Vinnumarkaður

Flugmenn bjóðast til að taka á sig fjórðungslækkun
Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur gert samninganefnd Icelandair tilboð sem felur í sér kjaraskerðingu upp á 25 prósent. Samninganefndir þeirra sitja nú á fundi sem búist er við að standi fram á kvöld.

Gunnari Rúnari meinað að mæta aftur til vinnu eftir þrjá daga í starfi
Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi fyrir morð, var á dögunum tilkynnt að hann mætti ekki mæta aftur til vinnu hjá Hafnarfjarðarbæ eftir að hafa unnið þar í þrjá daga. Formaður félags fanga segir bæinn fara fram með fordómum og útskúfun.

Segir að svo virðist sem sum fyrirtæki hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga árshlutauppgjörum
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að það virðist sem svo að sum fyrirtæki, sem séu alls ekki í alvarlegum rekstrarvanda, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga ársfjórðungsuppgjörum og með því ætlað sér að ganga í augum á fjárfestum. Hann segir þó að óvissan hafi verið mikil og því að einhverju leyti skiljanlegt að fyrirtækin hafi sótt í hlutabótaleiðina.

Flugmönnum boðin sömu laun og vinna þá meira, fara á hlutabótaúrræði eða lækka launin sín
Flugfélagið Air Atlanta bauð flugmönnum sínum að halda óbreyttum launum og vinna umfram vinnuskyldu, fara á hlutabótaleið stjórnvalda eða taka á sig launalækkun. Forstjórinn segir það gert til að takast á við mikið tekjutap vegna kórónuveirufaraldurs.

Vill að listi yfir fyrirtæki í hlutabótaleið verði birtur
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra vill að Vinnumálastofnun birti lista yfir fyrirtæki sem hafa nýtt sér hlutabótaleiðina svokölluðu.

Bjarni segir eðlilegt að fyrirtæki skili stuðningi stjórnvalda þegar betur árar
Fjármálaráðherra segir til greina komið að fyrirtæki sem nýti sér hlutabætur á uppsagnartíma greiði þær til baka á þremur til fimm árum þegar fyrirtækin fari að skila hagnaði.

Unnur skipuð forstjóri til fimm ára
Unnur Sverrisdóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra Vinnumástofnunar til næsta fimm ára.

Geti lagt inn atvinnuleyfi sitt
Leigubílstjórar sem hafa haft atvinnuleyfi í skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt samkvæmt nýju frumvarpi samgönguráðherra.

Vildu verja störf og völdu því hlutabótaleiðina
Félagið Origo sem skráð er í Kauphöllinni skilaði 425 milljóna króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi.

„Ef vinnuveitandi misnotar þetta úrræði þá er það hans að endurgreiða“
Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir að gríðarlega mikilvægt sé að tryggja rétt launafólks ef í ljós kemur að vinnuveitandi þess og stjórnendur hafi lækkað starfshlutfall þess að ástæðulausu.

„Reka rýting í samstöðuna sem við erum að kalla eftir“
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir að þau tilfelli þar sem fyrirtæki sem hafi verið að greiða sér arð en jafnframt nýta sér hlutabótaleið stjórnvalda séu allt annars eðlis en lagt var upp með þegar úrræðinu var komið á.

Algengar ástæður þess að frumkvöðlafyrirtæki lifa ekki af fyrstu tvö árin
Næstu misseri verður mikilvægt að hvetja fólk til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd, þar á meðal að stofna sín eigin fyrirtæki. Sumir munu sjá tækifæri til að láta gamlan draum rætast á meðan aðrir eru frumkvöðlar í eðli sínu og mæta breyttum heimi með nýjum hugmyndum.

Misnotkun á opinberum styrkjum
Nú eru sum fyrirtæki farin að endurgreiða þann stuðning sem þau hafa nýtt sér frá stjórnvöldum, úr okkar sameiginlegu sjóðum. Það er ljóst að mörg fyrirtæki hafa fengið stuðning sem þurftu ekkert á stuðningi að halda.

Töluverður tekjusamdráttur hjá stærstu drykkjarvöruframleiðendum landsins vegna Covid-19
Bæði Ölgerðin og Coca-Cola á Íslandi hafa þurft að nýta sér úrræði ríkisstjórnar sem snýr að hlutabótum en hjá Ölgerðinni hafa alls 115 starfsmenn farið á hlutabætur og hjá Coca-Cola 60 starfsmenn þegar mest var. Hvorugt fyrirtækið hefur sagt upp starfsfólki.

