
Franski handboltinn

Ólafur á leið til silfurliðs Montpellier
Ólafur Andrés Guðmundsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, er á leið til Montpellier í Frakklandi og mun leika þar á næstu leiktíð. Ólafur yfirgefur Kristianstad í Svíþjóð eftir sex ára dvöl.

Álaborg í úrslit eftir sigur gegn frönsku risunum
Álaborg vann í dag frækinn tveggja marka sigur gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Lokatölur 35-33 og Álaborg mætir annað hvort Nantes eða Barcelona í úrslitaleiknum á morgun. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgar.

Alexander á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag
Flensburg-Handewitt vann tveggja marka sigur á Stuttgart, 32-30, er liðin mættust í Íslendingaslag í þýska handboltanum.

Kristján Örn og félagar í góðum málum fyrir lokaumferðina
Íslenski landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC AIX unnu mikilvægan sigur í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Óvæntur sigur og Ómar heldur áfram að raða inn mörkum
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður Magdeburg er liðið tapaði 33-30 fyrir Flensburg-Handewitt í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þjálfarinn í einangrun og Arnór stýrir Álaborg í fyrsta úrslitaleiknum
Arnór Atlason stýrir Álaborg í fyrsta leiknum í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn gegn Bjerringbro/Silkeborg í kvöld þar sem þjálfari liðsins, Stefan Madsen, er kominn í einangrun.

Elvar heldur áfram að fara á kostum í Frakklandi
Elvar Ásgeirsson átti enn einn stórleikinn með Nancy í kvöld þegar liðið lagði Selestat með einu marki í frönsku B-deildinni í kvöld, lokatölur 32-31.

Elvar á flugi í Frakklandi | Grétar Ari tapaði naumlega
Elvar Ásgeirsson og Grétar Ari Guðjónsson léku með liðum sínum í frönsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Nancy vann botnlið Angers 28-24 á meðan Nice tapaði með eins marks mun gegn Cherbourg, 32-31.

Kristján Örn skoraði tvö í tveggja marka tapi
Íslenski handboltamaðurinn Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC AIX náðu ekki í stig í franska handboltanum í dag.

Nancy staðfestir komu Elvars
Franska B-deildarliðið Nancy hefur staðfest félagaskipti Elvars Ásgeirssonar frá þýska úrvalsdeildarliðinu Stuttgart.

Mikkel Hansen snýr heim til Danmerkur á næsta ári og spilar hjá Arnóri
Mikkel Hansen, stærsta handboltastjarna Dana, snýr væntanlega heim á næsta ári og gengur í raðir Aalborg frá Paris Saint-Germain.

Kristján Örn frá keppni næstu vikur
Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, verur frá næstu vikur vegna meiðsla. Hann tognaði á ökkla á æfingu nýverið.

Elvar á leið til Frakklands
Handboltamaðurinn Elvar Ásgeirsson er á leið til franska B-deildarliðsins Nancy frá Stuttgart í Þýskalandi samkvæmt heimildum íþróttadeildar.

Kristján Örn markahæstur í öruggum sigri
Kristján Örn Kristjánsson er að gera góða hluti í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

PSG vildi fá Janus Daða til að fylla skarð Karabatic
Franska stórliðið Paris Saint-Germain bar víurnar í Janus Daða Smárason, landsliðsmann í handbolta.

Óðinn Þór með þrjú mörk í naumum sigri | Grétar Ari átti góðan leik
Holstebro vann góðan tveggja marka sigur á Frederica á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá vann Nice góðan sjö marka sigur gegn Besancon í frönsku B-deildinni í kvöld.

Kristján markahæstur í naumum sigri
Kristján Örn Kristjánsson og Bjarki Már Elísson voru atkvæðamiklir í leikjum sinna liða í dag.

Kristján Örn og Magnús Óli kallaðir inn í landsliðið
Guðmundur Guðmundsson hefur bætt tveimur leikmönnum við íslenska landsliðshópinn sem mætir Litháen í undankeppni EM í næstu viku.

Karabatic meiddur og missir af fyrsta stórmótinu síðan 2002
Eftir að hafa leikið á 22 stórmótum í röð verður Nikola Karabatic fjarri góðu gamni á HM í Egyptalandi í byrjun næsta árs.

Í liði umferðarinnar eftir fyrsta leikinn í Frakklandi
Kristján Örn Kristjánsson fór vel af stað með Pays d'Aix í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Rosalegustu félagaskipti í sögu norsks handbolta – Abalo kemur í stað Sigvalda
Luc Abalo, sem átta sinnum hefur unnið gullverðlaun á stórmóti með Frakklandi, er genginn í raðir norska handknattleiksliðsins Elverum þar sem hann mun fylla skarð Sigvalda Björns Guðjónssonar.

Guðjón Valur: Ekkert sjálfsagt að ég haldi áfram
Guðjón Valur Sigurðsson hefur ekki enn ákveðið hvort hann ætli að halda áfram að spila handbolta.

Grétar Ari á leið til Frakklands
Markvörðurinn þreytir frumraun sína í atvinnumennsku á næsta tímabili.

Geir á heimleið og í Hafnarfjörðinn
Akureyringurinn leikur í Olís-deild karla á næsta tímabili eftir fjögur ár í atvinnumennsku.

Virði leikmanna hrunið og spænska deildin gæti orðið áhugamannadeild
Arnar Freyr Theodórsson, umboðsmaður sumra af bestu handboltamönnum heims, segir markaðsvirði leikmanna hafa farið hratt niður á við. Hann óttast að spænska deildin breytist í áhugamannadeild.

Guðjón Valur með sjö meistaratitla eftir þrítugt
Guðjón Valur Sigurðsson vann ekki sinn fyrsta landsmeistaratitil fyrr en hann var orðinn 32 ára en sjá sjöundi kom engu að síður í hús hjá honum í dag.

Tímabilið í Frakklandi flautað af | Guðjón Valur meistari
Guðjón Valur Sigurðsson varð franskur meistari á sínu fyrsta og eina tímabili með Paris Saint-Germain.

Guðjón Valur skoraði fimm er PSG tapaði sínu fyrsta stigi
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk er PSG tapaði sínum fyrsta stigum í vetur er liðið gerði jafntefli Nantes, 29-29, í hörkuleik í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Sjö mörk Janusar ekki nóg | Guðjón og Sigvaldi mættust
Guðjón Valur Sigurðsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson voru á ferðinni þegar PSG tók á móti Elverum í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Janus Daði Smárason skoraði sjö mörk fyrir Aalborg í Zagreb í sama riðli.

Sigrar hjá öllum Íslendingaliðunum | Sigvaldi og Teitur markahæstir
Margir íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni í kvöld en öll liðin sem Íslendingar spila með unnu sigra í kvöld.