Sprengisandur

Sprengisandur: Staða faraldursins, stjórnarmyndunarviðræður og samningastapp talmeinafræðinga
Margt verður til umræðu í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni til að ræða stöðu faraldursins, sem hefur verið í mikilli uppsveiflu undanfarna viku.

„Það er auðvitað ágallinn við þetta kerfi okkar“
Dósent í stjórnsýslurétti segir að það verði að vera ljóst að ágalli á meðferð kjörgagna hafi raunverulega haft áhrif á niðurstöðu kosninganna, ef hrófla eigi við niðurstöðunni.

Hefði viljað sjá lífeyrissjóðina stíga fastar inn í söluna á Mílu og krefst skýringa
Þingmaður Vinstri grænna hefði viljað sjá lífeyrissjóðina stíga fastar inn í söluna á Mílu og fer fram á að stjórnendur þeirra verði spurðir út málið. Hún segist sammála þingmanni Sjálfstæðisflokksins um nauðsyn þess að ný fjarskiptalög verði samþykkt.

Salan á Mílu, stjórnarmyndunarviðræður og framkvæmd kosninga á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til klukkan tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem efst eru á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Sprengisandur: Efnahagsmál, kosningar og umhverfismál í brennidepli
Á Sprengisandi í dag verður farið um víðan völl. Meðal annarra verður rætt við Má Mixa fjárfesti og háskólakennara sem ætlar að kasta mati á vexti, verðbólgu, hækkanir á eignaverði og eitt og annað fleira sem við glímum við í hagkerfinu á Íslandi, en þeir Kristján Kristjánsson ætla líka að tala um aflandsviðskipti í kjölfar Pandóru-skjalanna sem birt hafa verið síðustu vikur.

Tekur fyrir að Miðflokkurinn sé í krísu og biður kjósendur flokksins afsökunar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins hefur beðið kjósendur Miðflokksins í Suðurkjördæmi afsökunar vegna brotthvarfs Birgis Þórarinssonar, nú þingmanns Sjálfstæðisflokksins, úr flokknum. Hann tekur fyrir það að krísuástand ríki innan Miðflokksins.

Sprengisandur: Sigmundur Davíð, skipulagsmál í Reykavík og talingaklúður í Norðvesturkjördæmi
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu.

Meta þurfi menntun til launa jafnvel þó það kalli á ójöfnuð í samfélaginu
Formaður BHM segir nauðsynlegt að meta menntun til launa þó það kalli á ójöfnuð í samfélaginu. Hann segir að búa þurfi þannig um hnútana að sérfræðingar sjái hag sinn í því að koma til landsins að námi loknu.

Segir frá hringferð um hnöttinn, ræða kosningar, KSÍ og vinnumarkaðinn
Það verður farið um víðan völl í Sprengisandi dagsins. Meðal ananrs verður rætt við verkefni á vinnumarkaði, kosningarnar, KSÍ og fleira.

Formennirnir mættu á Sprengisand
Spennandi kosninganótt er að baki og fram undan áhugaverður dagur með viðræðum forystufólks flokkanna sem eðli máls samkvæmt er missátt við niðurstöðurnar í Alþingiskosningunum.

Kosningabaráttan, málefni aldraðra og menntamál í Sprengisandi
Kosningarnar eru í brennidepli í þessum síðasta þætti Sprengisands á Bylgjunni fyrir kosningarnar 25. september.

Sprengisandur: Heilbrigðiskerfið, næsta kjörtímabil og áhrif árásinnar á Tvíburaturnanna
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá frá klukkan tíu til tólf í dag. Fyrstu gestir Kristjáns eru þeir Kristján Guy Burgess, sérfræðingur í alþjóðamálum, og Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra.

Straumar og stefnur kosningabaráttunnar á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá frá klukkan tíu til tólf í dag. Fyrstu gestir eru Lilja Alfreðsdóttir, Daði Már Kristófersson og Gunnar Smári Egilsson sem ætla að freista þess að draga fram og skýra helstu strauma og stefnur í þessari kosningabaráttu sem yfir stendur.