Þriggja tíma fundi slitið og boðað til annars fundar á laugardag
Þriggja klukkustunda fundi í kjaradeilu Eflingar og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk nú um níuleytið í kvöld.

Finnur kemur í Finns stað hjá Högum
Finnur Oddsson, sem verið hefur forstjóri Origo síðustu sjö ár, hefur verið ráðinn forstjóri Haga.

Gera ráð fyrir 38 milljörðum vegna hlutabótaleiðar
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður í nýju frumvarpi til fjáraukalaga gert ráð fyrir 38 milljörðum króna vegna hlutabótaleiðarinnar og 25 milljörðum vegna greiðslu hluta launa í uppsagnarfresti.

Rótleysið getur valdið kvíða og vanlíðan meðal barnanna
Samninganefndir Eflingar og Sambands íslenskra sveitarfélaga komu saman til fundar í Karphúsinu fyrir stundu en verkfall Eflingar í Kópavogi og fleiri sveitarfélögum hefur nú staðið í rúma tvo sólarhringa. Félagsráðgjafi í Kópavogi óttast áhrif verkfallsins á skólabörn.

Skeljungur býður starfsmönnum fullt starf á ný og endurgreiðir Vinnumálastofnun
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi.

„Algjörlega óþolandi“ að sjá fyrirtæki misnota aðstoð stjórnvalda
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra er verulega ósáttur yfir þeim tíðindum að stöndug fyrirtæki í landinu noti hlutabótaleið stjórnvalda.

Atvinnuleysi 28% í Reykjanesbæ þar sem veiran bætir gráu ofan á svart
Atvinnuleysi í Reykjanesbæ nam í apríl 28 prósentum, þar af er 16,1 prósent í hlutabótaleiðinni svokölluðu. Á Suðurnesjunum nam atvinnuleysi 25,2 prósentum.

Ætla að breyta lögum um hlutabótaleið til að hindra misnotkun
Lögum varðandi svokallaða hlutabótaleið stjórnvalda verður breytt til þess að koma í veg fyrir að stöndug fyrirtæki nýti sér hana til að greiða niður laun starfsmanna.

Þeim sem eru í fjarvinnu heima fjölgar mikið milli ára
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs fjölgaði þeim verulega sem unnu sitt aðalstarf venjulega eð stundum í fjarvinnu heima sé miðað við síðasta ár.

Samgönguráðherra segir lág tilboð hvatningu til enn meiri vegagerðar
Lág verð í útboðum endurspegla hungur á verktakamarkaðnum, að mati Vegagerðarinnar. Samgönguráðherra segir þau hvatningu til að bjóða út enn fleiri verk.

„Við ætlum ekki að gefa neitt eftir“
Skólahald lá niðri eða var skert í nokkrum leik- og grunnskólum í Kópavogi í dag vegna verkfalls Eflingar. Ekki var fundað í deilunni í dag og enginn fundur hefur verið boðaður.

„Ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt“
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) gagnrýnir fyrirtækið Össur harðlega fyrir að nýta sér hlutabótaleið stjórnvalda skömmu eftir að eigendur fyrirtækisins fengu greiddan 1,2 milljarða króna í arð vegna hagnaðar síðasta árs.

Tæplega sjö þúsund eiga eftir að fá greitt
Vinnumálastofnun gengur vel að vinna sig í gegnum holskeflu umsókna sem barst fyrir síðustu mánaðamót. Enn eiga þó tæplega sjö þúsund manns eftir að fá greitt.

Öllu starfsfólki Rammagerðarinnar sagt upp
Öllu starfsfólki Rammagerðarinnar, eða 39 manns, var sagt upp nú um mánaðamótin.

Spyr hvort hagsmunir launþega séu að sitja heima frekar en að vera í vinnunni
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir formann Alþýðusambands Íslands skorta framtíðarsýn þegar komi að umræðunni hvort fyrirtæki, sem leiti til ríkisins varðandi greiðslur til launþega á uppsagnafresti, láti starfsfólk sitt vinna út uppsagnafrestinn. Á fimmta þúsund manns misstu vinnuna í hópuppsagnahrinu í lok apríl.

Tómatar í stað erlendra ferðamanna
Framkvæmdir eru hafnar við Friðheima í Reykholti en þar er verið að stækka gróðurhúsið um fimm þúsund fermetra. Eigendur fyrirtækisins ætla að leggja aukna áherslu á tómatarækt til að bregðast við fækkun erlendra ferðamanna.