
Kjósarhreppur

Berst gegn vindmyllum við nýju sjóböðin: „Ég held að menn myndu sjá eftir þessu samstundis“
Skúli Mogensen athafnamaður opnaði lúxussjóböð í Hvammsvík í Hvalfirði í júlí og útkoman er einstök náttúruperla. En um svipað leyti og starfsemin hófst birtist matsáætlun fyrir vindmyllur ofan á fjallið hinum megin við fjörðinn, sem myndu skyggja á útsýnið í böðunum ef hugmyndirnar yrðu að veruleika. Nú berst Skúli við vindmyllur í Hvalfirði.

Skúli svarar Óttari fullum hálsi
Athafnamaðurinn Skúli Mogensen segist hvorki vera auðmaður né gjaldþrota í svari við bakþönkum Óttars Guðmundssonar geðlæknis. Óttar sagði í bakþönkum sínum á laugardag að Skúli hefði sett flugfélagið Wow air „glæsilega á hausinn“ með tilheyrandi tapi fyrir þjóðarbúið. Skúli segir Wow hafa skilað meiru í ríkiskassann en allur áliðnaðurinn árið 2018.

Með nóg á prjónunum en einbeitir sér að sjóböðunum í bili
Sjóböðin í Hvammsvík í Hvalfirði voru formlega opnuð í dag en böðin eru byggð í kringum gömlu náttúrulaugina í fjöruborðinu í Hvammsvík og samanstanda af átta misheitum laugum.

Vilja breyta aðalskipulagi til að fjölga lóðum í Hvammsvík um 25
Til stendur að fjölga lóðum í Hvammsvík í Kjósarhreppi um 25 en framkvæmdirnar kalla á breytingar á aðalskipulagi á svæðinu. Landeigendur eru Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW air og móðir hans Anna Skúladóttir, í gegnum félagið Flúðir ehf.

Fyrstu laxarnir komnir í Laxá í Kjós
Fyrstu laxarnir sáust í Laxá í Kjós í gær og það kemur engum á óvart sem þekkir Laxá vel að fyrstu lónbúarnir séu mættir.

Lokaniðurstöður úr Kjósarhreppi
Kjörsókn í Kjósarhreppi í sveitarstjórnarkosningunum var 86 prósent. Af þeim 222 sem voru á kjörskrá greiddu 191 atkvæði.

Blása til mjög óhefðbundinna mótmæla í Hvalfirði
Samtök hernaðarandstæðinga efna til „kræklingatínsluferðar“ í Hvalfirði á sama stað og sama tíma og bandarískir landgönguliðar æfa lendingar. Formaður samtakanna segir mikla tilviljun að tímasetning viðburðanna hittist svona á.

Mikil spenna á markaði þrátt fyrir að sveitarfélög eigi þúsundir lóða
Þótt sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafi samþykkt þúsundir lóða til íbúðabygginga er skortur á húsnæði og mikil spenna á markaðnum. Mögulega þurfi að setja kvaðir á byggingatíma við úthlutun lóða.

Líst vel á að Kjalnesingar fái að kjósa um sjálfstæði
Innviðaráðherra líst vel á að Kjalnesingar fái að kjósa um það hvort þeir slíti sig frá Reykjavíkurborg samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. Það myndi þó hugnast honum best að hverfið yrði áfram hluti af Reykjavík en íbúar ættu að hafa sitt að segja um það.

Kjalnesingar vilja slíta sig frá Reykjavík á ný
Kjalnesingar vilja nú margir slíta sig frá Reykjavíkurborg og annaðhvort endurheimta sjálfstæði sitt eða sameinast sveitarfélagi sem er staðsett nær hverfinu. Krafa er uppi um að fá að kjósa um þetta samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum.

Ráðin til sjóbaða Skúla í Hvammsvík
Hilmar Þór Bergmann, Fríða Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir og Guðmundur Guðjónsson hafa öll verið ráðin til starfa til að vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu í Hvammsvík í Hvalfirði.

Svona gætu sorptunnurnar þínar litið út í vor
Starfshópur á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hefur lagt fram tillögur að samræmdu sorphirðukerfi. Í þeim er lagt til að fjórum flokkum af sorpi verið safnað við öll heimili á höfuðborgarsvæðinu.

Sprengingin mældist á jarðskjálftamælum: „Þetta var svaka hvellur“
Íbúar í Hvalfirði urðu varir við einhvers konar sprengingu eða skjálfta skömmu fyrir klukkan hálf sjö í kvöld. Lítill skjálfti mældist á mælum Veðurstofunnar en sprengingin var í raun á vegum byggingafyrirtækisins Borgarvirkis.

Tveir karlmenn og kona ákærð fyrir amfetamínframleiðslu í Kjós
Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og konu fyrir amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Mennirnir, Jónas Árni Lúðvíksson og Steingrímur Þór Ólafsson, eru báðir með dóma á bakinu; Jónas hlaut dóm í Papeyjarmálinu svokallaða árið 2009 og Steingrímur var framseldur til Íslands frá Venesúela í tengslum við VSK-málið svokallað.

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi í Kjós í gær
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Hvalfjarðarvegi síðdegis í gær.

Alvarlegt bílslys í hálku í Kjós
Tveir eru sagðir alvarlega slasaðir eftir að bíll þeirra lenti utan vegar í hálku við Félagsgarð í Kjós um klukkan fjögur síðdegis í dag. Þeir voru fluttir á slysadeild og er aðgerðum viðbragðsaðila á vettvangi lokið.

Lóðirnar hans Skúla í Hvammsvík flugu út
Vel virðist hafa gengið hjá Skúla Mogensen að selja lóðirnar þrjátíu sem hann setti á sölu í Hvammsvík í Hvalfirði, þar sem hann vinnur nú að uppbyggingu ferðaþjónustu.

Illvígar nágrannaerjur: 200 þúsund í miskabætur og athugasemdir fjarlægðar
Karlmaður á áttræðisaldri var í dag dæmdur til að greiða nágranna sínum, sem tvívegis hefur setið sem varamaður í hreppsnefnd Kjósahrepps og setið í skipulags- og bygginganefnd hreppsins, 200 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla um nágrannann á samfélagsmiðlum og í kommentakerfum.

Látin eftir slys í Hvalfirði
Konan sem féll í skriðu í Hvalfirði síðastliðið þriðjudagskvöld lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi í morgun. Hún hét Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir og var fædd árið 1977.

Blóðug aftaka náðist á myndband
Það var ójafn leikur þegar þrír háhyrningar tóku varnarlausan sel af lífi skammt vestan við Hvammsvík í Hvalfirði á dögunum, eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Líklega fyrsti lax sumarsins
Það er ekki óvenjulegt að fyrstu laxarnir sjáist í Laxá í Kjós um miðjan maí en það er líklega fáheyrt að fyrsti laxinn veiðist 5. maí.

Skúli ætlar að opna sjóböð í Hvammsvík
Athafnamaðurinn Skúli Mogensen stefnir á að snúa aftur í íslenska ferðaþjónustu með því að opna sjóböð í Hvammsvík í Hvalfirði.

Laxá í Kjós komin í nýjar hendur
Það þykja alltaf nokkur tíðindi þegar vinsælar ár skipta um leigutaka en nú ber svo við að Laxá í Kjós fer í nýjar hendur.

Einn fluttur á slysadeild eftir umferðaróhapp í Hvalfirði
Umferðaróhapp varð í Hvalfirði um klukkan 12:30 í dag.

Handtakan í Kjósinni send til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu
Dómsmálaráðherra segir Ríkislögreglustjóra hafa sent málið til nefndarinnar að eigin frumkvæði.

Vel gekk að aðstoða þau sem lentu í sjálfheldu
Vel gekk að koma tveimur stúlkum og föður þeirra til bjargar eftir að stúlkurnar höfðu lent í sjálfheldu í klettum í Kjósaskarði í dag.

Unglingar í sjálfheldu í Kjósarskarði
Björgunarsveitir aðstoða nú tvær ungar stúlkur sem eru í sjálfheldu í klettabelti í Kjósarskarði.

Óskar eftir skýringum á framgöngu sérsveitarinnar í útkalli í Kjósinni
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur óskað eftir skýringum á handtöku sérsveitar ríkislögreglustjóra á eldri manni í Kjós á sunnudaginn og sagt var frá á forsíðu Fréttablaðsins í gær.

Vara við eitruðum kræklingi í Hvalfirði
Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði eftir að DSP-þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum í honum.

Þakplata fauk á mann í Hvalfirði
Björgunarsveitarmenn og sjúkraflutningamenn vinna nú að því að komast á vettvang en arfavitlaust veður er á svæðinu.