendur svikahrappa, en vandinn er engu að síður viðvarandi. Skoðun 16.7.2026 07:30
Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Tvímenningar, afi og barnabarn hans, voru á dögunum sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um peningafals í banka í Kópavogi í júlí í fyrra. Innlent 14.7.2026 13:19
Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli. Viðskipti innlent 11.7.2026 22:46
Útlit fyrir að arðsemi Arion verði vel yfir markmiði með auknum vaxtatekjum Útlit er fyrir að Arion muni skila arðsemi vel yfir markmiði bankans á öðrum fjórðungi, samkvæmt meðalspá greinenda, en afkoman verður drifin áfram af auknum vaxtatekjum á meðan aðrar helstu kjarnatekjur gefa eftir ásamt væntingum um virðisrýrnun lána. Innherjamolar 9.7.2026 09:59
Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Kreditkortagreiðslur hjá Landsbankanum sem voru skuldfærðar 2. júlí hafa ekki enn skilað sér vegna bilunar. Það hefur áhrif á ráðstöfun kortanna. Unnið er að því að finna lausn á vandamálinu. Neytendur 3.7.2026 20:32
Séreignarsjóðir skilað talsvert lakari ávöxtun þrátt fyrir meiri áhættu Séreignarsjóðir hafa að jafnaði skilað talsvert lakari árlegri ávöxtun en samtryggingardeildir lífeyrissjóða síðasta aldarfjórðung, samkvæmt nýrri rannsókn, jafnvel þegar leiðrétt er fyrir áhættu í eignasafninu og hærri kostnaði. Umgjörðin í kringum séreignarsparnað, þar sem einstaklingar velja sjálfir þátttöku og fjárfestingarleiðir og hagnaðardrifin fjármálafyrirtæki gegna stóru hlutverki, er sögð hafa haft neikvæð áhrif á árangur kerfisins. Innherji 2.7.2026 08:28
Fjárfestar bæta hratt í framvirku stöðuna til að verjast gengisstyrkingu Áhugi fjárfesta og innlendra útflutningsfyrirtækja á að verja sig fyrir mögulegri gengisstyrkingu krónunnar hefur farið ört vaxandi á undanförnum mánuðum en hrein framvirk gjaldeyrisstaða með krónunni hefur núna ekki verið meiri frá því á sumarmánuðum ársins 2024. Á sama tíma eru lífeyrissjóðir farnir að bæta nokkuð í gjaldeyriskaup sín sem eru að nálgast að verða jafn mikil og allt árið í fyrra. Innherji 27.6.2026 13:13
Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Guðrún Gígja Sigurðardóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Fossa fjárfestingarbanka hf. en hún hefur starfað á lögfræðisviði Fossa frá árinu 2018. Viðskipti innlent 26.6.2026 14:33
Þórunn og Svali til Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Þórunni Ólafsdóttur í starf yfirlögfræðings og Svala H. Björgvinsson í starf mannauðsstjóra. Viðskipti innlent 26.6.2026 09:48
Arðsemi íslenskra banka umfram áhættulausa vexti sú lægsta á Norðurlöndunum Sérstakar aðstæður í rekstri banka á Íslandi – há opinber gjöld – lækka ekki einungis arðsemi þeirra, heldur einnig útlánagetu til heimila og fyrirtækja og viðnámsþrótt. Þetta þurfa stjórnvöld að hafa í huga við ákvarðanir um gjaldtöku á innlendum fjármálafyrirtækjum. Umræðan 25.6.2026 08:01
Ekkert lát á ásókn heimilanna í íbúðalán á föstum óverðtryggðum vöxtum Væntingar um viðvarandi háa verðbólgu og hækkun stýrivaxta hefur valdið því að heimilin hafa að undanförnu verið að færa sig í stórum stíl yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum. Ekkert lát var á þeirri þróun í liðnum mánuði, en á sama tíma eru einstaklingar að greiða niður húsnæðislán á breytilegum vaxtakjörum. Innherji 24.6.2026 15:45
Óvissa út við sjóndeildarhring Stöðugt, fyrirsjáanlegt og einfalt efnahags- og rekstrar umhverfi er ein mikilvægasta forsenda þess að lítil og meðalstór fyrirtæki geti fjárfest, ráðið fólk og vaxið. Það ætti að ríma vel við nýsamþykkta atvinnustefnu stjórnvalda sem leggur sérstaka áherslu á aukna framleiðni, samkeppnishæfni og nýsköpun. Umræðan 24.6.2026 12:39
Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá Upplýsingamiðlun Landsbankans, nýrri deild bankans, og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 19.6.2026 14:34
Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Rakel Ásgeirsdóttur í starf framkvæmdastjóra Stefnumótunar og menningar, nýstofnaðs stoðsviðs bankans. Viðskipti innlent 18.6.2026 12:04
