Utanríkismál

Hefur áhyggjur af nýjum þungunarrofslögum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af nýjum þungunarrofslögum í Póllandi, sem takmarka mjög rétt kvenna þar í landi til þungunarrofs.

Mikilvægt að efla sameiginlegar norrænar almannavarnir
Til stóð að setja stærsta pólitíska fund ársins á Norðurlöndunum í Hörpu í dag. Hátt í eitt þúsund þingmenn, ráðherrar og aðrir gestir voru væntanlegir til landsins á þing Norðurlandaráðs en dagskráin verður heldur umfangsminni sökum faraldursins.

Ólafur Ragnar segir ríkisstjórn Davíðs hafa flaskað á samskiptum við bandaríska þingið
Í tilefni potkast útgáfu Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta Íslands á frásögnum frá fjörtíu ára ferli hans í alþjóðlegum stjórnmálum var hann eini gestur Víglínunnar í dag. Þar greinir hann einnig frá pirringi í samskiptum forsetans og einstakra ráðmanna í forsetatíð hans.

Af hverju græna utanríkisstefnu núna?
Það er ljóst að grípa þarf til róttækra kerfisbreytinga til þess að vinna gegn enn verri afleiðingum loftslagsbreytinga af mannavöldum eins og hlýnun jarðar, öfgum í veðurfari, neikvæðum áhrifum á gróðurfar og lífríki, súrnun sjávar og hækkandi sjávarstöðu. Til þess þarf að rýna öll okkar kerfi út frá aðgerðum gegn hlýnun loftlags.

Engin heimild til að sekta skip sem koma í höfn og uppfylla ekki alþjóðlega staðla
Íslensk stjórnvöld brjóta gegn reglum EES en sektarheimild skortir til að beita gegn skipum sem koma í höfn á Íslandi og uppfylla ekki alþjóðlega staðla. Þetta kemur fram í rökstuddu áliti Eftirlitsstofnunar EFTA til íslenskra stjórnvalda.

Fimm Globemaster og júmbó fylgja orustuþotum til Íslands
Fimm C-17 Globemaster herflutningavélar auk Boeing 747 flugvélar flughersins fylgja bandarísku F-15 Eagle orustuþotunum vegna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins, sem hefst hérlendis á morgun. Orustuþoturnar fjórtán eru allar komnar til Keflavíkurflugvallar.

Semja um kaup á Remdesivir
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur undirritað rammasamning við bandaríska lyfjarisann Gilead um kaup á 500 þúsund skömmtum af Remdesivir sem nýst hefur gegn einkennum Covid-19.

Ályktun Íslands um Filippseyjar samþykkt samhljóða
Ályktun Íslands um að mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna beri að veita ríkisstjórn Rodrigos Duterte stuðning og aðstoð við umbótastörf var samþykkt samhljóða á fundi mannréttindaráðs SÞ í morgun.

Um 250 bandarískir hermenn fara í skimun og tveggja vikna vinnusóttkví við komuna til Íslands
Allt að 250 hermenn taka þátt í loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland sem hefst á næstu dögum. Að þessu sinni er von á flugsveit bandaríska flughersins.

Kínverska sendiráðið virðist hafa stundað vöktun úr hófi fram
Öryggismyndavélar á vegum kínverska sendiráðsins virðast vakta svæði sem fer verulega út fyrir lóðamörk þess. Vöktunin kunni þar með að brjóta gegn persónuverndarlögum, að mati Persónuverndar.

Á jafnvel von á minnisblaði vegna kínverska listans í dag
Utanríkisráðuneytið hefur sett sig í samband við kínversk stjórnvöld vegna lista yfir Íslendinga sem koma fyrir í gagnasafni kínverska fyrirtækisins Zhenhua.

Hvenær kemur bóluefni við veirunni, hvað mun það kosta og hverjir verða bólusettir fyrst?
Miklar vonir eru bundnar við bóluefni gegn Covid-19 og að þegar það komi á markað verði líf okkar líkara því sem það var fyrir faraldurinn. Þúsundir taka þátt í rannsóknum og prófunum á bóluefnum og ferli sem vanalega tekur allt að tíu ár eða meira á aðeins að taka mánuði nú.

Bein útsending: Mikilvægi norrænnar samvinnu
Vestnorræni dagurinn er haldinn hátíðlegur í dag og verður deginum fagnað í Norræna húsinu í ár.

