Reykjavík síðdegis

Engar myndavélar á vegum lögreglunnar þar sem líkamsárásin átti sér stað
Áætlað er að fjölga eftirlitsmyndavélum í miðborginni og verður það tekið í ákveðnum skrefum.

Eðlilegt að fólki sé brugðið þegar það telur sér ögrað
Agnes M. Sigurðardóttir biskup segir það skiljanlegt að mynd af Jesú, þar sem hann var sýndur með brjóst, kunni að hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum.

Umræða um breyttan holufjölda golfvalla orðin háværari
Edwin Roald Rögnvaldsson golfvallahönnuður segir að undanfarið hafi umræða um hvort golfvellir þurfi að vera annað hvort átján eða níu brautir farið að verða meiri og háværari.

Meiri áhætta að slaka á takmörkunum á vínveitingastöðum
Sóttvarnalæknir telur meiri hættu á að kórónuveirusmit berist milli manna þegar vín er haft við hönd og því sé meiri áhætta að rýmka takmarkanir á opnun skemmtistaða og vínveitingastaða.

Álfarnir á Húsavík fóðraðir með smákökum og bjór
Þeir sem heimsótt hafa Húsavík í sumar vegna Eurovision-myndar Will Ferrel hafa meðal annars tekið upp á því að fóðra „álfana“ sem léku hlutverk í myndinni með smákökum og bjór.

Nefndi Sundabraut „bara sem eitt dæmi“
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir að ummæli sín um að ámælisvært væri að Sundabraut hafi ekki verið byggð hafi aðeins verið dæmi til að undirstrika hversu gott tækifæri væri fyrir ríkissjóð um þessar mundir að fjárfesta í innviðum á borð við samgöngumannvirkjum.

Eiga rétt á afslætti vegna ferða sem enduðu fyrr vegna faraldursins
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað í tveimur málum þar sem ferðalangar þurftu skyndilega að fljúga heim vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á Spáni.

Áhyggjuefni hversu margir eru í sóttkví
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir ræddi kórónuveirufaraldurinn og aðra bylgju hans hér á landi í Reykjavík síðdegis í dag.

Vill að ferðamenn sleppi við sóttkví
Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, telur að yfirvöld hér á landi hafi hæglega getið valið mildari útgáfu við skimun á landamærum „án þess að skrúfa fyrir flæði ferðamanna“ með kröfu um tvöfalda skimun og sóttkví.

„Ekkert í reglugerðinni sem segir til um skyldur einstaklinga“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það val hvers og eins að fara eftir þeim leiðbeiningum sem sóttvarnalæknir hefur gefið út varðandi tveggja metra regluna.

Tölunum svipar til þess þegar faraldurinn fór fyrst á flug
Teymið sem vinnur að spálíkani fyrir kórónuveirufaraldurinn ákvað að bíða aðeins með að gefa út spá eftir tíðindi dagsins.

Fráleit hugmynd að hverfa frá sóttvarnaraðgerðum
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma á Landspítalanum, segir ljóst að samfélagið sé að glíma við alvarlegan veirusjúkdóm.

Veiran náð að dreifa sér ef smitin tengjast hópsýkingunni
Ef innanlandssmitin tvö sem greindust í gær tengjast hópsýkingunni sem kom upp á Akranesi gæti þurft að grípa til harðari aðgerða að sögn Kamillu Sigríðar Jósefsdóttur

Ofbeldi ungmenna birt á samfélagsmiðlum í auknum mæli
Formaður velferðarráðs og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar segir ofbeldi ungmenna sem gjarnan er deilt á samfélagsmiðlum sé mikið áhyggjuefni. Erfitt geti verið að bregðast við slíku ofbeldi en það sé alveg nýtt á nálinni að ofbeldinu sé dreift á samfélagsmiðlum.

