
Samfylkingin

Þórður Snær afboðaði komu sína
Þórður Snær Júlíusson, frambjóðandi Samfylkingarinnar og fyrrverandi ritstjóri Heimildarinnar, ætlaði að mæta í hlaðvarpið Ein pæling og taka upp þátt í fyrramálið en hann hefur nú afboðað komu sína.

Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista
Fjölmargir hafa tekið til máls í dag á samfélagsmiðlum til að fordæma umdeild skrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, eða taka upp hanskann fyrir hann. Heimspekingur segir ekki óeðlilegt að ræða þessi skrif og tekur fram að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, taki áhættu með Þórð á lista.

Verður ábati vaxtalækkana étinn upp af útblásnum kosningaloforðum?
Flestir greinendur eru sammála um að peningastefnunefnd Seðlabankans komi til með að ráðast í hressilega vaxtalækkun á fundi sínum í næstu viku. Slík lækkun mun óumflýjanlega, og loksins, létta á veskjum landsmanna sem hafa búið við feiknaháa vexti í öllu samhengi undanfarin tæp tvö ár.

Laumu risinn í landsframleiðslunni
Menning og skapandi greinar eru risi í landsframleiðslunni. Þetta sýndi nýleg skýrsla Ágústs Ólafs Ágústssonar sem var unnin fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið. Hagrænar tölur staðfesta að menning og skapandi greinar eru ekki langt frá sjávarútvegi (að fiskeldi meðtöldu) þegar kemur að hlutfalli af landsframleiðslu.

Plan í heilbrigðis- og öldrunarmálum - þjóðarátak í umönnun eldra fólks
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG hefur ekki staðið við eigin loforð og fyrirheit í mörgum málaflokkum. Má í því sambandi nefna áform um fjölgun hjúkrunarrýma um rúmlega 700, nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga og uppbyggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar í Reykjavík.

Samfylkingin er með plan um að lögfesta leikskólastigið
Ísland hefur alla burði til að búa til eitt besta leikskólakerfi sem þekkist á heimsvísu. Við vitum hins vegar að stærsta áskorunin okkar er í dag sú að tryggja hnökralausa samfellu þegar kemur að dagvistun þegar fæðingarorlofi lýkur – sem í daglegu tali kallast brúun umönnunarbilsins.

„Leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta“
„Ég hef séð þessi skrif sem birtust á bloggsíðu Þórðar Snæs og viðurkenni að það er ótrúlega erfitt fyrir mig sem konu að lesa þennan texta. Mér leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar um skrif Þórðar Snæs Júlíussonar, sem er í framboði fyrir flokkinn, sem birtust á bloggsíðu á fyrsta áratugi þessarar aldar.

Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ
Í tilefni kosninga hafa verið dregin fram gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, fyrrum ritstjóra Heimildarinnar og nú frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem lýsa unggæðingslegum og óviðurkvæmilegum viðhorfum í garð kvenna.

Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar
Viðskiptaráð efnir til kosningafundar í Hörpu í dag, miðvikudaginn 13. nóvember, undir yfirskriftinni „Horfum til hagsældar.“ Leiðtogar stjórnmálaflokka munu á fundinum ræða efnahagsmál auk annarra málaflokka sem varða bæði atvinnulífið og samfélagið í heild.

Aukin stuðningur við ferðasjóð íþróttafélaga dregur úr ójöfnuði
Frá árinu 2007 hefur ferðasjóður íþróttafélaga fengið framlag á fjárlögum Alþingis og er ljóst að ferðasjóðurinn þarf að fá verulega hækkun á fjárlögum á næstu árum.

Plan Samfylkingar: Svona náum við niður vöxtunum
Fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar verður að kveða niður vexti og verðbólgu og endurheimta traust til hagstjórnarinnar á Íslandi. Lykillinn að því er að við náum styrkri stjórn á fjármálum ríkisins og komum húsnæðismarkaðnum í fastari skorður. Um þetta snýst plan Samfylkingarinnar.

Örugg skref Samfylkingar í geðheilbrigðismálum
Forsenda allrar umræðu um bætta geðheilbrigðisþjónustu er jafnt aðgengi að þjónustu. Í dag er geðheilbrigðiskerfið óskilvirkt og stefnulaust þar sem óljóst er hvaða þjónustu skal veita á mismunandi þjónustustigum.

Velferðarsamfélag í anda jafnaðarmennskunnar
Í komandi alþingiskosningum verður kosið um það hvernig við viljum byggja upp íslenskt samfélag. Á undanförnum árum hefur verið hart sótt að réttindum launafólks og oftar en ekki með það að leiðarljósi að veikja stöðu fólksins en okkur talið trú um að það sé gott enda séu verkalýðsfélög of sterk.

Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð
Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum, segir það hafa verið nauðsynlegt að fletja kúrfuna í upphafi Covid-faraldurs. Ísland komi vel út í rannsóknum á umframdauðsföllum og sóttvarnaraðgerðir hafi verið síst meiri hérlendis en annars staðar.

Formaður Miðflokksins er opinn fyrir sérlögum um virkjanir
Almenn samstaða virðist ríkja milli stjórnmálaflokkanna um mikilvægi þess að afla frekari grænnar orku, sé tekið mið af svörum oddvita þeirra í könnun sem Samtök atvinnulífsins lögðu fyrir þá í aðdraganda kosningafundar. Formenn Miðflokks, Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar eru áfram um að einfalda leyfisveitingarferlið til orkuöflunar, en á ólíkum forsendum þó.

Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir?
Í kosningapallborði fréttastofunnar í dag er rætt við frambjóðendur þeirra flokka sem fengju einna flest þingsæti á Alþingi samkvæmt könnunum, sumir hafa verið að sækja á en fylgi annarra að dala. Þátturinn verður í beinni útsendingu og hefst klukkan 14.

Stöndum með ungu fólki
Ég verð að viðurkenna að ég er orðinn ansi þreyttur á því að lesa um það í fjölmiðlum og heyra stjórnmálafólk tala um mikilvægi þess að hlúa vel að unga fólkinu okkar og að vandamál ungs fólks séu að aukast á sama tíma og lítið er um aðgerðir eða hreinlega að skorið sé niður í þjónustu við ungt fólk.

Hægriflokkarnir boða ójöfnuð fyrir íslenska skóla
Nú styttist í kosningar og einhverjir stjórnmálaflokkar keppast við að bjóða upp á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum. Hægriflokkarnir hafa nú skyndilega fundið mikla ástríðu fyrir menntakerfinu – og þá helst á forsendum afkasta, árangurs og samræmdra prófa. Þegar lagst er yfir þessar tillögur af hægri vængnum er óhætt að fullyrða að hér sé ekkert nýtt undir sólinni. Allt eru þetta skyndilausnir sem hafa margar verið reyndar áður á vakt hægrimanna erlendis, með vægast sagt vondum árangri.

Bjarni segir vinnumarkaðslöggjöfina vera í „ákveðnum ógöngum“
Umbætur á vinnumarkaðsmódelinu myndu leiða af sér stöðugleika í ríkisfjármálunum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra telur of langt gengið þegar stéttarfélög geta tekið einstaka vinnustaði „í gíslingu“ og vill sjá breytingar á valdheimildum ríkissáttasemjara á meðan formaður Samfylkingarinnar er opin fyrir skrefum í þá átt í sátt við verkalýðshreyfinguna.

Kæru smiðir, hárgreiðslufólk og píparar!
Lokun ehf-gatsins snýst um að tekjur einstaklinga umfram 1,3 milljónir á mánuði beri sama skatt – hvort sem þær eru teknar út sem arður eða laun. Lokun ehf-gatsins hefur þess vegna engin áhrif á fólk sem er með mánaðarlegar tekjur undir þessum mörkum. Þetta þarf að vera alveg á hreinu.

Vantar fleiri lyftara í heilbrigðiskerfið?
Stjórnmálamönnum hefur verið tíðrætt um sóun í heilbrigðiskerfinu á undanförnum árum. Minna hefur verið um raunhæfar lausnir til að takast á við vanda heilbrigðiskerfisins.

Er píparinn þinn skattsvikari?
"Lokum ehf-gatinu með aðferðum sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum til að koma í veg fyrir að launagreiðslur séu ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur."

Frelsi til að búa þar sem þú vilt
Áður en tæknin og aukning í notkun fjarvinnutækni varð gat fólk tæplega flutt innanlands nema því stæði til boða atvinna á nýja staðnum. Í dag er komin upp allt önnur staða, góð nettenging er eina sem þarf til að geta sinnt atvinnu hvort sem það er á Siglufirði eða á Djúpavogi.

Kæra unga móðir
Frá einni nýbakaðri móður til annarrar móður: Ég held með þér og vona að það gangi allt vel. Það er þó sjaldnast alveg þannig, hvort sem það er svefnleysi, brjóstagjöfin, kveisa, erfiðleikar við þyngdaraukningu hjá litla krílinu, fæðingarþunglyndi eða hvaðeina.

Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum
Samfylkingin gerir kröfu um árangur í atvinnu- og samgöngumálum. Fólk í landinu vill öryggi í samgöngum og öflugt atvinnulíf um land allt. Öruggar samgöngur eru lífæð samfélagsins. Fólk sækir vinnu og þjónustu á milli byggðarlaga og gerir þá sjálfsögðu kröfu að komast öruggt á milli staða. Það er á ábyrgð stjórnmálafólks að þessir innviðir séu í lagi.

Andlát ungrar manneskju hefur gáruáhrif á allt samfélagið
Á okkur dynja fréttir af slakri stöðu ungmenna í íslensku samfélagi, fréttir af ótímabærum dauða, ofbeldi, aukinni vanlíðan, minni hamingju og ráðaleysi í kerfunum okkar.

Hlustar á Taylor Swift og elskar The Kardashians
Hún elskar Taylor Swift, horfir á The Kardashians og langar að verða forsætisráðherra. Sindri kíkti í morgunkaffi hjá Kristrúnu Frostadóttur í Íslandi í dag í vikunni.

Það er dýrt að reka ríkissjóð alltaf á yfirdrætti
Í vikunni birti Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skýrslu um stöðu efnahagsmála á haustmánuðum 2024. Þar segir meðal annars að almennt gildi sú regla að „hallarekstur ríkissjóðs felur í sér frestun á skattlagningu sem hækkar ráðstöfunartekjur heimila til skamms tíma en lækkar þær í framtíðinni“

Flestir treysta Kristrúnu fyrir efnahagnum
Ný könnun Gallup bendir til þess að flestir landsmenn treysti helst Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingar, af leiðtogum stjórnmálaflokkanna á Alþingi til að leiða stjórn efnahagsmála á Íslandi.

Samfylkingin ætlar ekki að hækka tekjuskatt
Það er sama hvar maður kemur að tali við kjósendur um hvaða mál liggja þeim á hjarta í komandi kosningum. Öll nefna húsnæðismál, efnahagsmál og heilbrigðismál. Það er samhljóma þeim samtölum sem Samfylkingin hefur átt við fólkið í landinu á liðnum tveimur árum.