Styðjum við lýðræðislegar umbætur í Hvíta-Rússlandi
Ástandið í Hvíta-Rússlandi er lævi blandið og fólk er óttaslegið. Almenningur hefur mótmælt linnulaust eftir úrslit forsetakosninganna 9. ágúst og íbúar í tugþúsundatali hafa látið heyra í sér.

Telur njósnamálið í Danmörku snerta Íslendinga beint
Smári McCarthy, þingmaður Pírata, segir að njósnamál sem kom upp nýverið í Danmörku tengist Íslendingum beint. Utanríkisráðherra telur að stjórnvöld hér á landi hafi ekki verið nógu vakandi í netöryggismálum.

Hvetur Rússa til að vera samvinnuþýða í máli Navalní
Óháð alþjóðleg rannsókn þarf að fara fram á hvernig eitrað var fyrir Alexei Navalní, einum leiðtoga rússnesku stjórnarandstöðunnar, að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra.

Ísland sleppur við rauða listann
Bresk stjórnvöld ákváðu í gær að setja þrjú ný lönd á hinn svonefnda rauða lista, sem kveður á um að ferðamenn sem þaðan koma til Bretlands þurfi að sæta 14 daga sóttkví.

Þing Norðurlandaráðs blásið af
Ekkert verður af því Norðurlandaráðsþingið verði haldið í október eins og ráð var gert fyrir.

Svartur dagur
Dagurinn í dag er svartur fyrir ferðaþjónustu á Íslandi

Vill skoða hvort stofna eigi hóp sem vaktar kosningar á Íslandi
Utanríkisráðherra telur ástæðu til að skoða hvort rétt sé að setja á laggirnar kosningavaktarvinnuhóp til að sporna gegn því að erlend ríki reyni að hafa áhrif á kosningar á Íslandi.

COVID-19: Afleiðingarnar alvarlegri en sjúkdómurinn fyrir börn
Þótt börn séu ekki mörg meðal þeirra rúmlega 700 þúsund einstaklinga sem látist hafa af völdum COVID-19 deyja þúsundir barna vegna óbeinna afleiðinga faraldursins og milljónir barna eru í lífshættu, einkum vegna vannæringar í fátækjum ríkjum.

Sendu Líbönum samúðarkveðjur vegna sprengingarinnar í Beirút
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sendu Líbönum samúðarkveðjur vegna sprengingarinnar mannskæðu í Beirút í dag. Að minnsta kosti sextíu manns eru sagðir hafa farist og þúsundir slasast.

Hitamældur í hvert sinn sem hann kemur heim til sín
Sendiherra Íslands í Kína segir samstarf stjórnvalda og almennings á Íslandi hafa skilað jafn góðum árangri í baráttunni við kórónuveiruna og járnaginn í Kína.

Fundar með pólska sendiherranum vegna Istanbúlsamningsins
Ákvörðun Pólverja um að segja sig frá samningi Evrópuráðsins um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi fellur í grýttan jarðveg.

Ræddi mál sendiherrans í beinni útsendingu á CBS
Christina Ruffini, fréttamaður CBS sem fjallaði um mál bandaríska sendiherrans á Íslandi um helgina, segir að ósk sendiherrans um að bera byssu og ráða lífvörð skjóti skökku við í ljósi þess að Ísland sé eitt öruggasta ríki heims.

Á fallanda fæti
Það er átakanlegt að horfa upp á heimsveldi svamla ráðalaust í ólgusjó alþjóðastjórnmála en beinlínis sársaukafullt þegar um er að ræða ríki sem í 70 ár hefur haft forystu fyrir lýðræðisríkjum í heiminum. Á sama tíma fylgist umheimurinn áhyggjufullur með rísandi veldi í austri sem virðist hafa vaxandi getu og metnað til að láta að sér kveða víðar en í sínu nánasta nágrenni.

Vilja sendiherrann sinn burt
Bandaríkjamenn á Íslandi vilja margir losna við sendiherra sinn sem situr í lokuðu sendiráði og vill fá að bera byssu á Íslandi.

Guðlaugur Þór reyndi að tæla fréttamann CNN
Richard Quest, fréttamaður CNN, var hæstánægður með bakgrunninn sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, valdi fyrir spjall þeirra tveggja.

Sóttvarnastofnun Evrópu uppfærir íslensku tölurnar
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu munu ríki sem sett höfðu Ísland á áhættulista uppfæra sína lista nú í vikunni til samræmis.

Sjá fleiri atlögur að mannréttindum og lýðræði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fráfarandi forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, segir mörg ríki hafa nýtt sér kórónuveirufaraldurinn til þess að ganga á mannréttindi borgaranna.