Sprengisandur: Orkuskipti, kosningabaráttan og KSÍ
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir sem krefst forystuskipta í stjórn Knattspyrnusambands Íslands er á meðal gesta í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þá verður rætt um orkuskipti, umönnun aldraðra og kosningabaráttuna.

Segir óskiljanlegt að sóttvarnir hér lúti ekki sömu lögum og erlendis
Rökstyðja þarf hvers vegna sóttvarnareglur hér á landi til langs tíma lúti ekki sömu reglum og sóttvarnir erlendis. Þetta segir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann kallar eftir skýrum svörum frá sóttvarnayfirvöldum.

Sprengisandur: Stjórnarskráin, Sorpa og Afganistan
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmann um grein Kristrúnar Heimisdóttur um stjórnarskrármálið sem nýverið birtist í tímariti lögfræðinga.

Loftslagsmálin áberandi í Sprengisandi í dag
Loftslagsmálin og aðgerðir í þeim verða í brennidepli í Sprengisandsþætti dagsins.

„Auðvitað er þetta ekki þannig að veiran verði látin geisa hér yfir allt“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé ekki stefnan að láta kórónuveiruna „geisa hér yfir allt“, þrátt fyrir orð hans í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun um nú þyrfti að „reyna að ná þessu hjarðónæmi með því að láta veiruna einhvern veginn ganga“.

Kári Stefánsson og Gunnar Smári mæta í Sprengisand
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu.

Engan áhuga á að prófa að hleypa veirunni inn á krabbameinsdeildir
Yfirlæknir á Landspítalanum segir það vonbrigði hve illa bólusetningin virðist hemja veiruna meðal fólks þó að bólusetningin dragi verulega úr alvarlegum veikindum.

Skiptar skoðanir um nýjar sóttvarnaaðgerðir á Sprengisandi
Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Már Kristjánsson yfirlæknir á Landspítalanum munu skiptast á skoðunum um ráðstafanir vegna nýrrar bylgju Covidsmita í Sprengisandi á Bylgjunni klukkan tíu.

Sprengisandur: Veðuröfgar, mörk tjáningarfrelsis og Íslandssagan
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Jón Gnarr, rithöfundur, uppistandari og leikari mætir og fer yfir Íslandssöguna og ræðir ýmislegt fleira.

Ágreiningur vegna veiðigjalda heldur áfram
Þeir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, og Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar og prófessor í auðlindahagfræði, mættust í Sprengisandi í dag. Þar ræddu þeir enn og aftur um veiðigjöld og hvernig réttast væri að reikna þau og skipta.

Sprengisandur: MeToo, sjávarauðlindin og samgöngur á höfuðborgarsvæðinu
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá á Bylgjunni frá klukkan tíu til tólf í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín ýmsa gesti og fer yfir það sem efst er á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Jón Þór og Brynjar ræða Ásmundarsalarmálið á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá á Bylgjunni frá klukkan tíu til tólf í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín ýmsa gesti og fer yfir það sem efst er á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Sprengisandur: Tekist á um söluna á Íslandsbanka og afglæpavæðingu
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til tólf í dag. Hægt verður að hlusta á þáttinn í útvarpi, en einnig hér á Vísi. Hér að neðan má hlusta á þáttinn.

Sprengisandur: MeToo, uppsagnir á Akureyri og hræðsla við Kína
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Hildi Fjólu Antonsdóttur, doktor í réttarfélagsfræði, til að ræða MeToo og rannsóknir sínar á stöðu brotaþola í kynferðisbrotamálum.

Sprengisandur: Endurreisn ferðaþjónustunnar, breytilegir vextir á lánum og dómstóll götunnar
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Höllu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra ASÍ, og Bjarnheiði Halldórsdóttur, formann SAF, um endurreisn ferðaþjónustunnar.

Logi fordæmir danska jafnaðarmenn
Þeir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, voru gestir í Sprengisandi í morgun. Þar tókust þeir á um nýja stefnu danskra stjórnvalda í innflytjendamálum.

Meðferð Dana á hælisleitendum og afglæpavæðing í Sprengisandi
Rætt verður um útvistun danskra stjórnvalda á hælisleitendamálum til Afríkulanda, afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna og afstöðu almennings til einkareksturs í heilbrigðiskerfinu í umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.