Ætluðu aldrei að sinna skimun „til eilífðarnóns“
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að ekki hafi verið áætlað að sinna skimun fyrir kórónuveirunni „til eilífðarnóns.“ Tími sé kominn til þess að starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar snúi sér aftur að dagvinnu sinni, sem hefur verið vanrækt, og „hverfi aftur inn í botnlausa erfðafræðina.“

Engar fjöldatakmarkanir í gildi þegar kemur að skráningu lögheimilis
Nýlega tóku ný lög um lögheimili gildi og kveða þau á um að einstaklingar þurfi að vera skráðir til lögheimilis á tiltekna íbúð eða sérbýli. Margrét Hauksdóttir hjá Þjóðskrá ræddi skráningu lögheimila í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Telur skimunartilraunina hafa mistekist algjörlega
Jón Magnús Jóhannesson, sérnámslæknir í lyflækningum á Landspítalanum sem starfaði á Covid-göngudeild Landspítalans, segir skimunina á Keflavíkurflugvelli hafa mistekist.

Mælir með því að fólk láti lúsmýbit vera
Ofnæmislæknir segir að fólk ætti að forðast það að klóra bit frá lúsmý í sumar.

Vonast eftir því að skimun á Keflavíkurflugvelli verði hætt sem fyrst
Forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals útsýnar segist vonast til þess að skimunum vegna kórónuveirunnar á Keflavíkurflugvelli verði hætt sem fyrst. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofunnar ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Ekki verið sýnt fram á skaðsemi 5G á heilsuna
Ekki hefur verið sýnt fram á að 5G hafi skaðleg áhrif á heilsuna svo lengi sem styrkur rafsegultíðninnar er undir viðmiðunarmörkum sem gilda segir Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins.

Besta vörnin við lúsmýi sérstök flugnanet
Borið hefur á því undanfarið að fólk hafi orðið vart við lúsmý að nýju. Lúsmýið olli miklu fjaðrafoki hér á landi síðasta sumar og var það svo á tímabili að ekki fengust lyf við flugnabitum í apótekum vegna eftirspurnar.

„Óábyrgt að lofa að bæta hag allra, bara ef þeir kjósa mig“
Forseti Íslands fer ekki með fjárveitingarvald og það væri óábyrgt af þeim sem situr á Bessastöðum að lofa öllu fögru og segjast munu bæta hag allra bara ef þið kjósið mig,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands spurður um hlutverk forseta.

Geitungarnir eiga „ábyggilega eftir að koma“
Steinar Marberg Egilsson meindýraeyðir segir margt geta útskýrt færri geitunga nú en undanfarin ár.

Ætlar ekki að staðfesta lög um skerðingu réttinda öryrkja
Guðmundur Franklín Jónsson ætlar ekki að staðfesta lög sem skerða réttindi öryrkja og eldri borgara komi þau á hans borð nái hann kjöri. Hann myndi beita málskotsrétti sparlega og fannst farið offari í umræðum þegar frumvarp um þungunarrof var samþykkt í fyrra.

Þrisvar sinnum fleiri Íslendingar taldir hafa fengið veiruna en greindust með hana
Niðurstöður úr Covid-mótefnamælingum Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að þrisvar sinnum fleiri Íslendingar hafi fengið veiruna en greindust með hana.

Telur Ísland ekki vera að heltast úr markaðssetningarlestinni
Ferðamenn sem líklegir eru til millilandaferðalaga næstu mánuði telja Ísland einn af öruggustu áfangastöðum sem völ er á með tilliti til kórónuveirufaraldursins.

Vill ekki stækka skiltin heldur hætta allri meðvirkni með einkabílnum
Formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar segir að einkabíllinn eigi ekkert erindi á Laugaveginn í miðbæ Reykjavíkur, þar sem ökumenn hafa virt göngugötumerkingar að vettugi undanfarna daga við lítinn fögnuð gangandi vegfarenda á svæðinu.

Telur viðurlög við árásum á lögreglumenn allt of væg
Formaður Landssambands lögreglumanna segir að ofbeldi í garð lögreglumanna sé allt of algengt og gagnrýnir hann dómstólana fyrir að nýta ekki refsiramma laganna.

Skimun besti kosturinn þrátt fyrir ummæli smitsjúkdómalæknis
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að skimun fyrir kórónuveirunni á íslensku landamærunum sé besti kosturinn til að hindra útbreiðslu veirunnar.

Stefnt á að hægt verði að tala íslensku við tækin eftir fimm ár
„Þetta er mjög alvarlegt og eins og þú segir þá talar fólk við vélar, fólk talar við tæki, talar við símana sína og það mun bara aukast en það er á erlendum málum, ekki íslensku,“ sagði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannróms.