Rangárþing ytra

Rangárþing ytra

Mannfjöldi: 1.941 (2025). Flatarmál: 3.194 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Hella, Rauðalækur, Þykkvibær, Holta- og Landsveit, Djúpárhreppur, Rangárvallahreppur.


Fréttamynd

Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit

Landhelgisgæslan fann göngumann sem hafði lent í hremmingum í Sveinsgili við Torfajökul í nótt eftir fimm klukkutíma leit. Manninn sakaði ekki og var fluttur með þyrlu gæslunnar til Reykjavíkur, blautur og kaldur.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Spurning með sálina

„Þetta er mjög leiðinlegt mál. En aðalatriðið er náttúrulega að hann er ómeiddur maðurinn en svo er spurning með sálina. Mönnum hlýtur að bregða við þetta.“ Þetta segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, en steypubíll í eigu fyrirtækisins lenti úti í Þjórsá í gærkvöldi. Lítið sé vitað um orsakir óhappsins að svo stöddu.

Innlent
Fréttamynd

Steypubíllinn kominn úr ánni

Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta vindmyllulestin um Suður­land í nótt

Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert nota­legt“

„Þetta var nú ekkert mál,“ er það fyrsta sem Gunnar Guðjónsson sagði við blaðamann en í torfærukeppni í gær hafnaði Gunnar á hvolfi ofan í á. Hann var í tæpar tuttugu sekúndur að koma sér upp úr vatninu en segir allt hafa litið mun verr út en það var í raun.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu ís­lensku GPS-heiðlóurnar komnar heim

Síðasta sumar voru í fyrsta sinn GPS-senditæki með sólarsellum sett á íslenskar heiðlóur. Alls voru tíu fuglar merktir og af þeim komust níu á vetrarstöðvar en nú eru tveir þeirra flognir aftur til landsins og búnir að koma sér fyrir í Landsveit í Rangárvallasýslu. Önnur lóan flaug í um sextán klukkustundir yfir Atlantshafið og hin flaug sleitulaust í um sólarhring.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Þungaflutningarnir með þeim mestu á Ís­landi

Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdir í Marteinstungukirkju vegna heits vatns

Töluverðar skemmdir urðu á Marteinstungukirkju í Holta- og Landsveit í Rangárþingi ytra eftir að heitavatnslögn inni í kirkjunni sprakk og vatn flæddi út um allt. Kirkjan er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1896.

Innlent
Fréttamynd

Leituðu skjóls í Hreysinu

Björgunarsveitarmenn komu í gær tveimur skíðagöngumönnum til bjargar sem höfðu leitað sér skjóls í gömlu neyðarskýli við Hreysiskvísl, töluvert norðan Þórisvatns á Sprengisandsleið.

Innlent
Fréttamynd

Menntaverðlaun Suður­lands fóru á Hellu

Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka.

Innlent
Fréttamynd

„Síminn stoppar ekki“

Yfir þrjátíu manns sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti hafa leitað til lögmanns, sem segir símann ekki stoppa. Þá hafi fleiri leitað til hans sem dvalið hafi á öðrum vistheimilum en Bakkakoti í barnæsku.

Innlent
Fréttamynd

Taka á móti fyrstu drengjunum í með­ferð í lok febrúar

Áætluð verklok á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru um næstu mánaðamót, janúar/febrúar, og er gert ráð fyrir að húsið verði afhent Barna- og fjölskyldustofu á þeim tíma. Stefnt er að því að taka á móti fyrsta skjólstæðingi í lok febrúar 2026. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu. 

Innlent
Fréttamynd

Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suður­landi

Þrátt fyrir að Guðni Guðmundsson, bóndi á Þverlæk í Rangárþingi ytra sé orðinn 92 ára gamall þá er hann enn að ganga með fram vegum og tína upp einnota umbúðir, dósir og flöskur. Hann hefur safnað tæplega 30 milljónum á síðustu 20 árum og gefið meira og minna íþróttafélaginu í sveitinni hans allan peninginn.

Innlent
Fréttamynd

Stækka aðrennslis­göng Sultar­tangastöðvar

Landsvirkjun hyggst nýta góða vatnsstöðu til að ráðast í stór viðhalds- og endurbótaverkefni sem erfitt er að komast í við eðlilegar aðstæður í vinnslukerfinu. Viðamest þeirra verkefna er stækkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Jóhanna Lilja, kar­töflu­bóndi í Þykkva­bæ, heiðruð

Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir í Þykkvabæ var útnefnd Samborgari Rangárþings ytra 2025 í hófi á vegum sveitarfélagsins í gær, 10. janúar. Jóhanna Lilja býr í Skarði með manni sínum, Sigurbjarti Pálssyni en þau stunda m.a. kartöflurækt á bænum, auk þess, sem hún hefur unnið við íþróttahúsið og tjaldsvæðið í þorpinu í nokkur ár. Hún er Hornfirðingur en hefur búið í Þykkvabæ frá 1982.

Innlent
Fréttamynd

Kvígurnar kvaddar eftir meinta kúvendingu Lands­virkjunar

Kúabóndi sem sestur er í helgan stein kveðst sár og svekktur að horfa upp á Landsvirkjun selja alla hjörðina hans eftir að hann seldi henni land sitt undir virkjun. Eftir 46 ára búskap stefnir í að bú hans að Akbraut í Holtum í Rangárþingi ytra verði að eyðibýli. Landsvirkjun segir að farið hafi verið af stað í góðri trú en komið hafi í ljós að rekstur búsins stæði ekki undir sér.

Innlent