

Indverskar konur í indverska ríkinu Kerala mynduðu 620 kílómetra langa mennska keðju til stuðnings kynjajafnrétti. Deilt hefur verið um aðgang þeirra að Sabarimala-hofinu
Talið er að hlébarði á Indlandi hafi orðið þremur mönnum að bana á síðustu tveimur mánuðum.
Engar sannanir þess efnis hafa þó verið birtar en prinsessan reyndi að flýja frá fjölskyldu sinni fyrr á þessu ári.
Skúl segir stöðu Íslands styrkjast enn frekar sem tengistöð.
Ný heimildarmynd varpar ljósi á flóttatilraun prinsessunnar sem ekkert hefur spurst til síðan í mars á þessu ári.
Bróðir ástralskrar krikketstjörnu hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa laumað fyrirætlunum um hryðjuverk í glósubók annars manns.
Farþega um borð í flugvél á Indlandi var á dögunum gert að yfirgefa vélina eftir að hafa tekið mynd af sjálfum sér um borð, sent félögum sínum myndina á Snapchat og skrifað "hryðjuverkamaður“ í myndatexta.
Aðjúnkt við félags-, mann- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands segir að ekki sé vitað hvaða áhrif það hafi á eyjaskeggjana í Indlandshafi að hafa lifað í einangrun þetta lengi.
25 létust þegar rúta hafnaði í skurði í suðurhluta Indlands í dag. Talið er að hraðakstri sé um að kenna.
Áður en Chau fór á land á eyjunni í síðasta sinn lét hann sjómennina sem komu honum þangað og hafa nú verið handteknir fá þrettán blaðsíður þar sem hann hafði skrifað um hvað á daga hans hafði drifið og hvað hann var að hugsa.
Eyjarskeggjarnir eru sagðir hafa grafið Chau á strönd eyjarinnar North Sentinel.
Mengunin er þegar talin hættuleg en búist er við því að hún aukist þegar fólk byrjar að skjóta upp flugeldum í tilefni af ljósahátíð hindúa.
Styttan er af Sardar Vallabhbhai Patel einni af frelsishetju Indlands og fyrsta varaforsætisráðherra landsins.
Að minnsta kosti 50 fórust og 200 slösuðust þegar lest skall á hópi fólks nærri Amritsar í indverska ríkinu Punjab.
Óttast er að minnst 50 séu látnir eftir að farþegalest var ekið á hóp fólks sem sat á teinunum í Amritsar.
Vélin komst þó á loft með 130 farþega innanborðs og var henni síðan nauðlent í Mumbai, en vélin var að fara frá Trichy áleiðis til Dubai þegar óhappið átti sér stað.
Með ákvörðuninni fella úr gildi 158 ára gömul lög frá nýlendutímum.
Indland er hættulegasta land heims fyrir konur samkvæmt nýrri samantekt Thomson Reuters.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að sjö milljónir manna deyi af völdum loftmengunar á ári. Níu af hverjum tíu jarðarbúum anda að sér menguðu lofti.
Mengunin er svo mikil yfir Nýju-Delí að krikketleikmenn hafa ælt á miðjum vellinum.
Gríðarleg loftmengun varð þess valdandi að leikmenn krikketliða Indlands og Sri Lanka þurftu ítrekað að stöðva leikinn til þess að kasta upp.