Greinendur spá því að verðbólgan fari undir fimm prósent í fyrsta sinn á árinu Gangi meðalspá fimm greinenda eftir mun tólf mánaða verðbólgan í þessum mánuði fara undir fimm prósent í fyrsta sinn á þessu ári, en það sem helst er talið að muni drífa áfram hækkun á vísitölu neysluverðs í júní eru meðal annars flugfargjöld og húsnæðisliðurinn. Skýr merki eru hins vegar um kólnun á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og lausum störfum fækkar sem ætti að draga úr launaþrýstingi. Innherji 15.6.2026 14:20
Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem reiknað er með í fjármálaáætlun næstu fimm ára er sögð geta rýrt virði fjögurra banka á Íslandi um tæpa 45 milljarða króna. Hlutur ríkisins í bönkunum gæti lækkað um sautján milljarða en breytingarnar eigi að skila sex milljörðum í auknar skatttekjur. Viðskipti innlent 15.6.2026 07:16
Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Fyrrverandi varaformaður Viðreisnar segir fjármálaáætlun núverandi varaformanns Viðreisnar, Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, mikil vonbrigði. Viðskipti innlent 14.6.2026 13:14
Eftir mikinn vöxt er líklegt að það verði pressa á kostnaðarstýringu hjá Kviku Góðar líkur eru taldar á að Kviku muni takast að ná markmiði sínu um tuttugu prósenta arðsemi á efnislegt eigið fé samhliða vaxtaáformum lánabókarinnar, bestun efnahagsreiknings og sterkri kostnaðarstýringu, samkvæmt nýrri greiningu. Fjárfestum er ráðlagt að bæta við sig bréfum í bankanum. Innherji 13.6.2026 11:54
Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ármann Þorvaldsson, forstjóri fjárfestingabankans Kviku, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá félaginu. Viðskipti innlent 10.6.2026 15:50
Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun á boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag. Viðskipti innlent 9.6.2026 19:01
Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi. Innlent 9.6.2026 13:16
Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu boða til fundar um boðaða skattahækkun á fyrirtæki í fjármálageiranum. Fundurinn hefst klukkan 13 og má sjá í beinni útsendingu á Vísi. Viðskipti innlent 9.6.2026 12:32
Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Formaður Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu segir skilaboð Kviku banka til starfsfólks skýr eftir að félagið greiddi milljarða í arð sama dag og ellefu var sagt upp. Botnlaus gróðafýsn stjórni ansi miklu í samfélaginu í dag. Forstjóri Kviku segir engin tengsl milli uppsagna og arðgreiðslu. Viðskipti innlent 5.6.2026 12:41
Uppsagnir hjá Kviku banka Ellefu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Kviku banka eftir að ráðist var í hagræðingaraðgerðir. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári. Viðskipti innlent 4.6.2026 12:34
Útlánatap bankanna gæti numið um 150 milljörðum við „alvarlegt áfall“ Samkvæmt álagsprófi Seðlabankans gætu kerfislega mikilvægu bankarnir þrír staðið af sér „alvarlegt áfall“, sem gæti þýtt fyrir þá samtals um 150 milljarða króna útlánatap, án þess að þeir þyrftu að skerða of mikið framboð af lánsfé til viðskiptavina. Fjármálastöðugleikanefnd vekur athygli á vaxandi skuldum í byggingargeiranum samhliða því að lengri tíma tekur að selja eignir og beinir því til lánveitenda að þeir þurfi að „gæta að aukinni áhættu í geiranum.“ Innherji 3.6.2026 09:09
Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Hjalti Már Hauksson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, sem er hluti af fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Einar Pálmi Sigmundsson, sem undanfarið ár hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, tekur við nýju hlutverki á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Viðskipti innlent 1.6.2026 10:37
Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Jón Þór Grímsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsbankans. Hann stýrir Lögfræðiþjónustu bankans og heyrir beint undir bankastjóra. Viðskipti innlent 20.5.2026 15:29
Enn ríður Indó á vaðið Í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í dag hefur Indó sparisjóður ákveðið að hækka vexti á inn- og útlánum sínum. Önnur fjármálafyrirtæki hafa ekki greint frá áformum sínum um vexti. Viðskipti innlent 20.5.2026 14:48